Hafnarstjórn, fundur 225
5. júlí 2019, kl. 11:00 til 12:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
- Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
- Sævar Guðjónsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
- Marinó Stefánsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 623 liður 12
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 225 frá 5.júlí 2019, staðfest í umboði bæjarstjórnar.
Dagskrá
-
1. Efnistaka í Norðfjarðarflóa - Hellisfjörður
Mál 1612118 Allur ferill málsins
Lögð fram drög umhverfisstjóra á tillögu að rannsóknum á seti og lífríki í Norðfjarðarflóa og í Reyðarfirði. Þrjár tillögur settar fram út frá fýsileika svæðanna og kröfum til rannsókna. Hafnarstjórn samþykktir að fara í rannsóknir á þeim stöðum sem fýsileg þykja til efnistöku og felur hafnarstjóra útfærslu málsins.
-
2. Framleiðsla Laxa fiskeldis á 3.800 tonnum af laxi í sjókvíum í Fáskrúðsfirði - beiðni um umsögn
Mál 1905155 Allur ferill málsins
Lagt fram að nýju bréf Skipulagsstofnunar, dagsett 24. maí 2019, þar sem óskað er eftir umsögn Fjarðabyggðar á tillögu Laxa fiskeldis að matsáætlun um framleiðslu á 3.800 tonnum af laxi í sjókvíum í Fáskrúðsfirði skv. 8. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000. Lögð fram tillaga umhverfisstjóra, atvinnu- og þróunarstóra og sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að umsögn Fjarðabyggðar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fór yfir umsóknina og felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að gera breytingar í samræmi við yfirferð. Umsögninni er vísað til hafnarstjórnar til umfjöllunar og til bæjarráðs. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að vinna breytingar á umsögn í samræmi við umræður á fundinum
-
3. Framleiðsluaukning Laxa fiskeldis um 4.000 tonn - Reyðarfirði og Eskifirði - beiðni um umsögn
Mál 1906067 Allur ferill málsins
Lagt fram að nýju bréf Skipulagsstofnunar, dagsett 5. júní 2019, þar sem óskað er eftir umsögn Fjarðabyggðar á tillögu Laxa fiskeldis að matsáætlun vegna framleiðsluaukningar á 4.000 tonnum af laxi í sjókvíum í Reyðarfirði skv. 8. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000. Lögð fram tillaga umhverfisstjóra, atvinnu- og þróunarstóra og sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að umsöng Fjarðabyggðar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fór yfir umsóknina og felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að gera breytingar í samræmi við yfirferð. Umsögninni er vísað til hafnarstjórnar til umfjöllunar og til bæjarráðs.
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að vinna breytingar á umsögn í samræmi við umræður á fundinum.