730 Starfsmannaþorp Alcoa/Bectel fyrirspurn um afnot á skemmu
Mál 2002139 Fyrst á dagskrá 24. febrúar 2020, síðast 5. mars 2020. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2020
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 253 liður 10
Lagt fram bréf Slökkviliðsstjóra Fjarðabyggðar varðandi byggingar á svæði starfsmannaþorps Alcoa/Bectel, dagsett 21. febrúar 2020. Óskað er eftir áliti nefndarinnar á því hvort unnt sé að láta stálgrindarskemmu og glerbyggingu standa eftir þegar lokið verður við að fjarlægja starfsmannaþorpið. Fyrirhugað er að nýta byggingarnar undir æfingaaðstöðu Slökkviliðs Fjarðabyggðar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur að í skipulagi sé hægt að gera ráð fyrir starfsemi slökkviliðs á svæðinu.
-
Bæjarráð, fundur 652 liður 15.10
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 253“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 287 liður 2.10
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 253“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.