NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd
Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 20
16. desember 2019, kl. 16:00 til 17:40, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
- Jón Kristinn Arngrímsson, varaformaður
- Elva Bára Indriðadóttir, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 282 liður 5
Enginn tók til máls.
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar nr. 20 frá 16.desember 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.
Bæjarráð, fundur 644 liður 10
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar nr. 20 frá 16.desember 2019, lögð fram til umfjöllunar.
Dagskrá
-
1. Gamla sýningarvélin og önnur tæki í Valhöll Eskifirði
Mál 1911122 Allur ferill málsins
Erindi Vina Valhallar er varðar gamla sýningarvél og magnara sem staðsett eru í Félagsheimilinu Valhöll. Kvikmyndasafn Íslands hefur óskað eftir að fá hluta vélarinnar til varðveislu. Íbúi í sveitarfélaginu hefur jafnframt óskað eftir að fá að gera upp magnara sem einnig er staðsettur í Valhöll og var hluti af kvikmyndasýningarbúnaði hússins. Menningar- og nýsköpunarnefnd felur forstöðumanni menningarstofu að kanna málið nánar hjá Kvikmyndasafni Íslands og íbúa og leggja tillögu að úrlausn fyrir nefndina.
-
2. Beiðni um aukafjárveitingu til bókasafnanna í Fjarðabyggð
Mál 1910186 Allur ferill málsins
Beiðni starfsmanna bókasafna í Fjarðabyggð um 360.000 kr. aukafjárveitingu til safnanna á árinu 2019. Bæjarráð hefur samþykkt beiðni. Lagt fram til kynningar.
-
3. Beiðni um styrk í formi leigkostnaðar - Valhöll
Mál 1912029 Allur ferill málsins
Rauði krossinn Eskifirði óskar eftir styrk á móti leigukostnaði vegna föndur og jóladags sem haldinn var í Valhöll 8.desember. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að veita styrk.
-
4. Fundagerðir Héraðsskjalasafns Austurlands 2019
Mál 1903035 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnarfundar Héraðsskjalasafns Austfirðinga frá 12.nóvember 2019, lögð fram til kynningar.
-
5. 20.fundur sjálfseignarstofnunar um safn Jósafats Hinrikssonar
Mál 1911143 Allur ferill málsins
Lögð fram fundargerð stjórnar sjálfseignarstofnunar um safn Jósafats Hinrikssonar frá 21. nóvember 2019. Samþykkt hefur verið að leggja niður félagasamtökin um safnið og slíta félaginu í kjölfarið.
-
6. Styrkbeiðni frá Leikfélaginu Djúpinu
Mál 1911098 Allur ferill málsins
Beiðni um endurgjaldslaus afnot af Egilsbúð í febrúar og mars 2020 vegna leiksýningar. Menningar- og nýsköpunarnefnd er sammála um að veita styrk sem nemur húsaleigu á umræddu tímabili.
-
7. Stefnumótun í ferðaþjónustu
Mál 1811077 Allur ferill málsins
Upplýsinga- og kynningarfulltrúi gerði grein fyrir stöðu mála vegna vinnu við stefnumótun í ferðamálum. Drög að stefnumótun eru í vinnslu og verða lögð fyrir ferðaþjónustuaðila á næstunni. Tekið á dagskrá nefndarinnar aftur í upphafi nýs árs.
-
8. Samningur milli SSA, menningarstofu og Fjarðabyggðar
Mál 1912093 Allur ferill málsins
Menningar- og nýsköpunarnefnd er sammála um að framlengja ekki núgildandi samningi milli Fjarðabyggðar, SSA og Tónlistarmiðstöðvar Austurlands. Lögð fram til kynningar drög að samningi milli SSA og menningarstofu Fjarðabyggðar. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að nýr samningur verði milli Menningarstofu Fjarðabyggðar og SSA, en óskar eftir að gerðar verði smávægilegar breytingar á efni samnings og felur bæjarráði að ganga frá endanlegum samningi. Menningar- og nýsköpunarnefnd felur formanni nefndarinnar, bæjarstjóra og bæjarritara jafnframt að vinna málið áfram og funda með formanni sóknarnefndar Eskifjarðarkirkju.
Samstarfssamningur milli Tónlistarmiðstöðvar og Fjarðabyggðar, dagsettur 4.desember 2017, átti að endurskoðast fyrir árslok 2018. Þar sem nýr aðili er að taka við hlutverki Tónlistarmiðstöðvar í samningi við mennta- og menningarmálaráðuneytið, um menningarsamstarf á sviði tónlistar, er ekki ástæða til að endurskoða umræddan samstarfssamning. Menningar- og nýsköpunarnefnd er því sammála um að segja upp samstarfssamningi milli Tónlistarmiðstöðvar og Fjarðabyggðar og felur forstöðumanni að tilkynna það til tónlistarmiðstöðvar.
-
9. Safnanefnd - 13
Fundargerð safnanefndar nr. 13 lögð fram og samþykkt samhljóða.
- 9.1 Fyrirhuguð uppbygging Íslenska stríðsárasafnsins.1812130
- 9.2 Tillaga um samstarf og vörslu stríðsminja1911149
- 9.3 Sumaropnun í bókasöfnum Fjarðabyggðar, sumarið 20201911151
- 9.4 Málefni Gauta1911150
- 9.5 20.fundur sjálfseignarstofnunar um safn Jósafats Hinrikssonar1911143