NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd
Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 16
9. september 2019, kl. 16:30 til 18:15, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Magni Þór Harðarson, formaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
- Anna Þórhildur Kristmundsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Pétur Þór Sörensson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 275 liður 7
Enginn tók til máls.
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar, nr. 16 frá 9.september 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 2020
Mál 1904132 Allur ferill málsins
Lagður fram rammi að fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 05, Menningarmál á árinu 2020 sem bæjarráð hefur úthlutað nefndinni sbr. meðfylgjandi bréf. Fjármálastjóri fylgdi bréfinu eftir.
Menningar- og nýsköpunarnefnd heldur áfram vinnu við áætlunargerð 2020 á næsta fundi. Áætlun verði mótuð að útgefnum fjárhagsramma og lögð fyrir nefndina.
-
2. Hernámsdagur - endurvakin
Mál 1907082 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarráði til nefndarinnar bréfi Íbúasamtaka Reyðarfjarðar er varðar Hernámsdaginn á Reyðarfirði. Menningar- og nýsköpunarnefnd fagnar framtaki íbúasamtakanna og felur forstöðumanni safnastofnunar og upplýsingafulltrúa að funda með stjórn samtakanna til undirbúnings.
-
3. Beiðni um styrk til að halda pönkhátíð í Egilsbúð
Mál 1908105 Allur ferill málsins
DDT pönkviðburðir óska eftir styrk til að standa straum af kostnaði við að halda pönkhátíð í Egilsbúð Neskaupstað laugardaginn 19. október 2019.
Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að styrkja hátíðina sem nemur húsaleigu og þrifum.
-
4. Málefni Sköpunarmiðstöðvarinnar 2018 og 2019
Mál 1808065 Allur ferill málsins
Umfjöllun um verkefnasamning vegna stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir Sköpunarmiðstöðin á Stöðvarfirði.
Drög kynnt en verða lögð uppfærð fyrir næsta fund nefndarinnar að nýju.