Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 644

17. desember 2019, kl. 15:00 til 15:50, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 282 liður 1

    Til máls tóku Eydís Ásbjörnsdóttir, Ragnar Sigurðsson, Jón Björn Hákonarson, Einar Már Sigurðarson, Rúnar Már Gunnarsson og Dýrunn Pála Skaftadóttir.

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 644 frá 17. desember 2019, utan liðar 1.5., samþykkt með 9 atkvæðum.

    Ragnar Sigurðsson vék af fundi undir lið 1.5.

    Enginn tók til máls undir lið 1.5.

    Liður 1.5. samþykktur með 8 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Rafveita Reyðarfjarðar - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1911121 Allur ferill málsins

    Ákvörðun um sölu Rafveitu Reyðarfjarðar í framhaldi af íbúafundi mánudaginn 16.desember. Lagðir fram tíu tölvupóstar sem borist hafa bæjarfulltrúum og bæjarskrifstofu þar sem mótmælt er fyrirhugaðri sölu Rafveitu Reyðarfjarðar. Ákvörðun um sölu Rafveitu Reyðarfjarðar vísað til bæjarstjórnar.

  2. 2. Aðkoma að sölu á Rafveitu Reyðarfjarðar

    Mál 1912124 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Íslenskrar Orkumiðlunar frá 16.desember 2019, þar sem óskað er eftir að fá að gera tilboð í þær eignir Rafveitu Reyðarfjarðar sem ráðgert er að Orkusalan kaupi í tengslum við sölu á Rafveitunni. Bæjarráð getur ekki tekið afstöðu til erindis þessa þar sem það er komið fram eftir að söluverð til Orkusölunnar var ákveðið og birt opinberlega.

  3. 3. 435.mál - tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2020 - 2034

    Mál 1912077 Allur ferill málsins

    Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2020 - 2024, 434. mál og tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2020 - 2034, 435. mál. Undirrituð umsögn berist eigi síðar en 10. janúar. Bæjarráð ítrekar fyrri bókun sína um samgönguáætlun.

  4. 4. 434.mál til umsagnar tillögu til þingsályktunar um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2020 - 2024

    Mál 1912076 Allur ferill málsins

    Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2020 - 2024, 434. mál og tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2020 - 2034, 435. mál. Undirrituð umsögn berist eigi síðar en 10. janúar. Bæjarráð ítrekar fyrri bókun sína um samgönguáætlun.

  5. 5. Aukin framleiðsla Laxa ehf á 3.000 tonnum af laxi í sjókvíum í Reyðarfirði-beiðni um umsögn

    Mál 1912106 Allur ferill málsins

    Lögð fram beiðni Matvælastofnunar um umsögn vegna umsóknar Laxa fiskeldis ehf á 3.000 tonna framleiðslu á lagi í Reyðarfirði. Lagt fram minnisblað atvinnu- og þróunarstjóra, umhverfisstjóra og sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs vegna beiðnar Matvælastofnunar dagsett 13. desember 2019.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, að svar Fjarðabyggðar verði byggt á niðurstöðu minnisblaðs. Bæjarráð samþykkir framlagða umsögn.

  6. 6. Samningur milli SSA, menningarstofu og Fjarðabyggðar

    Mál 1912093 Allur ferill málsins

    Menningar- og nýsköpunarnefnd er sammála um að framlengja ekki núgildandi samningi milli Fjarðabyggðar, SSA og Tónlistarmiðstöðvar Austurlands. Lögð fram til kynningar drög að samningi milli SSA og menningarstofu Fjarðabyggðar. Menningar- og nýsköpunarnefnd hefur samþykkt að nýr samningur verði milli Menningarstofu Fjarðabyggðar og SSA, en óskar eftir að gerðar verði smávægilegar breytingar á efni samnings og felur bæjarráði að ganga frá endanlegum samningi. Menningar- og nýsköpunarnefnd hefur jafnframt falið formanni nefndarinnar, bæjarstjóra og bæjarritara að vinna málið áfram og funda með formanni sóknarnefndar Eskifjarðarkirkju. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samning milli SSA og menningarstofu og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  7. 7. Hafnarstjórn - 233

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 233 frá 9.desember 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 7.1 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20191901001
    2. 7.2 Rannsóknir á setþykkt, kóralþörungum og botndýralífi1909016
    3. 7.3 Verkefni hafnarsjóðs1908100
    4. 7.4 Viðburðir tengdir komu skemmtiferðaskipa 20191902068
    5. 7.5 Umsókn um framkvæmdaleyfi lagnaleiðar milli fiskiðjuvers og fiskimjölsverksmiðju1912047
    6. 7.6 Framkvæmdir 2019 - yfirlit frá framkvæmdasviði1902078
  8. 8. Landbúnaðarnefnd - 25

