NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd
Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 17
23. september 2019, kl. 17:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Magni Þór Harðarson, formaður
- Jón Kristinn Arngrímsson, varaformaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
- Anna Þórhildur Kristmundsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 632 liður 13
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar, nr. 17 frá 23.september 2019, lögð fram til umfjöllunar.
Bæjarstjórn, fundur 276 liður 6
Fundargerðir menningar- og nýsköpunarnefndar, nr. 17 og nr. 18 frá 23.september og 7.október 2019, teknar til afgreiðslu saman.
Enginn tók til máls.
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar, nr. 17 frá 23.september 2019, samþykkt með 8 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 2020
Mál 1904132 Allur ferill málsins
Umræða um áherslur í fjárhagsáætlun 2020 í málaflokki menningarmála. Skil á fjárhagsáætlun er 18.október. Forstöðumanni stjórnsýslu og menningarstofu falið að yfirfara minnisblað frá 12.júní og leggja fyrir næsta fund nefndarinnar. Næsti fundur nefndarinnar verður haldinn að óbreyttu 7.október nk.
-
2. Fjárhagsáætlun Héraðsskjalasafns Austfirðinga 2020
Mál 1906116 Allur ferill málsins
Framlögð gögn vegna fjárhagsáætlunar Héraðsskjalasafns Austfirðinga fyrir árið 2020. Ósk hefur komið fram frá héraðsskjalaverði um fund með nefndinni. Menningar- og nýsköpunarnefnd vísar erindi Héraðsskjalasafns til umfjöllunar í safnanefnd.
-
3. Umsókn um styrki til menningarmála
Mál 1902099 Allur ferill málsins
Beiðni um að áður samþykktur menningarstyrkur verði veittur miðað við nýjar forsendur til Stelpur rokka. Menningar- og nýsköpunarnefnd getur ekki orðið við beiðni með vísan til 5. og 9. gr. í úthlutunarreglum menningarstyrkja. Nefndin bendir jafnframt styrkumsækjanda á að hægt er að sækja um að nýju ef viðburður verður haldinn á nýju ári.
-
4. Málefni Sköpunarmiðstöðvarinnar 2018 og 2019
Mál 1808065 Allur ferill málsins
Vísað til frekari umfjöllunar nefndarinnar verkefnasamningi vegna stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir Sköpunarmiðstöðin á Stöðvarfirði. Frestað.
-
5. Umsókn um styrki til menningarmála
Mál 1909039 Allur ferill málsins
Jón Knútur Ásmundsson sækir um styrk f.h. hljómsveitarinnar Coney Island Babies. Vísað til úthlutunar menningarstyrkja í upphafi næsta árs.
-
6. Fornleifarannsóknir í Stöð
Mál 1909087 Allur ferill málsins
Beiðni félags áhugafólks um fornleifarannsóknir á Stöðvarfirði um aukið framlag til verkefnisins á árinu 2020. Vísað til vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2020.
-
7. Safnanefnd - 11
Fundargerð safnanefndar, nr. 11 frá 11.september 2019, samþykkt samhljóða.
- 7.1 Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 20201904132
- 7.2 Stefnumótun í safnamálum 2019-20211811078
- 7.3 Málefni Safnaráðs Neskaupstaðar.1812131
- 7.4 Hernámsdagur - endurvakin1907082