Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirLandbúnaðarnefnd

Landbúnaðarnefnd, fundur 25

5. desember 2019, kl. 13:00 til 15:00, í Molanum. Fundargerð ritaði Anna Berg Samúelsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sigurður Baldursson, formaður
  • Ármann Elísson, aðalmaður
  • Marsibil Erlendsdóttir, aðalmaður
  • Sigurður Borgar Arnaldsson, aðalmaður
  • Gunnlaugur Ingólfsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Anna Berg Samúelsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

Dagskrá

  1. 1. Afréttarmál - Héraðsfé

    Mál 1608075 Allur ferill málsins

    Afréttarmál, ágangsfé. Lausnir ræddar og lagt til að við gerð Aðalskipulags verði beitarfriðun endurskoðuð með tilliti til búskapar í sveitarféalginu.

  2. 2. Lausaganga sauðfjár í Stöðvarfirði

    Mál 1908051 Allur ferill málsins

    Lausaganga sauðfjár í Stöðvarfirði, erindi landeigenda tekið fyrir af Landbúnaðarnefnd. Nefndin telur að girða þurfi betur fyrir fé í Breiðdal meðfram þjóðveginum og jafnframt að Skógræktin rækti skyldu sína að girða af skógræktarsvæði þar sem það á við. Nefndin felur umhverfisstjóra að koma beiðni til Vegagerðarinnar um gerð vegagirðingar í Breiðdal samkvæmt umræðum á fundinum.

  3. 3. Endurskoðun fjallskilasamþykktar Múlasýslna

    Mál 1805068 Allur ferill málsins

    Ný endurskoðuð fjallskilaamþykkt á starfssvæði sveitarfélaga á Austurlandi lögð fyrir nefndina. Nefndin samþykkir samþykktina án athugasemda.