Gamla sýningarvélin og önnur tæki í Valhöll Eskifirði
Mál 1911122 Fyrst á dagskrá 16. desember 2019, síðast 28. maí 2020. 6 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Menningar- og nýsköpunarnefnd.
Í heiti málsins: Eskifjörður
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2019
Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 20 liður 1
Erindi Vina Valhallar er varðar gamla sýningarvél og magnara sem staðsett eru í Félagsheimilinu Valhöll. Kvikmyndasafn Íslands hefur óskað eftir að fá hluta vélarinnar til varðveislu. Íbúi í sveitarfélaginu hefur jafnframt óskað eftir að fá að gera upp magnara sem einnig er staðsettur í Valhöll og var hluti af kvikmyndasýningarbúnaði hússins. Menningar- og nýsköpunarnefnd felur forstöðumanni menningarstofu að kanna málið nánar hjá Kvikmyndasafni Íslands og íbúa og leggja tillögu að úrlausn fyrir nefndina.
-
Bæjarstjórn, fundur 282 liður 5.1
Fundargerðin „Menningar- og nýsköpunarnefnd - 20“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 644 liður 10.1
Fundargerðin „Menningar- og nýsköpunarnefnd - 20“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
2020
Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 25 liður 4
Erindi Vina Valhallar er varðar gamla sýningarvél og magnara sem staðsett eru í Félagsheimilinu Valhöll. Lagt fram minnisblað forstöðumanns menningarstofu um afgreiðslu málsins. Menningar- og nýsköpunarnefnd felur forstöðumanni menningarstofu að ganga frá formlegu samþykki við Kvikmyndasafn Íslands vegna sýningarvélarinnar.
-
Bæjarráð, fundur 664 liður 31.4
Fundargerðin „Menningar- og nýsköpunarnefnd - 25“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 292 liður 11.4
Fundargerðin „Menningar- og nýsköpunarnefnd - 25“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.