Bæjarstjórn, fundur 282
17. desember 2019, kl. 17:00 til 18:50, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
- Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Sigurður Ólafsson, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
- Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
- Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
Dagskrá
Tölva tengdi dagskrárliði við upptökuna. Tímasetningar geta skeikað.
-
1. Bæjarráð - 644
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:01:24
Til máls tóku Eydís Ásbjörnsdóttir, Ragnar Sigurðsson, Jón Björn Hákonarson, Einar Már Sigurðarson, Rúnar Már Gunnarsson og Dýrunn Pála Skaftadóttir.
Fundargerð bæjarráðs, nr. 644 frá 17. desember 2019, utan liðar 1.5., samþykkt með 9 atkvæðum.
Ragnar Sigurðsson vék af fundi undir lið 1.5.
Enginn tók til máls undir lið 1.5.
Liður 1.5. samþykktur með 8 atkvæðum.
- 1.1 Rafveita Reyðarfjarðar - TRÚNAÐARMÁL19111210:01:52
- 1.2 Aðkoma að sölu á Rafveitu Reyðarfjarðar19121240:02:20
- 1.3 435.mál - tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2020 - 203419120770:13:32
- 1.4 434.mál til umsagnar tillögu til þingsályktunar um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2020 - 20241912076
- 1.5 Aukin framleiðsla Laxa ehf á 3.000 tonnum af laxi í sjókvíum í Reyðarfirði-beiðni um umsögn19121060:08:52
- 1.6 Samningur milli SSA, menningarstofu og Fjarðabyggðar1912093
- 1.7 Hafnarstjórn - 2331912008F
- 1.8 Landbúnaðarnefnd - 251912003F
- 1.9 Öldungaráð - 21911019F
- 1.10 Menningar- og nýsköpunarnefnd - 201912005F
- 1.11 Safnanefnd - 131911021F
- 1.12 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 2491912012F
- 1.13 Barnaverndarfundargerðir 20191902124
-
2. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 249
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:42:28
Enginn tók til máls.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 249 frá 16.desember 2019, utan liðar 2.4., samþykkt með 9 atkvæðum.
Ragnar Sigurðsson vék af fundi undir lið 2.4.
Enginn tók til máls undir lið 2.4.
Liður 2.4. samþykktur með 8 atkvæðum.
- 2.1 Umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar1805134
- 2.2 Lausaganga sauðfjár í Stöðvarfirði1908051
- 2.3 Verkefnastyrkir á vegum umhverfis- og auðlindamála1912105
- 2.4 Aukin framleiðsla Laxa ehf á 3.000 tonnum af laxi í sjókvíum í Reyðarfirði-beiðni um umsögn19121060:42:28
- 2.5 436.mál til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, með síðari breytingum (viðaukar)1912078
- 2.6 735 Dalbraut 4 - Undirskriftarlisti, áskorun um færslu á tengivirki1912049
- 2.7 Trúnaðarmál - erindi frá íbúa1911087
- 2.8 Kvöð um aldursmörk Melgerði 13 Reyðarfirði1911030
- 2.9 730 Mjóeyrarhöfn - Umsókn um stöðuleyfi, starfsmannaaðstaða Eimskips1912110
- 2.10 Beiðni um framlengingu á stöðuleyfi starfsmannabúða að Haga 2019-20201912032
- 2.11 730 Hraun 1 - Umsókn um byggingarleyfi, breyting á gasgeymslu1911081
- 2.12 730 Fagradalsbraut 2 og 4 - umsókn um sameiningu lóða1912035
- 2.13 750 Stekkholt 13 - Beiðni um að taka land í fóstur1912111
- 2.14 735, 740 Dreífbýli - Umsókn um framkvæmdaleyfi, lagning ljósleiðara1911065
- 2.15 735 - Deiliskipulag Skíðasvæðisins í Oddsskarði1703117
- 2.16 755 Deiliskipulag Heyklif1904069
- 2.17 755 Heyklif - breyting á aðalskipulagi, ferðaþjónusta1909021
- 2.18 Landbúnaðarnefnd - 251912003F
-
3. Landbúnaðarnefnd - 25
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:43:24
Enginn tók til máls.
Fundargerð landbúnaðarnefndar nr. 25 frá 5.desember 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.
- 3.1 Afréttarmál - Héraðsfé1608075
- 3.2 Lausaganga sauðfjár í Stöðvarfirði1908051
- 3.3 Endurskoðun fjallskilasamþykktar Múlasýslna1805068
-
4. Hafnarstjórn - 233
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:43:52
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 233 frá 9.desember 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.
- 4.1 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20191901001
- 4.2 Rannsóknir á setþykkt, kóralþörungum og botndýralífi19090160:43:52
- 4.3 Verkefni hafnarsjóðs1908100
- 4.4 Viðburðir tengdir komu skemmtiferðaskipa 20191902068
- 4.5 Umsókn um framkvæmdaleyfi lagnaleiðar milli fiskiðjuvers og fiskimjölsverksmiðju1912047
- 4.6 Framkvæmdir 2019 - yfirlit frá framkvæmdasviði1902078
-
5. Menningar- og nýsköpunarnefnd - 20
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:47:36
Enginn tók til máls.
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar nr. 20 frá 16.desember 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.
- 5.1 Gamla sýningarvélin og önnur tæki í Valhöll Eskifirði1911122
- 5.2 Beiðni um aukafjárveitingu til bókasafnanna í Fjarðabyggð1910186
- 5.3 Beiðni um styrk í formi leigkostnaðar - Valhöll1912029
- 5.4 Fundagerðir Héraðsskjalasafns Austurlands 20191903035
- 5.5 20.fundur sjálfseignarstofnunar um safn Jósafats Hinrikssonar1911143
- 5.6 Styrkbeiðni frá Leikfélaginu Djúpinu1911098
- 5.7 Stefnumótun í ferðaþjónustu1811077
- 5.8 Samningur milli SSA, menningarstofu og Fjarðabyggðar1912093
- 5.9 Safnanefnd - 131911021F
-
6. Safnanefnd - 13
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:48:04
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð safnanefndar nr. 13 frá 27.nóvember 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.
