Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 652

2. mars 2020, kl. 08:30 til 11:10, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Einar Már Sigurðarson, varamaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 287 liður 1

    Til máls tóku: Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 2. mars sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Framkvæmda- og viðhaldsáætlun 2020

    Mál 2001149 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu framkvæmda og viðhaldsáætlunar Fjarðabyggðar og stofnana vegna ársins 2020.

  2. 2. Barnvæn sveitarfélög - Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna

    Mál 2002151 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá félagsmálaráðuneytinu og UNICEF á Íslandi með tilboði um þátttöku í verkefninu "barnvæn sveitarfélög". Um er að ræða verkefni sem styður sveitarfélög í innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem var lögfestur hér á landi árið 2013.

    Bæjarráð tekur jákvætt í erindi og vísar því til umsagnar fræðslunefndar, íþrótta- og tómstundanefndar, félagsmálanefndar og ungmennaráðs.

  3. 3. Egilsbúð - félagsheimili (Hús frístunda)

    Mál 1901070 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað bæjarstjóra vegna framkvæmda við Egilsbúð - félagsheimili á árinu 2020. Kostnaði vegna framkvæmda er mætt með sölu eigna.

    Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra og vísar erindi til kynningar í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd. Jafnramt vísað til fjármálastjóra til gerðar viðauka.

  4. 4. 750 Stekkholt 11 - umsókn um lóð

    Mál 2002118 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags-, og umhverfisnefnd til fullnaðarafgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn, dagsett 17. febrúar 2020, þar sem sótt er um lóðina við Stekkholt 11 á Fáskrúðsfirði undir íbúðarhúsnæði.

    Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.

  5. 5. Leigusamningur - Hafnargata 2

    Mál 2002140 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að leigusamningi um leigu á Hafnargötu 2 á Reyðarfirði fyrir skrifstofu Fjarðabyggðar ásamt minnisblaði bæjarstjóra um framhald uppbyggingu bæjarskrifstofu.

    Bæjarráð samþykkir leigusamninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans. Samningi er vísað til fjármálastjóra til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun. Jafnframt samþykkir bæjarráð að fela fjármálastjóra, bæjarritara, mannauðsstjóra og sviðsstjóra framkvæmdasviðs að vinna þarfagreiningu, kostnaðarmat og tillögur um hönnun á Búðareyri 2 sem lagðar yrðu fyrir bæjarráð 6. apríl nk.

  6. 6. Verkfallsboðun 2020

    Mál 2002137 Allur ferill málsins

    Framlagðar tilkynningar um niðurstöðu atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna Starfsmannafélags Fjarðabyggðar annars vegar og Félags opinberra starfsmanna á Austurlandi hins vegar um verkföll. Verkfallsaðgerðir munu hefjast á miðnætti þann 9. mars nk. með tímabundnum vinnustöðvunum.

    Bæjarráð felur mannauðsstjóra að fara yfir með stjórnendum stofnana viðbrögð og ráðstafanir vegna verkfallsaðgerða.

  7. 7. Starfshópur um sumaropnun leikskólanna

    Mál 2002082 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög erindisbréfs starfshóps um sumaropnun leikskólanna í Fjarðabyggð til staðfestingar.

    Bæjarráð staðfestir erindisbréfið og felur formanni hópsins að boða hann til fundar.

  8. 8. Eftirlit með fjármálastjórn sveitarfélaga og fjármálum.

    Mál 1903142 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga um almennt eftirlit með fjármálum sveitarfélaga og kröfu um skil á sérstöku yfirliti um fjárfestingar og framvindu þeirra á árinu 2019.

    Svar við bréfinu skal hljóta umfjöllun í bæjarstjórn í síðasta lagi fyrir 10. apríl 2020. Áður á dagskrá bæjarráðs 25. mars 2019.

    Vísað til fjármálastjóra til úrvinnslu og bæjarstjórn til formlegrar umfjöllunar.

  9. 9. Lántaka 2020 hjá Lánasjóði sveitarfélaga

    Mál 2001114 Allur ferill málsins

    Áður á dagskrá bæjarráðs 20.1. 2020. Fyrir liggur samþykki hjá Lánasjóði sveitarfélaga um lán að upphæð 200 m.kr. af eigin fé sjóðsins til Fjarðabyggðar.

    Tillaga fjármálastjóra er sú að samþykki Lánasjóðsins verði nýtt og lánsheimild í áætlun ársins 2020 auk 100 m.kr. viðbótar lántöku verði heimiluð.

    Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leiti að tekið verði lán að fjárhæð 200 m.kr. og vísar til bæjarstjórnar staðfestingu lántökunnar. Jafnframt vísað til fjármálastjóra gerð viðauka við fjárhagsáætlun 2020 vegna aukinnar lántöku.

  10. 10. Áskorun á bæjarstjórn Fjarðabyggðar vegna sundlaugar Reyðarfjarðar

    Mál 2002133 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi 7. bekkjar grunnskólans á Reyðarfirði varðandi málefni sundlaugar á Reyðarfirði.

