Safnanefnd, fundur 12
15. október 2019, kl. 16:00 til 18:00, í Molanum. Fundargerð ritaði Pétur Sörensson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (3)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Magni Þór Harðarson, varaformaður
Starfsmenn
- Pétur Þór Sörensson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 19 liður 6
Fundargerð safnanefndar, nr. 12 frá 15.október 2019, samþykkt samhljóða.
Bæjarráð, fundur 636 liður 42
Fundargerð safnanefndar, nr. 12 frá 15.október 2019, lögð fram til umfjöllunar.
Bæjarstjórn, fundur 278 liður 4
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð safnanefndar, nr. 12 frá 15.október 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun 2020 og fundargerð júní 2019.
Mál 1906116 Allur ferill málsins
Framlögð gögn vegna fjárhagsáætlunar Héraðsskjalasafns Austfirðinga fyrir árið 2020. Ekki hefur verið tekin afstaða til beiðnar héraðsskjalavarðar um fund með nefndinni. Menningar- og nýsköpunarnefnd vísar erindi Héraðsskjalasafns til umfjöllunar í safnanefnd. Safnanefnd mælir með að framlög til Héraðsskjalasafns Austfirðinga verði með sama hætti og á árinu 2019. Ekki er fallist á að framlag vegna starfsmannahalds verði aukið þar sem safnanefnd vinnur að framtíðarsýn fyrir skjalavörslu í sveitarfélaginu.
-
2. Vettvangsferð HÍ á Íslenska stríðsárasafnið.
-
3. Gjaldskrá bókasafna 2020.
Mál 1909150 Allur ferill málsins
Safnanefnd leggur til að notendur bókasafna fái gjaldfrjálsan aðgang gegn framvísun Fjarðabyggðarkortsins með nafni. Með þessu styður safnanefnd við læsissáttmálann sem sveitarfélagið gerði við ríkið og samtökin Heimili og skóli, jafnframt rýmar þetta við læsisstefnu sveitarfélagsins.
-
4. Sumarlokanir í bókasöfnum Fjarðabyggðar, sumarið 2019.
Mál 1906135 Allur ferill málsins
Sumarlokanir í bókasöfnum Fjarðabyggðar. Leggur nefndin til að leitað verði leiða til að auka opnunartíma safnanna yfir sumartímann þannig að opið verið fjóra tíma í viku í hverju hverfi fyrir sig.
-
5. Stjórn Sjóminja- og smiðjusafn Jósafats Hinrikssonar.
Mál 1806163 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar. Safnanefnd felur formanni safnanefndar, Jóni Birni Hákonarsyni og forstöðumanni Safnastofnunar, Pétri Sörenssyni að vinna áfram í málinu.
-
6. Uppbygging bragga við Íslenska stríðsárasafnið, Reyðarfirði.
Mál 1910073 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar. Safnanefnd leggur áherslu á mikilvægi þess að haldið verði áfram með framkvæmdir (endurgerð) bragganna á safnasvæðinu og tekið tillit til þess í fjárhagsáætlunargerð 2020.
-
7. Hönnun á lóð við Íslenska stríðsárasafnið, Reyðarfirði.
Mál 1910074 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar. Safnanefnd leggur mikla áherslu á að farið verði í hönnun og framkvæmdir á lóð safnsins til að bæta aðgengi og upplifun gesta og þess verði gætt í fjárhagsáætlun 2020.