750 Stekkholt 13 - Beiðni um að taka land í fóstur
Mál 1912111 Fyrst á dagskrá 16. desember 2019, síðast 17. desember 2019. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2019
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 249 liður 13
Lögð fram beiðni Elsu Sigrúnar Elísdóttur um staðfestingu á eldri heimild til að taka land í fóstur vestan- og norðan við íbúðarhúsalóð hennar við Stekkholt 13 á Fáskrúðsfirði, dagsett 13. desember 2019. Jafnframt er tilkynnt um að 9 fm smáhýsi undanþegið byggingarleyfi sbr. g. lið gr. 2.3.5 í byggingarreglugerð nr. 112/20112 hefur verið byggt á lóðinni.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd staðfestir beiðni um að taka land í fóstur.
-
Bæjarstjórn, fundur 282 liður 2.13
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 249“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 644 liður 12.13
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 249“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.