NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd
Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 23
9. mars 2020, kl. 17:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
- Jón Kristinn Arngrímsson, varaformaður
- Elva Bára Indriðadóttir, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Ari Allansson, embættismaður
- Stefán Aspar Stefánsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 654 liður 15
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 9. mars sl. tekin til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 288 liður 6
Enginn tók til máls.
Fundargerð menningar-, og nýsköpunarnefndar frá 9. mars staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Verkefni menningarstofu 2020
Mál 2001116 Allur ferill málsins
Framlagt yfirlit yfir verkefni Menningarstofu Fjarðabyggðar fyrir árið 2020 og starfsemi síðustu 6 mánaða. Forstöðumaður fór yfir yfirlitið.
-
2. Skapandi sumarstörf 2020
Mál 2003022 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarráði til kynningar menningar- og nýsköpunarnefndar samningi milli Fljótsdalshéraði og Fjarðabyggðar um skapandi sumarstörf.
-
3. Umsókn um styrki til menningarmála
Mál 1903188 Allur ferill málsins
Umsókn Einars Ágústs Víðissonar um styrk til menningarmála. Sótt um vegna upptöku á plötu sem inniheldur íslenskar kvöldvísur.
Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að styrkja umsækjanda um 100.000. kr.
-
4. Umsókn um styrki til menningarmála
Mál 1909039 Allur ferill málsins
Umsókn Jóns Knúts Ásmundssonar um styrk til menningarstarfsemi. Sótt er um vegna útgáfu plötu norðfirsku hljómsveitarinnar Coney Island Babies.
Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að styrkja umsækjanda um 100.000 kr.
-
5. Umsókn um styrki til menningarmála
Mál 2001006 Allur ferill málsins
Umsókn Erlu Dóru Vogler um styrk til menningarstarfsemi. Sótt er um vegna tónleikanna Nýársglamour í ársbyrjun 2021.
Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að styrkja umsækjanda um 150.000 kr.
-
6. Umsókn um styrki til menningarmála
Mál 2001007 Allur ferill málsins
Umsókn Svans Davíðs Vilbergssonar um styrk til menningarstarfsemi. Sótt er um vegna tónleika með gítar- og söngtríóinu Túnfífill í ágúst 2020.
Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að styrkja umsækjanda um 150.000 kr.
-
7. Umsókn um styrki til menningarmála
Mál 2001122 Allur ferill málsins
Umsókn Bjarna Stefáns Vilhjálmssonar um styrk til menningarstarfsemi. Sótt er um vegna bæjarhátíðar á Stöðvarfirði.
Menningar- og nýsköpunarnefnd vísar styrkbeiðni til styrkja sem veittir eru bæjarhátíðum og felur upplýsingafulltrúa að setja sig í samband við umsækjanda.
-
8. Umsókn um styrki til menningarmála
Mál 2002103 Allur ferill málsins
Umsókn Hildar Þórðardóttur um styrk til menningarstarfsemi. Sótt er um vegna tónleika Sinfóníuhljómsveitar Austurlands vegna tónleik La dolce vita.
Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að styrkja umsækjanda um 200.000 kr.
-
9. Umsókn um styrki til menningarmála
Mál 2002116 Allur ferill málsins
Umsókn Verkmenntaskóla Austurlands um styrk til menningarstarfsemi. Sótt er um vegna fjórtándun leiksýningar Leikfélagsins Djúpsins, Söngleikurinn Adamsfjölskyldan.
Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að styrkja umsækjanda um 150.000 kr.
-
10. Umsókn um styrki til menningarmála
Mál 2002170 Allur ferill málsins
Umsókn Þórunnar Bjargar Halldórsdóttur um styrk til menningarstarfsemi. Sótt er um vegna gerðar fjögurra hlaðvarpsþátta um innflytjendur í Fjarðabyggð.
Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að styrkja umsækjanda um 150.000 kr.
