Hafnarstjórn, fundur 226
26. ágúst 2019, kl. 11:30 til 13:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
- Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
- Marinó Stefánsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 628 liður 8
Fundargerð hafnarstjórnar frá 26. ágúst sl. lögð fram til umræðu
Bæjarstjórn, fundur 274 liður 3
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 26. ágúst staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Sjávarútvegssýningin 2019
Mál 1908043 Allur ferill málsins
Sjávarútvegssýningin 2019 verður haldin 25. - 27.september í Laugardalshöll. Fjarðabyggðarhafnir taka þátt í sýningunni. Farið yfir utanumhald og kostnað ásamt þátttöku hafnarstjórnar í sýningunni. Verkefnastjóra hafna falið utanumhald verkefnisins.
-
2. Hafnarreglugerð - endurskoðun 2019
Mál 1902165 Allur ferill málsins
Umræða um endurskoðun á hafnarreglugerð fyrir Fjarðabyggðarhafnir. M.a. þarf að huga að breytingu á skilgreindum mörkum hafnarsvæða, sbr. lið 1.2. - Takmörk á sjó - í núverandi reglugerð. Hafnarstjórn samþykkir að breyta mörkum hafnarsvæða og felur hafnarstjóra að vinna að breytingunum og leggja fyrir hafnarstjórn að nýju.
-
3. Neistaflug styrkur - 2019
Mál 1907083 Allur ferill málsins
Beiðni um styrk frá hafnarsjóði vegna framkvæmdar á bæjarhátíðinni Neistaflugi Neskaupstað. Hafnarstjórn samþykkir að veita 250.000 kr styrk.
-
4. Styrkumsókn - útsæði
Mál 1907070 Allur ferill málsins
Beiðni um styrk frá hafnarsjóði vegna framkvæmdar á bæjarhátíðinni Útsæði Eskifirði. Hafnarstjórn samþykkir að veita 250.000 kr styrk.