Bæjarráð, fundur 620
18. júní 2019, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
Starfsmenn
- Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Dagskrá
-
1. Rekstur málaflokka 2019 TRÚNAÐARMÁL
Mál 1904033 Allur ferill málsins
Framlagt yfirlit yfir rekstur málaflokka og fjárfestingar janúar - apríl 2019 og skatttekjur og launakostnað janúar - maí 2019. Einnig framlögð deildayfirlit fyrir janúar - apríl 2019. Gögn eru lögð fram sem trúnaðarmál.
-
2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2020 - 2023
Mál 1904128 Allur ferill málsins
Framlögð samantekt fjármálastjóra vegna tillagna frá nefndum og sviðsstjórum um breytingar við grunn fjárhagsáætlunar ársins 2020 og fjárfestingaráætlun næstu 4 ára.
Vísað til vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2020. Gögn eru lagð fram sem trúnaðarmál.
-
3. Starfs- og fjárhagsáætlun bæjaráðs 2019 fyrir málaflokka 21, 13, 07 og 03
Mál 1904138 Allur ferill málsins
Lagðar fram greinargerðir um breytingar á rekstri við fjárhagsáætlunargerð vegna ársins 2020.
Vísað til vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2020. Gögn eru lagð fram sem trúnaðarmál.
-
4. Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 2020
Mál 1904132 Allur ferill málsins
Minnisblað um áherslur menningar- og nýsköpunarnefndar lagt fram.
Vísað til vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2020. Gögn eru lagð fram sem trúnaðarmál.
-
5. Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar í A hluta 2020
Mál 1904130 Allur ferill málsins
Tillögur eigna- skipulags- og umhverfisnefndar vegna umhverfis- og skipulagssviðs vegna fjárhagsáætlunar 2020, auk hugmynda um tillögur að breytingum á rekstri framkvæmdasviða 2020, viðhaldsverkefnum í A hluta og fjáfestingum í A hluta 2020 - 2023.
Vísað til vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2020. Gögn eru lagð fram sem trúnaðarmál.
-
6. Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar fyrir B hluta stofnanir
Mál 1904131 Allur ferill málsins
Lagðar fram hugmyndir um viðhald og framkvæmdir í veitufyrirtækjum 2020.
Vísað til vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2020. Gögn eru lagð fram sem trúnaðarmál.
-
7. Starfs- og fjárhagsáætlun Hafnarstjórnar 2020
Mál 1904137 Allur ferill málsins
Drög að fjárfestingaráætlun Hafnarsjóðs 2020 - 2023.
Vísað til vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2020. Gögn eru lagð fram sem trúnaðarmál.
-
8. Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2020
Mál 1904135 Allur ferill málsins
Lögð fram þrjú minnisblöð frá fundi félagsmálanefndar 20.maí 2019.
Vísað til vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2020. Gögn eru lagð fram sem trúnaðarmál.
-
9. Starfs- og fjárhagsáætlun barnaverndarnefndar 2020
Mál 1904134 Allur ferill málsins
Tillögur frá barnaverndarnefnd vegna fjárhagsáætlunar 2020.
Vísað til vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2020. Gögn eru lagð fram sem trúnaðarmál.
-
10. Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2020
Mál 1904133 Allur ferill málsins
Tillögur fræðslunefndar vegna fjárhagsáætlunar 2020.
Vísað til vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2020. Gögn eru lagð fram sem trúnaðarmál.
-
11. Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstundanefndar 2020
Mál 1904136 Allur ferill málsins
Tillögur Íþrótta- og tómstundanefndar vegna fjárhagsáætlunar 2020.
Vísað til vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2020. Gögn eru lagð fram sem trúnaðarmál.
-
12. Búfjárhald og búfjársamþykkt
Mál 1811014 Allur ferill málsins
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs búfjársamþykkt Fjarðabyggðar. Nefndin samþykkir jafnframt að auglýst verði sérstaklega að bann við lausagöngu stórgripa taki gildi í Fjarðabyggð við samþykkt búfjársamþykktar og eigendur stórgripa verði þannig upplýstir um ábyrgð sína hvað varðar tryggingar.
Bæjarráð vísar búfjársamþykkt til afgreiðslu bæjarstjórnar.
-
13. Aðalfundur fulltrúaráðs EBÍ 20.september
Mál 1906079 Allur ferill málsins
Aðalfundur fulltrúaráðs Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands, verður haldinn föstudaginn 20.september nk. á Hótel Natura.
Bæjarráð samþykkir að Jón Björn Hákonarson fari með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinn.
-
14. Haustþing 2019 11.-12.október
Mál 1906055 Allur ferill málsins
Framlagður til kynningar tölvupóstur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi um að haustþing SSA fari fram á Borgarfirði Eystri 11.-12.október nk.
-
15. Boðun aukalandsþings sambandsins 2019
Mál 1906066 Allur ferill málsins
Boðað er til aukalandsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga 6. september 2019 á Grand hótel Reykjavík til að ræða tillögu að stefnumótandi áætlun ríkisins í málefnum sveitarfélaga.
Bæjarráð Fjarðabyggðar ásamt bæjarstjóra sækja landsþingið.
-
16. Ljósleiðaralagning 2018 - Ísland ljóstengt Breiðdalur
Mál 1807140 Allur ferill málsins
Framlagt bréf fyrrum fulltrúa í sveitarstjórn Breiðdalshrepps um ráðstöfun innviðaframlaga í dreifbýli að fjárhæð 6.250.000 kr.
Í ljósi yfirlýsingar sem fyrrum fulltrúar sveitarstjórnar Breiðdalshrepps hafa undirritað virðir bæjarráð Fjarðabyggðar vilja þeirra um mikilvægi þess að innviðaframlagi að fjárhæð 6.250.000 kr. verði ráðstafað til innviðauppbyggingar í dreifbýli í Breiðdal. Mun því framlag verða greitt beint til þeirra aðila sem kjörnir fulltrúar ákváðu að beina því til. Sé vilji ábúenda til að nýta áðurgreindan styrk til greiðslu tengigjalda vegna ljósleiðara í dreifbýli Breiðdals þá sé það heimilt.
-
17. Stjórnarfundir SvAust 2019
Mál 1906054 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar SvAust frá 8. maí 2019 lögð fram til kynningar. Jafnframt er ársreikningur fyrir 2018 lagður fram til upplýsinga.
-
18. Fundagerðir stjórnar SSA 2019
Mál 1903047 Allur ferill málsins
Lagðar fram til kynningar fundargerð stjórnarfundar SSA nr. 12 frá 29.apríl 2019 og fundargerð fyrsta fundar nýrrar stjórnar frá 7.maí 2019.
-
19. Hafnarstjórn - 223
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 223 frá 11. júní 2019, lögð fram til umfjöllunar.
-
20. Menningar- og nýsköpunarnefnd - 14
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar nr. 14 frá 11.júní 2019, lögð fram til umfjöllunar.