-
11. Umsókn um styrki til menningarmála
Mál 2002169 Allur ferill málsins
Umsókn Pjeturs St Arasonar um styrk til menningarstarfsemi. Sótt er um vegna Litlu trúbadorahátíðarinnar.
Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að styrkja umsækjanda um 100.000 kr.
-
12. Umsókn um styrki til menningarmála
Mál 2002171 Allur ferill málsins
Umsókn Pjeturs St Arasonar um styrk til menningarstarfsemi. Sótt er um vegna V-5 Bílskúrstónleikaraðar á hverju þriðjudagskvöldi að Valsmýri 5.
Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að styrkja umsækjanda um 50.000 kr.
-
13. Umsókn um styrki til menningarmála
Mál 2002172 Allur ferill málsins
Umsókn Pjeturs St Arasonar um styrk til menningarstarfsemi. Sótt er um vegna tónlistarhátíðarinnar Orientum Im Culus (Austur í rassgati).
Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að styrkja umsækjanda um 100.000 kr.
-
14. Umsókn um styrki til menningarmála
Mál 2002187 Allur ferill málsins
Umsókn Hreins Stephensen um styrk til menningarstarfsemi. Sótt er um vegna útgáfu hljómplötu sem hugsuð er sem dagbók ferðar í samstarfi við Vinny Vamos í stúdíó Síló.
Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að styrkja umsækjanda um 100.000 kr.
-
15. Umsókn um styrki til menningarmála
Mál 2002173 Allur ferill málsins
Umsókn Félags ljóðaunnenda á Austurlandi um styrk til menningarstarfsemi. Sótt er um vegna útgáfu ljóðabókar eftir austfirsku skáldkonuna Guðnýju Árnadóttur sem hlaut viðurnefnið Skálda-Guðný.
Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að styrkja umsækjanda um 50.000 kr.
-
16. Umsókn um styrki til menningarmála
Mál 2003002 Allur ferill málsins
Umsókn Millifótakonfekts um styrk til menningarstarfsemi. Sótt er um vegna þungarokkshátíðarinnar Eistnaflugs 2020.
Menningar- og nýsköpunarnefnd þakkar umsóknina en getur því miður ekki orðið við styrkbeiðni.
-
17. Umsókn um styrki til menningarmála
Mál 2003003 Allur ferill málsins
Umsókn Millifótakonfekts um styrk til menningarstarfsemi. Sótt erum um vegna Tónleika á hjólum sem tilraunaverkefnis en ætlunin er að tónleikar verði haldnir í bát.
Menningar- og nýsköpunarnefnd þakkar umsóknina en getur því miður ekki orðið við styrkbeiðni.
-
18. Umsókn um styrki til menningarmála
Mál 2003004 Allur ferill málsins
Umsókn Millifótakonfekts um styrk til menningarstarfsemi. Sótt er um vegna rokktónleika í Egilsbúð 8. júlí en þar verða flutt vinsælustu rokk og ról lög síðustu áratuga.
Menningar- og nýsköpunarnefnd þakkar umsóknina en getur því miður ekki orðið við styrkbeiðni.
-
19. Trjákurl til húshitunar
Mál 1905004 Allur ferill málsins
Vísað úr bæjarráði til kynningar í menningar- og nýsköpunarnefnd erindi um nýtingu trjákurls í kyndistöð. Bæjarráð samþykkir að Fjarðabyggð staðfesti með viljayfirlýsingu að vinna áfram að hugmyndum um uppbyggingu kyndistöðvar með trjákurli. Yfirlýsingin er ekki bindandi en til umsóknar Rannís.
Lagt fram til kynningar.
-
20. Fundagerðir Héraðsskjalasafns Austurlands 2020
Mál 2002186 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar fundargerð Héraðsskjalasafns Austfirðinga frá 24. febrúar sl.
Vísað til kynningar í safnanefnd.