Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd

Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 24

3. apríl 2020, kl. 15:00 til 16:50, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Kristinn Arngrímsson, varaformaður
  • Elva Bára Indriðadóttir, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 657 liður 12

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 3. apríl tekin til afgreiðslu

  • Bæjarstjórn, fundur 290 liður 7

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 3. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Stefnumótun í ferðaþjónustu

    Mál 1811077 Allur ferill málsins

    Drög að stefnumótun fyrir ferðaþjónustu lögð fram.

    Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir drög að ferðamálastefnu fyrir Fjarðabyggð og að stefnan verði yfirfarin og sett upp. Í framhaldi vísað til umsagnar nefnda og tekin fyrir að nýju í nefndinni.

  2. 2. Verkefni til viðspyrnu í samfélaginu vegna faraldurs

    Mál 2004008 Allur ferill málsins

    Framlögð vinnugögn vegna verkefna sem unnið hefur verið að vegna ferðamála, markaðs- og upplýsingamála, menningarmála og tengdra verkefna af hálfu stjórnsýslu- og þjónustusviðs.

    Menningar- og nýsköpunarnefnd þakkar fyrir snögg viðbrögð og samþykkir tillögurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarráðs sem vinnur að aðgerðum fyrir samfélagið vegna COVID 19 faraldursins.

  3. 3. Verkefni menningarstofu 2020

    Mál 2001116 Allur ferill málsins

    Lagt fram yfirlit yfir verkefni Menningarstofu sumarið 2020 ásamt skilgreiningu samstarfsverkefna. Meðal verkefna eru skapandi sumarstörf í samstarfi við Fljótsdalshérað, skapandi sumarsmiðjur, menningar- og listahátíð Fjarðabyggðar, kvikmyndasýningar, tónleikahald auk samstarfs við hátíðir sem eru í umsjón heimamanna.

    Lagt fram til kynningar.

  4. 4. Eistnaflug 2020

    Mál 2001243 Allur ferill málsins

    Tekin fyrir að nýju drög drög að uppfærðum samningi við Millifótakonfekt ehf. um menningarhátíðina Eistnaflug. Um er að ræða uppfærðan samning til lengri tíma.

    Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir samninginn fyrir sitt leyti.

  5. 5. COVID19 - staða

    Mál 2002090 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til kynningar í menningar- og nýsköpunarnefnd umræðu um ráðstafanir sveitarfélagsins vegna Covid-19.

    Bæjarráð vill koma þakklæti til allra starfsmanna Fjarðabyggðar sem og íbúa fyrir þeirra ómetanlega framlag á erfiðum tímum. Sérstaklega vill bæjarráð þakka starfsmönnum skólastofnana, félags- heimaþjónustu og hjúkrunarheimila í Fjarðabyggð fyrir þeirra störf sem gert hafa það kleift að halda úti þessari mikilvægu starfsemi á þessum tímum.

    Aðgerðarhópur Fjarðabyggðar hittist daglega til að fara yfir stöðuna í Fjarðabyggð og almannavarnarnefnd Austurlands gegnir lykilhlutverki hér eftir sem hingað til við undirbúning viðbragða og eftirfylgni og einnig hittist aðgerðarhópur almannavarna daglega.

    Menningar- og nýsköpunarnefnd tekur heilshugar undir bókunina.

  6. 6. Viðspyrna af hálfu sveitarfélaga fyrir íslenskt atvinnulíf

    Mál 2003122 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til kynningar í menningar- og nýsköpunarnefnd erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga um viðspyrnu af hálfu sveitarfélaga fyrir íslenskt atvinnulíf. Bæjarráð samþykkti tillögur sem fyrstu aðgerðir Fjarðabyggðar til viðspyrnu fyrir samfélagið vegna COVID-19 faraldursins á 656. fundi sínum þann 30. mars 2020.

    Haldinn hefur verið fundur með ferðaþjónustuaðilum í Fjarðabyggð þar sem rædd hefur verið staða greinarinnar í ljósi faraldursins. Jafnframt hafa verið lagðar fram tillögur frá stjórnsýslu- og þjónustusviði til stuðnings samfélagsins. Lagt fram til kynningar.

  7. 7. Safnanefnd - 14

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til afgreiðslu fundargerð safnanefndar frá 17. mars sl.

    1. 7.1 Reglugerð um rekstur héraðsskjalasafns2002106
    2. 7.2 Sala á Búðarvegi 8 - Templarinn2002096
    3. 7.3 Fundagerðir Héraðsskjalasafns Austurlands 20202002186
    4. 7.4 Þjónustusamningur milli Safnastofnun Fj. og Myndlistarsafn Tryggva2003096
    5. 7.5 Tilkynning um slit á Safnaráði Neskaupstað2003097
    6. 7.6 Slit félagsins Sjóminja- og smiðjuminjasafn Jósafats Hinrikssonar1911133
    7. 7.7 Fyrirhuguð uppbygging Íslenska stríðsárasafnsins.1812130
    8. 7.8 Stjórn Sjóminjasafns Austurlands.1806162