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð landbúnaðarnefndar nr. 25 frá 5.desember 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 8.1 Afréttarmál - Héraðsfé1608075
    2. 8.2 Lausaganga sauðfjár í Stöðvarfirði1908051
    3. 8.3 Endurskoðun fjallskilasamþykktar Múlasýslna1805068
  9. 9. Öldungaráð - 2

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð öldungaráðs nr. 2 frá 12.desember 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 9.1 Heilsuefling 65 ára og eldri í Fjarðabyggð1802096
    2. 9.2 Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð1808078
    3. 9.3 Starfsáætlun öldungaráðs 20201912104
  10. 10. Menningar- og nýsköpunarnefnd - 20

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar nr. 20 frá 16.desember 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 10.1 Gamla sýningarvélin og önnur tæki í Valhöll Eskifirði1911122
    2. 10.2 Beiðni um aukafjárveitingu til bókasafnanna í Fjarðabyggð1910186
    3. 10.3 Beiðni um styrk í formi leigkostnaðar - Valhöll1912029
    4. 10.4 Fundagerðir Héraðsskjalasafns Austurlands 20191903035
    5. 10.5 20.fundur sjálfseignarstofnunar um safn Jósafats Hinrikssonar1911143
    6. 10.6 Styrkbeiðni frá Leikfélaginu Djúpinu1911098
    7. 10.7 Stefnumótun í ferðaþjónustu1811077
    8. 10.8 Samningur milli SSA, menningarstofu og Fjarðabyggðar1912093
    9. 10.9 Safnanefnd - 131911021F
  11. 11. Safnanefnd - 13

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð safnanefndar nr. 13 frá 27.nóvember 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 11.1 Fyrirhuguð uppbygging Íslenska stríðsárasafnsins.1812130
    2. 11.2 Tillaga um samstarf og vörslu stríðsminja1911149
    3. 11.3 Sumaropnun í bókasöfnum Fjarðabyggðar, sumarið 20201911151
    4. 11.4 Málefni Gauta1911150
    5. 11.5 20.fundur sjálfseignarstofnunar um safn Jósafats Hinrikssonar1911143
  12. 12. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 249

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 249 frá 16.desember 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 12.1 Umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar1805134
    2. 12.2 Lausaganga sauðfjár í Stöðvarfirði1908051
    3. 12.3 Verkefnastyrkir á vegum umhverfis- og auðlindamála1912105
    4. 12.4 Aukin framleiðsla Laxa ehf á 3.000 tonnum af laxi í sjókvíum í Reyðarfirði-beiðni um umsögn1912106
    5. 12.5 436.mál til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, með síðari breytingum (viðaukar)1912078
    6. 12.6 735 Dalbraut 4 - Undirskriftarlisti, áskorun um færslu á tengivirki1912049
    7. 12.7 Trúnaðarmál - erindi frá íbúa1911087
    8. 12.8 Kvöð um aldursmörk Melgerði 13 Reyðarfirði1911030
    9. 12.9 730 Mjóeyrarhöfn - Umsókn um stöðuleyfi, starfsmannaaðstaða Eimskips1912110
    10. 12.10 Beiðni um framlengingu á stöðuleyfi starfsmannabúða að Haga 2019-20201912032
    11. 12.11 730 Hraun 1 - Umsókn um byggingarleyfi, breyting á gasgeymslu1911081
    12. 12.12 730 Fagradalsbraut 2 og 4 - umsókn um sameiningu lóða1912035
    13. 12.13 750 Stekkholt 13 - Beiðni um að taka land í fóstur1912111
    14. 12.14 735, 740 Dreífbýli - Umsókn um framkvæmdaleyfi, lagning ljósleiðara1911065
    15. 12.15 735 - Deiliskipulag Skíðasvæðisins í Oddsskarði1703117
    16. 12.16 755 Deiliskipulag Heyklif1904069
    17. 12.17 755 Heyklif - breyting á aðalskipulagi, ferðaþjónusta1909021
    18. 12.18 Landbúnaðarnefnd - 251912003F
  13. 13. Barnaverndarfundargerðir 2019

    Mál 1902124 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 111 frá 9.desember 2019, lögð fram til umfjöllunar.