    Bæjarráð þakkar nemendum 7. bekkjar bréfið.

  11. 11. Fundargerðir framkvæmdastjórnar Skólaskrifstofu 2020

    Mál 2002178 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar fundargerð framkvæmdaráðs Skólaskrifstofu Austurlands frá 26. febrúar 2020 auk bréfs starfsmanna.

    Vísað til kynningar í fræðslunefnd og félagsmálanefnd.

  12. 12. Kaup á skemmu í starfsmannaþorpi Alcoa

    Mál 2002168 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað slökkviliðsstjóra um yfirtöku slökkviliðs Fjarðabyggðar á stálgrindarskemmu við starfsmannaþorp Alcoa án endurgjalds. Ætlunin er að nýta skemmuna fyrir æfingar slökkviliðsins og geymslu á æfingabúnaði. Slökkviliðsstjóri óskar eftir heimild bæjarráðs til að ganga frá kaupum á skemmunni og gerir ráð fyrir að eignarsjóður verði eigandi hennar.

    Bæjarráð mun samþykkja að afloknu mati á ástandi stálgrindarskemmu hvort að yfirtöku verðið og felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að gera úttekt á húsnæði stálgrindarskemmu í starfsmannaþorpinu og leggja fyrir næsta fund bæjarráðs.

  13. 13. Menningar- og nýsköpunarnefnd - 22

    Fundargerðin í heild

    Lögð fram til afgreiðslu fundargerð Menningar-, og nýsköpunarnefndar frá 17. febrúar sl.

    1. 13.1 Skipun stjórnar Tónlistarmiðstöðvar2001188
    2. 13.2 Beiðni um stykr vegna rútuferða á leiksýningu 9. bekkjar Nesskóla2002072
    3. 13.3 Skapandi sumarstörf - Lokaskýrsla2001181
    4. 13.4 Stúdenta- og ungmennaskipti milli Fjarðabyggðar (Fáskrúðsfjarðar) og Gravelines1901077
    5. 13.5 Eistnaflug 20202001243
    6. 13.6 Starfshópur um nýsköpun og atvinnuþróun2002099
    7. 13.7 Endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-20271810136
  14. 14. Hafnarstjórn - 237

    Fundargerðin í heild

    Lögð fram til afgreiðslu fundargerð Hafnarstjórnar frá 17. febrúar sl.

    1. 14.1 Veðurstöðvar á Fjarðabyggðarhöfnum1911045
    2. 14.2 Beiðni um styrk til endurbóta á bryggju1910044
    3. 14.3 Fundur með sveitar- og hafnarstjórnum vegna kynningar á lýsingu fyrir gerð strandsvæðisskipulags á Austfjörðum2002087
    4. 14.4 Beiðni um umsögn v.endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskimjölsverksmiðju2002089
    5. 14.5 Umsókn um stækkun á tanki - Stöðvarfjörður2002073
    6. 14.6 Könnun vegna strandveiða2002069
    7. 14.7 Aðalfundur Cruise Iceland 20202002088
    8. 14.8 Umsókn um hluta lóðar í Neskaupstað1805256
    9. 14.9 Landtengingar hafna2002112
  15. 15. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 253

    Fundargerðin í heild

    Lögð fram til afgreiðslu fundargerð eigna-, skipulags-, og umhverfisnefndar frá 24. febrúar sl.

    1. 15.1 Eskifjarðarvöllur - uppbygging og staða2002143
    2. 15.2 Verkefnastyrkir á vegum umhverfis- og auðlindamála1912105
    3. 15.3 Lausaganga sauðfjár í Fjarðabyggð2002023
    4. 15.4 Umhverfisstefna Fjarðabyggðar1704067
    5. 15.5 64.mál til umsagnar tillögu til þingsályktunar um heimild sveitarfélaga til að innheimta umhverfisgjöld2001242
    6. 15.6 Leitað leyfis landeiganda eða annars rétthafa - heimild til að nátta2002132
    7. 15.7 Bráðabrigðayfirlit fyrstu vatnaáætlunar fyrir Ísland2002134
    8. 15.8 Ofanflóðavarnir á Eskifirði - Grjótá2002092
    9. 15.9 Trjákurl til húshitunar1905004
    10. 15.10 730 Starfsmannaþorp Alcoa/Bectel fyrirspurn um afnot á skemmu2002139
    11. 15.11 750 Stekkholt 11 - umsókn um lóð2002118
    12. 15.12 735 Strandgata 38 - Umsókn um byggingarleyfi, niðurrif2002065
    13. 15.13 735 Strandgata 92 - Umsókn byggingarleyfi, breytt útlit2002044
    14. 15.14 Endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-20271810136
  16. 16. Ungmennaráð - 3

    Fundargerðin í heild

    Lögð fram til afgreiðslu fundargerð ungmennaráðs frá 5. febrúar sl.

    1. 16.1 Starfsáætlun ungmennaráðs 2019-20201911057