NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd
Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 14
11. júní 2019, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Magni Þór Harðarson, formaður
- Jón Kristinn Arngrímsson, varaformaður
- Elva Bára Indriðadóttir, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
- Anna Þórhildur Kristmundsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 620 liður 20
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar nr. 14 frá 11.júní 2019, lögð fram til umfjöllunar.
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 2020
Mál 1904132 Allur ferill málsins
Farið var yfir áherslur menningar- og nýsköpunarnefndar í starfs- og fjárhagsáætlun ársins 2020. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir framkomnar áherslur Menningarstofu Fjarðabyggðar í málaflokknum og þær áherslur er snúa að nýsköpun og ferðaþjónustu. Nefndin felur jafnframt forstöðumanni stjórnsýslu að senda tillögu að starfsáætlun til fjármálasviðs og bæjarráðs. Áherslur Safnastofnunar Fjarðabyggðar bíða enn um sinn yfirferðar safnanefndar.