Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirSafnanefnd

Safnanefnd, fundur 11

11. september 2019, kl. 16:00 til 17:15, í Molanum. Fundargerð ritaði Pétur Sörensson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Magni Þór Harðarson, varaformaður
  • Anton Þór Helgason, varamaður

Starfsmenn

  • Pétur Þór Sörensson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 17 liður 7

    Fundargerð safnanefndar, nr. 11 frá 11.september 2019, samþykkt samhljóða.

  • Bæjarráð, fundur 632 liður 14

    Fundargerð safnanefndar, nr. 11 frá 11.september 2019, lögð fram til umfjöllunar.

  • Bæjarstjórn, fundur 276 liður 8

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð safnanefndar, nr. 11 frá 11.september 2019, samþykkt með 8 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 2020

    Mál 1904132 Allur ferill málsins

    Lagður fram rammi að fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 05, Menningarmál á árinu 2020 sem bæjarráð hefur úthlutað nefndinni sbr. meðfylgjandi bréf. Formaður safnanefndar fylgdi bréfinu eftir. Áætlun verði mótuð að útgefnum fjárhagsramma og lögð fyrir nefndina.

    Á fundi safnanefndar 18. júní var farið yfir verkefni og framkvæmdir en eftir er að móta verkefni nánar og áætla kostnað ákveðinna liða. Auk þess þarf að áætla tíma sem starfsmenn Fjarðabyggðar verja til tilgreindra verkefna. Safnanefnd fól forstöðumanni safnastofnunar að yfirfara verkefnalista og leggja að nýju fyrir nefndina. Forstöðumaður Safnastofnunar lagði fram yfirfarinn verkefnalista. Safnanefnd heldur áfram vinnu við áætlunargerð 2020 á næsta fundi.

    Málinu vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2020.

  2. 2. Stefnumótun í safnamálum 2019-2021

    Mál 1811078 Allur ferill málsins

    Lagður fram til kynningar rammi að stefnumótun/aðgerðaráætlun í safnamálum. Formanni safnanefndar og forstöðumanni Safnastofnunar falið að vinna áfram í málinu og leggja fyrir nefndina að nýju.

  3. 3. Málefni Safnaráðs Neskaupstaðar.

    Mál 1812131 Allur ferill málsins

    Formaður safnanefndar og forstöðumaður Safnastofnunar fóru yfir stöðu mála. Safnaráð Neskaupstaðar hefur formlega verið lagt niður og afskráð af fyrirtækjaskrá RSK.

  4. 4. Hernámsdagur - endurvakin

    Mál 1907082 Allur ferill málsins

    Tekið til kynningar bréf Íbúasamtaka Reyðarfjarðar er varðar Hernámsdaginn á Reyðarfirði. Bæjarráðs vísaði bréfinu til menningar- og nýsköpunarnefndar sem fagnar framtaki íbúasamtakanna og felur forstöðumanni safnastofnunar og upplýsingafulltrúa að funda með stjórn samtakanna til undirbúnings. Safnanefnd tekur vel í erindið og fagnar framtaki íbúasamtakanna.