Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 621

24. júní 2019, kl. 08:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Samningur við Salthúsmarkað um rekstur handverksmarkaðar á Stöðvarfirði

    Mál 1510142 Allur ferill málsins

    Framlagður endurnýjaður samningur við Salthúsmarkaðinn Stöðvarfirði um rekstur þjónustumiðstöðvar lagður fram til samþykktar.

    Bæjarráð samþykkir samning og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  2. 2. Gjafasjóðir Hildar Eiríksdóttur og Jón Einars Einarssonar

    Mál 1812112 Allur ferill málsins

    Greinargerð fjármálastjóra lögð fram um tvo gjafasjóði sem voru í vörslu Breiðdalshrepps og ráðstöfun þeirra.

    Bæjarráð samþykkir að gjafasjóðirnir verði nýttir í þágu dagvistar aldraðra í Breiðdal en þeir voru gefnir með því fororði að þeir nýttust til þjónustu við aldraða í Breiðdal. Gjafasjóður Hildar Eiríksdóttur verði nýttur til endurnýjunar á bifreið sem þjónustar dagvistina í Breiðdal. Gjafasjóður Jóns E. Einarssonar verði nýttur til uppbyggingar nýrrar dagvistar fyrir aldraða í Breiðdal.

    Bæjarráð vísar tillögu sinni til staðfestingar bæjarstjórnar.

  3. 3. Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð

    Mál 1808078 Allur ferill málsins

    Vísað frá fræðslunefnd og íþrótta- og tómstundanefnd til afgreiðslu bæjarráðs, fræðslu- og frístundastefnu sem gert er ráð fyrir að gildi til næstu þriggja ára. Íþrótta- og tómstundafulltrúi og fræðslustjóri unnu með starfshóp sem hélt sex fundi og fékk sérfræðinga að vinnunni.

    Bæjarráð samþykkir stefnuna ásamt áherslum með lítilsháttar breytingum og vísar hvorutveggja til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  4. 4. Heiti á torgi við Stekkjargötu og Hólsgötu í Neskaupstað

    Mál 1906101 Allur ferill málsins

    Kvenfélagið Nanna leggur til að torg á horni Stekkjargötu og Hólsgötu í Lagt fram erindi Kvenfélagsins Nönnu sem leggur til að torg á horni Stekkjargötu og Hólsgötu í Neskaupstað, verði nefnt Önnutorg til heiðurs Önnu S. Jónsdóttur sem sat fyrst kvenna í bæjarstjórn Neskaupstaðar 1950 til 1954.

    Bæjarráð tekur vel í erindið og vísar því til eigna-,skipulags- og umhverfisnefndar og til kynningar í menningar- og nýsköpunarnefnd.

  5. 5. Málefni Sköpunarmiðstöðvarinnar 2018 og 2019

    Mál 1808065 Allur ferill málsins

    Umfjöllun um verkefnasamning vegna stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir Sköpunarmiðstöðin á Stöðvarfirði. Samning þarf að gera um tilraunaverkefni um byggðaþróun á sviði menningar, menntunar og atvinnusköpunar milli Fjarðabyggðar og Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.

    Bæjarráð samþykkir að hækka framlag sveitarfélagsins sem hlutfall af heildarframlagi til samræmis við samkomulag um fjárveitingu ríkis og því verði dreift til næstu þriggja ára. Vísað til fjárhagsáætlunargerðar. Forstöðumanni menningarstofu er falið að vinna drög að samstarfssamningi milli Sköpunarmiðstöðvar og Fjarðabyggðar og leggja fyrir menningar- og nýsköpunarnefnd og fræðslunefnd.

  6. 6. Landshlutaáætlanir í skógrækt og lykilhlutverk sveitarfélaga í loftslagsmálum

    Mál 1906106 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Skógræktarinnar um landshlutaáætlanir í skógrækt og lykilhlutverk sveitarfélaga í loftslagsmálum, framtíðarnotkun lands og fyrirkomulag byggðar. Óskað er fundar með sveitarstjórnum til að fjalla um skógrækt og skógræktaráform í aðalskipulagi sveitarfélaga.

    Bæjarráð felur umhverfisstjóra að koma á fundi með fulltrúum Skógræktarinnar. Erindi er jafnframt vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

  7. 7. Skipulag og framtíð skógræktar í Reyðarfirði

    Mál 1704016 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd styrkbeiðni Skógræktarfélags Reyðarfjarðar til gerðar stíga og slóða í samræmi við beiðninina.

    Bæjarráð vísar beiðni um fjárveitingu til nánari skoðunar umhverfis- og skipulagssviðs í tengslum við skipulag og áætlanir um uppbyggingar göngustíga í Fjarðabyggð og hvort áformin falli að áætlunum um uppbyggingu göngustíga.

  8. 8. Reglur um skilti í Fjarðabyggð

    Mál 1905150 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að reglum fyrir skilti í Fjarðabyggð.

    Bæjarráð vísar til afgreiðslu bæjarstjórnar reglum um skilti í Fjarðabyggð.

  9. 9. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 236

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 20. júní sl. lögð fram til umfjöllunar.

    1. 9.1 Undirskriftarlisti vegna frestunar á stækkun húsnæðis skólans1906040
    2. 9.2 Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar fyrir B hluta stofnanir1904131
    3. 9.3 Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar í A hluta 20201904130
    4. 9.4 Ofanflóðavarnir Urðarbotn og Sniðgil - Neskaupstað1810024
    5. 9.5 Bygging vatnsgeymis á Fáskrúðsfirði1904120
    6. 9.6 Ljósleiðaralagning Eskifirði og Neskaupstað 2019 - útboð1905165
    7. 9.7 Göngustígar í Fjarðabyggð1606061
    8. 9.8 Eignir Eskju við Strandgötu1811177
    9. 9.9 Reglur um skilti í Fjarðabyggð1905150
    10. 9.10 Álfabrekka 8 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi1906025
    11. 9.11 Framleiðsluaukning Laxa fiskeldis um 4.000 tonn - Reyðarfirði og Eskifirði - beiðni um umsögn1906067
    12. 9.12 Skipulag og framtíð skógræktar í Reyðarfirði1704016
    13. 9.13 730 Kollaleira og Hólmar - Framkvæmdaleyfi, endurheimt votlendis1906086
    14. 9.14 740 Naustahvammur 49 - Framkvæmdaleyfi1906053
    15. 9.15 730 Hólmar, beiðni um friðlýsingu æðarvarps1906007
    16. 9.16 Leigulönd í Fjarðabyggð 2019 -1902159