- 6.1 Fyrirhuguð uppbygging Íslenska stríðsárasafnsins.18121300:48:32
- 6.2 Tillaga um samstarf og vörslu stríðsminja19111490:49:56
- 6.3 Sumaropnun í bókasöfnum Fjarðabyggðar, sumarið 20201911151
- 6.4 Málefni Gauta1911150
- 6.5 20.fundur sjálfseignarstofnunar um safn Jósafats Hinrikssonar1911143
-
7. Öldungaráð - 2
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:51:20
Enginn tók til máls.
Fundargerð öldungaráðs nr. 2 frá 12.desember 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.
- 7.1 Heilsuefling 65 ára og eldri í Fjarðabyggð1802096
- 7.2 Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð1808078
- 7.3 Starfsáætlun öldungaráðs 20201912104
-
8. Barnaverndarfundargerðir 2019
Mál 1902124 Allur ferill málsins
Enginn tók til máls.
Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 111 frá 9.desember 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.
-
9. Rafveita Reyðarfjarðar - TRÚNAÐARMÁL
Mál 1911121 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:51:48
Forseti mælti fyrir máli.
Fyrir fundi bæjarstjórnar liggja kaupsamningar að fjárhæð 440 m.kr. ásamt fylgiskjölum 1-4, við RARIK ohf. f.h. Fjarðabyggðar og Rafveitu Reyðarfjarðar, um sölu á dreifikerfi og spennistöðvum Rafveitu Reyðarfjarðar auk búnaðar og tækja sem fylgja eiga. Einnig kaupsamningur að fjárhæð 130 m.kr. ásamt fylgiskjölum 1-7, við Orkusöluna f.h. Fjarðabyggðar og Rafveitu Reyðarfjarðar um sölu á raforkuviðskiptum Rafveitu Reyðarfjarðar, yfirtöku á samningum við Landsvirkjun ásamt rafstöð og stíflu. Kaupsamningar þessir eru háðir fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlits hvað varðar orkusölu veitunnar og samþykki iðnaðarráðherra á yfirtöku RARIK á einkaleyfi Rafveitu Reyðarfjarðar til orkudreifingar.
Eins og bæjarstjórn hefur áður bókað, er Rafveita Reyðarfjarðar síðasta dreifiveita rafmagns hér á landi, í beinni eigu og rekstri á hendi sveitarfélags. Umhverfi og regluverk sem veitum er sett í núgildandi raforkulöggjöf er orðið verulega snúið og umfangsmikið. Um langt árabil hefur Rafveita Reyðarfjarðar framleitt um 5% af því rafmagni sem hún endurselur en rúmlega 95% hafa verið keypt á heildsölumarkaði. Það ásamt auknum kröfum í rekstrarumhverfi, samkeppni á raforkumarkaði og tæknilegum lausnunm, gera sveitarfélaginu erfitt fyrir með áframhaldandi rekstur rafveitunar í núverandi starfsumhverfi. Þetta er ástæða þess að bæjarstjórn samþykkir að selja RARIK og Orkusölunni, Rafveitu Reyðarfjarðar og starfsemi hennar. Báðir þessir aðilar eru sérhæfðir í rekstri rafmagnsveitna og sölu raforku í samkeppnisumhverfi. Þannig geta þeir nýtt stærðarhagkvæmni og veitt sömu þjónustu til viðskiptavina veitunnar til framtíðar. Þá eru RARIK og Orkusalan að fullu í opinberri eigu, með starfsemi á Austurlandi og þannig er tryggt að notendur rafveitunnar sitji við sama borð og aðrir landsmenn hvað varðar öryggi og þjónustu. Þetta telur bæjarstjórn mjög mikilvægt og er grundvallarástæða þess að til þessara fyrirtækja var leitað vegna sölu á rekstri Rafveitu Reyðarfjarðar.
Þá er það vilji bæjarstjórnar að þeir fjármunir sem sveitarfélagið fær í sinn hlut, eftir greiðslu skatta, af sölu þessari renni fyrst og fremst til uppbyggingar Íþróttahúss Reyðarfjarðar ásamt öðrum slíkum mannvirkjum og samfélagslegum verkefnum á Reyðarfirði. Farið verður í áætlunargerð og skipulag vegna þessa eftir að salan hefur gengið í gegn. Jafnframt mun sveitarfélagið beita sér fyrir því í samningum við Orkusöluna að húsnæði rafstöðvar Rafveitu Reyðarfjarðar verði varðveitt og vel við haldið til framtíðar, enda um að ræða menningarleg verðmæti í sögu Reyðarfjarðar.
Haldinn var íbúafundur vegna málsins þann 16.desember sl. á Reyðarfirði og kynntar þar forsendur þessarar ákvörðunar og hvað liggur henni til grundvallar. Á þeim fundi komu fram ýmis rök og spurningar um málið sem svarað var. Bæjarstjórn ítrekar að hún nálgast málið af virðingu fyrir öllum rökum með og á móti sölu Rafveitu Reyðarfjarðar og hefur skilning á því að ekki eru allir sammála sölunni.
Til máls tók Ragnar Sigurðsson, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir, Dýrunn Pála Skaftadóttir, Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson, Rúnar Már Gunnarsson.
Tillaga um sölu Rafveitu Reyðarfjarðar til RARIK og Orkusölunnar borin upp og samþykkt með 7 atkvæðum. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks eru á móti.