NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd
Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 25
11. maí 2020, kl. 17:00 til 18:08, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
- Jón Kristinn Arngrímsson, varaformaður
- Elva Bára Indriðadóttir, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 664 liður 31
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar, nr. 25 frá 11.maí 2020, lögð fram til umfjöllunar.
Bæjarstjórn, fundur 292 liður 11
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 11. maí sl. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Menningarverkefni - QueerNes
Mál 2005028 Allur ferill málsins
Framlagt erindi Hafsteins Hafsteinssonar og Hákons Guðröðarsonar fyrir hönd verkefnisins QueerNes. Lögð fram skýrsla til kynningar á verkefninu, framgangi þess og næstu skrefum. Hákon sat fundinn í gegnum fjarfundabúnað og kynnti verkefnið. Menningar- og nýsköpunarnefnd þakkar kynningu og vísar málinu til skoðunar hjá forstöðumanni menningarstofu og bæjarritara.
-
2. Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 2021
Mál 2005019 Allur ferill málsins
Framlagðar til kynningar reglur um vinnu við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2021 - 2024. Umræða um vinnslu fjárhagsáætlunar. Reglurnar verða lagðar fram í bæjarstjórn 28. maí nk. Fundir með formönnum nefnda og sviðsstjórum er áætlaðir í þessari viku en umræður og vinnsla tillagna að fjárhagsáætlun 2021 í nefndum og hjá sviðsstjórum á að vera lokið 10.júní. Vísað til áframhaldandi vinnslu í nefndinni og tekið fyrir á fundi 25. maí nk.
-
3. Nýsköpun og atvinnuþróun
Mál 2002099 Allur ferill málsins
Atvinnu- og þróunarstjóri sat þennan lið fundarins og fór yfir störf starfshóps um málefni nýsköpunar og atvinnuþróunar í sveitarfélaginu en hópinn skipa Ari Allansson, Lilja Guðný Jóhannesdóttir og Valgeir Ægir Ingólfsson sem jafnframt er formaður hópsins. Menningar- og nýsköpunarnefnd leggur til við bæjarráð að óskað verði eftir fundi með ráðherra nýsköpunarmála til að ræða tækifæri til nýsköpunar í sveitarfélaginu og aðkomu ríkisins að eflingu slíkra tækifæra.
-
4. Gamla sýningarvélin og önnur tæki í Valhöll Eskifirði
Mál 1911122 Allur ferill málsins
Erindi Vina Valhallar er varðar gamla sýningarvél og magnara sem staðsett eru í Félagsheimilinu Valhöll. Lagt fram minnisblað forstöðumanns menningarstofu um afgreiðslu málsins. Menningar- og nýsköpunarnefnd felur forstöðumanni menningarstofu að ganga frá formlegu samþykki við Kvikmyndasafn Íslands vegna sýningarvélarinnar.
-
5. Markaðsátak og sýnileiki 2020
Mál 2005044 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar minnisblað upplýsingafulltrúa og birtingaráætlun vegna markaðsátaks sumarið 2020. Bæjarráð hefur samþykkt tillögur í minnisblaði.