Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 228

1. október 2019, kl. 11:30 til 13:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
  • Kristinn Grétar Rögnvarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Marinó Stefánsson, embættismaður
  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 276 liður 5

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 228 frá 1.október 2019, samþykkt með 8 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Innviðagreining Fjarðabyggð 2019

    Mál 1904053 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn telur tilboð Austurbrúar betur fallið að þeim kröfum sem settar voru fram.

    Atvinnu- og þróunarstjóra í samstarfi við bæjarstjóra falið að ganga til saminga við Austurbrú og falið utanumhald verkefnisins.

  2. 2. Beiðni um styrk vegna Hernámsdagsins 2020

    Mál 1909078 Allur ferill málsins

    Beiðni um 250.000 kr styrk frá hafnarsjóði til eflingar Hernámsdagsins árið 2020 á Reyðarfirði.

    Hafnarstjóra falið að ræða við umsækjanda.

  3. 3. Olíutankur Skeljungs við Hafnargötu Eskifirði

    Mál 1909056 Allur ferill málsins

    Umsögn HAUST vegna olíugeymis við Eskifjarðarhöfn er lögð fram. Verkefnastjóra hafna og sviðsstjóra framkvæmdasviðs falið að vinna málið og leggja það fyrir að nýju.

  4. 4. Klappir PortMaster hugbúnaður fyrir hafnir

    Mál 1909148 Allur ferill málsins

    Hafnasamband Íslands hefur gert rammasamning við Klappir Grænar Lausnir hf. um hugbúnaðarlausnir Klappa. Nokkrar hafnir hafa þegar skrifað undir samning um að taka upp hugbúnaðarlausnina Klappir PortMaster. Tekið fyrir hvort Fjarðabyggðarhafnir skuli skrifa undir slíkan samning.

    Verkefnastjóra hafna falið að skoða samninginn og hvernig hann fellur að starfsemi Fjarðabyggðarhafna og leggja fyrir nefndina að nýju.

  5. 5. Umsögn vegna endurnýjunar hafnsögumannsskírteinis

    Mál 1909084 Allur ferill málsins

    Umsögn vegna endurnýjunar hafnsöguskírteinis Þórðar Sveinssonar sem mun sinna afleysingum á hafnsögubát Fjarðabyggðarhafna lögð fram. Hafnarstjórn samþykkir umsögnina.

  6. 6. Smábátahöfn Stöðvarfirði - stækkun

    Mál 1704061 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar minnisblað um mismunandi kosti varðandi hafnarframkvæmdir á Stöðvarfirði.

    Verkefnastjóra hafna og sviðsstjóra framkvæmdasviðs falið að vinna málið áfram.

  7. 7. Starfs- og fjárhagsáætlun Hafnarstjórnar 2020

    Mál 1904137 Allur ferill málsins

    Fjárfestingaráætlun og launaáætlun ársins 2020 lögð fyrir. Hafnarstjórn fór yfir og ræddi áætlanir og verkefnastjóra hafna falið að vinna áfram í fjárhagsáætlun í samræmi við umræður á fundinum.