Samningur milli SSA, menningarstofu og Fjarðabyggðar
Mál 1912093 Fyrst á dagskrá 16. desember 2019, síðast 17. desember 2019. 5 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Menningar- og nýsköpunarnefnd.
Í heiti málsins: Menning og söfn
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2019
Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 20 liður 8
Menningar- og nýsköpunarnefnd er sammála um að framlengja ekki núgildandi samningi milli Fjarðabyggðar, SSA og Tónlistarmiðstöðvar Austurlands. Lögð fram til kynningar drög að samningi milli SSA og menningarstofu Fjarðabyggðar. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að nýr samningur verði milli Menningarstofu Fjarðabyggðar og SSA, en óskar eftir að gerðar verði smávægilegar breytingar á efni samnings og felur bæjarráði að ganga frá endanlegum samningi. Menningar- og nýsköpunarnefnd felur formanni nefndarinnar, bæjarstjóra og bæjarritara jafnframt að vinna málið áfram og funda með formanni sóknarnefndar Eskifjarðarkirkju.
Lesa alla bókunina (66 orð til viðbótar)
Samstarfssamningur milli Tónlistarmiðstöðvar og Fjarðabyggðar, dagsettur 4.desember 2017, átti að endurskoðast fyrir árslok 2018. Þar sem nýr aðili er að taka við hlutverki Tónlistarmiðstöðvar í samningi við mennta- og menningarmálaráðuneytið, um menningarsamstarf á sviði tónlistar, er ekki ástæða til að endurskoða umræddan samstarfssamning. Menningar- og nýsköpunarnefnd er því sammála um að segja upp samstarfssamningi milli Tónlistarmiðstöðvar og Fjarðabyggðar og felur forstöðumanni að tilkynna það til tónlistarmiðstöðvar.
-
Bæjarstjórn, fundur 282 liður 1.6
Fundargerðin „Bæjarráð - 644“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 282 liður 5.8
Fundargerðin „Menningar- og nýsköpunarnefnd - 20“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 644 liður 6
Menningar- og nýsköpunarnefnd er sammála um að framlengja ekki núgildandi samningi milli Fjarðabyggðar, SSA og Tónlistarmiðstöðvar Austurlands. Lögð fram til kynningar drög að samningi milli SSA og menningarstofu Fjarðabyggðar. Menningar- og nýsköpunarnefnd hefur samþykkt að nýr samningur verði milli Menningarstofu Fjarðabyggðar og SSA, en óskar eftir að gerðar verði smávægilegar breytingar á efni samnings og felur bæjarráði að ganga frá endanlegum samningi. Menningar- og nýsköpunarnefnd hefur jafnframt falið formanni nefndarinnar, bæjarstjóra og bæjarritara að vinna málið áfram og funda með formanni sóknarnefndar Eskifjarðarkirkju. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samning milli SSA og menningarstofu og felur bæjarstjóra undirritun hans.
-
Bæjarráð, fundur 644 liður 10.8
Fundargerðin „Menningar- og nýsköpunarnefnd - 20“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.