NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd
Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 15
27. júní 2019, kl. 16:30 til 17:35, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Magni Þór Harðarson, formaður
- Elva Bára Indriðadóttir, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
- Anna Þórhildur Kristmundsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 622 liður 14
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 27. júní sl. lögð fram til samþykktar í umboði bæjarstjórnar.
Bæjarráð staðfestir fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar í umboði bæjarstjórnar.
Dagskrá
-
1. Tilnefningar til menningarverðlauna SSA
Mál 1906056 Allur ferill málsins
Óskað er eftir tilnefningum til menningarverðlauna SSA fyrir 15.ágúst.
Menningar- og nýsköpunarnefnd tilnefndir bæjarhátíðina Franska Daga á Fáskrúðsfirði fyrir að hafa auðgað menningarlíf og ræktað tengsl við vinabæi Fjarðabyggðar í Frakklandi.
-
2. Stefnumótun í ferðaþjónustu
Mál 1811077 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar minnisblað upplýsinga- og kynningafulltrúa um stöðu mála varðandi mótun ferðamálastefnu Fjarðabyggðar.
-
3. Könnun á tómstundariðkun barna í Fjarðabyggð
Mál 1906023 Allur ferill málsins
Íþrótta- og tómstundafulltrúi hefur lagt fyrir könnun um tómstundaiðkun barna í 5.-10. bekk í Fjarðabyggð. Frumniðurstöðum er vísað til kynningar í íþrótta- og tómstundanefnd, fræðslunefnd, félagsmálanefnd og menningar- og nýsköpunarnefnd.
-
4. Heiti á torgi við Stekkjargötu og Hólsgötu í Neskaupstað
Mál 1906101 Allur ferill málsins
Kvenfélagið Nanna leggur til að torg á horni Stekkjargötu og Hólsgötu í Neskaupstað verði nefnt Önnutorg til heiðurs Önnu S. Jónsdóttur sem sat fyrst kvenna í bæjarstjórn Neskaupstaðar 1950 til 1954. Bæjarráð tók vel í erindið og vísaði því til eigna-,skipulags- og umhverfisnefndar og til kynningar í menningar- og nýsköpunarnefnd. Menningar- og nýsköpunarnefnd líst vel á framtakið og hvetur bæjarráð til að láta kanna nánar og kynna, sögu kvenna í sveitarstjórnum í þeim bæjarhlutum sem Fjarðabyggð samanstendur af.
-
5. Málefni Tónlistarmiðstöðvar Austurlands 2018
Mál 1803046 Allur ferill málsins
Formaður fór yfir málefni tónlistarmiðstöðvar.
-
6. Umsókn um styrk til greiðslu á fasteignaskatti
Mál 1906117 Allur ferill málsins
Framlögð umsókn Listasmiðju Norðfjarðar um styrkveitingu til greiðslu fasteignaskatts vegna Þiljuvalla 11 í Neskaupstað á grunni 1. gr. í reglum um styrkveitingar til greiðslu fasteignaskatts. Fasteignaskattur ársins 2019 er að upphæð kr. 355.575. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að veita styrk.
-
7. Fjárhagsáætlun 2020 og fundargerð júní 2019
Mál 1906116 Allur ferill málsins
Framlögð gögn vegna fjárhagsáætlunar Héraðsskjalasafn Austfirðinga fyrir árið 2020. Vísað til forstöðumanns Safnastofnunar til yfirferðar. Tekið fyrir á næsta fundi nefndarinnar.
-
8. Neistaflug 2019
Mál 1906132 Allur ferill málsins
Óskað er eftir afnotum af Egilsbúð í Neskaupstað í tengslum við Neistaflug, frá miðvikudegi til mánudags um verslunarmannahelgina 31.júlí til 5. ágúst án endurgjalds og án skerðinga á öðrum styrkjum sem koma frá Fjarðabyggð. Einnig er óskað eftir afnotum af gistirými hússins á sömu forsendum. Menningar- og nýsköpunarnefnd heimilar endurgjaldslaus afnot af Egilsbúð til viðburðahalds á Neistaflugi, en getur ekki orðið við beiðni um afnot af gistirými í húsnæði Egilsbúðar.
-
9. Safnanefnd - 10
Fundargerð safnanefndar samþykkt samhljóða.
- 9.1 Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 20201904132
- 9.2 Málefni bókasafna1906082