Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirSafnanefnd

Safnanefnd, fundur 13

27. nóvember 2019, kl. 16:00 til 18:00, í Molanum. Fundargerð ritaði Pétur Sörensson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Sævar Guðjónsson, aðalmaður
  • Sigríður Margrét Guðjónsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Pétur Þór Sörensson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 20 liður 9

    Fundargerð safnanefndar nr. 13 lögð fram og samþykkt samhljóða.

  • Bæjarstjórn, fundur 282 liður 6

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð safnanefndar nr. 13 frá 27.nóvember 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.

  • Bæjarráð, fundur 644 liður 11

    Fundargerð safnanefndar nr. 13 frá 27.nóvember 2019, lögð fram til umfjöllunar.

Dagskrá

  1. 1. Fyrirhuguð uppbygging Íslenska stríðsárasafnsins.

    Mál 1812130 Allur ferill málsins

    Formaður kynnti áform um framþróun og uppbyggingu safnsins.

    Kynnt var vettvangsheimsókn nema í safnaræðum við Háskóla Íslands í tengslum við safnið á árinu 2020.

    Jafnframt samþykkir Safnanefnd að fela forstöðumanni að kanna möguleika með málþing í tilefni að 80 ár eru liðin frá hernámi Íslands árið 2020.

  2. 2. Tillaga um samstarf og vörslu stríðsminja

    Mál 1911149 Allur ferill málsins

    Safnanefnd samþykkir að fela bæjarstjóra og forstöðumanni Safnastofnunar að fara þess á leit við Þjóminjasafnið að Íslenska Stríðsárasafnið fái til sýningar og vörslu þá muni sem þar eru og tengjast stríðsárunum á Íslandi. Íslenska Stríðsárasafnið er eina safnið hérlendis sem sérhæft hefur sig í að segja sögu seinni stríðsáranna frá innlendu sjónarhorni og fer því vel á að það gegni þessu hlutverki fyrir Þjóðminjasafnið. Þá eru á komandi ári áttatíu ár liðin frá hernámi Íslands og vill Íslenska Stríðsárasafnið gera þeim tímamótum skil í sýningu sinni og fá fleiri muni til sýningar sem tengjast þeim.

  3. 3. Sumaropnun í bókasöfnum Fjarðabyggðar, sumarið 2020

    Mál 1911151 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga um fyrirkomulag sumaropnunar bókasafna 2020 ásamt kostnaðaráætlun.

    Nefndin samþykkir tillögurnar og leggur þær fyrir menningar- og nýsköpunarnefnd.

  4. 4. Málefni Gauta

    Mál 1911150 Allur ferill málsins

    Formaður nefndar kynnti áform um endurbætur og lagfæringu á bátnum Gauta og næstu skref í því verkefni. SÚN hefur lofað styrk í verkefnið. Forstöðumanni falið að halda utan um samningagerð um verkið við Guðmund Guðlaugsson, smið.

  5. 5. 20.fundur sjálfseignarstofnunar um safn Jósafats Hinrikssonar

    Mál 1911143 Allur ferill málsins

    Lögð fram til upplýsinga fundargerð um slit safnsins.