Framleiðsluaukning Laxa fiskeldis um 4.000 tonn - Reyðarfirði og Eskifirði - beiðni um umsögn
Mál 1906067 Fyrst á dagskrá 18. júní 2019, síðast 15. ágúst 2019. 8 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, Hafnarstjórn.
Í heiti málsins: EskifjörðurReyðarfjörðurSjávarútvegur og fiskeldi
Í hnotskurn
Skipulagsstofnun óskaði eftir umsögn Fjarðabyggðar um tillögu Laxa fiskeldis að matsáætlun vegna framleiðsluaukningar um 4.000 tonn af laxi í sjókvíum í Reyðarfirði, samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum1. Bæjarráð staðfesti umsögn sveitarfélagsins og fól sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að senda hana til Skipulagsstofnunar5, og bæjarstjórn staðfesti fundargerð bæjarráðs8.
Staðan
Bæjarráð staðfesti umsögn Fjarðabyggðar og fól sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að senda hana til Skipulagsstofnunar5.
Gervigreind skrifaði þetta yfirlit upp úr fundargerðum og upptökum. Hver tala vísar í færslu í ferlinum hér fyrir neðan. Þar er heimildin sjálf. Svona er yfirlitið unnið.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2019
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 236 liður 11
Nefndin fól bæjarstjóra, atvinnu- og þróunarstjóra og umhverfis- og skipulagssviði að vinna umsögn og leggja hana fyrir nefndina að nýju, vísaði málinu einnig til umfjöllunar í hafnarstjórn og fól umhverfis- og skipulagssviði að óska eftir lengri umsagnarfresti en til 25. júní 2019.
Endursögn gervigreindar
Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar, dagsett 5. júní 2019, þar sem óskað er eftir umsögn Fjarðabyggðar á tillögu Laxa fiskeldis að matsáætlun vegna framleiðsluaukningar um 4.000 tonn af laxi í sjókvíum í Reyðarfirði skv. 8. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000. Umsögn óskarst send Skipulagsstofnun fyrir 25. júní 2019.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur bæjarstjóra, atvinnu- og þróunarstjóra og umhverfis- og skipulagssviði að vinna umsögn vegna matsáætlunarinnar og leggja fyrir nefndina að nýju. Þá skal matsáætlunin og umsögnin lögð fram til umfjöllunar í hafnarstjórn. Umhverfis- og skipulagssviði er jafnframt falið að óska eftir lengingu á umsagnartíma.
-
Bæjarráð, fundur 621 liður 9.11
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 236“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 237 liður 14
Nefndin fór yfir tillögu starfsmanna að umsögn, fól sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að gera breytingar í samræmi við yfirferðina og vísaði umsögninni til hafnarstjórnar og bæjarráðs.
Endursögn gervigreindar
Lagt fram að nýju bréf Skipulagsstofnunar, dagsett 5. júní 2019, þar sem óskað er eftir umsögn Fjarðabyggðar á tillögu Laxa fiskeldis að matsáætlun vegna framleiðsluaukningar á 4.000 tonnum af laxi í sjókvíum í Reyðarfirði skv. 8. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000. Lögð fram tillaga umhverfisstjóra, atvinnu- og þróunarstóra og sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að umsöng Fjarðabyggðar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fór yfir umsóknina og felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að gera breytingar í samræmi við yfirferð. Umsögninni er vísað til hafnarstjórnar til umfjöllunar og til bæjarráðs.
-
Hafnarstjórn, fundur 225 liður 3
Hafnarstjórn fól hafnarstjóra að gera breytingar á umsögninni í samræmi við umræður á fundinum.
Endursögn gervigreindar
Lagt fram að nýju bréf Skipulagsstofnunar, dagsett 5. júní 2019, þar sem óskað er eftir umsögn Fjarðabyggðar á tillögu Laxa fiskeldis að matsáætlun vegna framleiðsluaukningar á 4.000 tonnum af laxi í sjókvíum í Reyðarfirði skv. 8. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000. Lögð fram tillaga umhverfisstjóra, atvinnu- og þróunarstóra og sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að umsöng Fjarðabyggðar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fór yfir umsóknina og felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að gera breytingar í samræmi við yfirferð. Umsögninni er vísað til hafnarstjórnar til umfjöllunar og til bæjarráðs.
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að vinna breytingar á umsögn í samræmi við umræður á fundinum.
-
Bæjarráð, fundur 623 liður 9
Bæjarráð staðfesti uppfærða umsögn og fól sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að senda hana til Skipulagsstofnunar.
Endursögn gervigreindar
Vísað frá eigna- skipulags- og umhverfisnefnd og hafnarstjórn uppfærðri tillögu umhverfisstjóra, atvinnu- og þróunarstjóra og sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs, að umsögn Fjarðabyggðar vegna beiðnar Skipulagsstofnunar frá 5. júní sl. um tillögu Laxa fiskeldis að matsáætlun um 4.000 tonna framleiðsluaukningu á laxi í sjókvíum í Reyðarfirði skv. 8. gr. laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.
Bæjarráð staðfestir framlagða umsögn og felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að senda umsögnina til Skipulagsstofnunar.
-
Bæjarráð, fundur 623 liður 11.14
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 237“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 623 liður 12.3
Fundargerðin „Hafnarstjórn - 225“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 272 liður 2.9
Fundargerðin „Bæjarráð - 623“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.