Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2019

Ljósleiðaralagning Eskifirði og Neskaupstað 2019 - útboð

Mál 1905165 Fyrst á dagskrá 3. júní 2019, síðast 24. júní 2019. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: EskifjörðurNeskaupstaður og Norðfjörður

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2019

    Bæjarráð, fundur 617 liður 3

    Lagðar fram niðurstöður útboðs til lagningu ljósleiðara um botn Eskifjarðar og Norðfjarðarsveitar. Tveir aðilar buðu í verkið. Lægstbjóðandi er Míla og talið mjög raunhæft og því er lagt til að farið verði í viðræður við Mílu um framkvæmdina.

    Bæjarráð samþykkir að tilboðinu sé tekið og felur bæjarstjóra undirritun verksamnings. Sviðsstjóra framkvæmdasviðs falið að yfirfara kostnað ljósleiðaralagningar á árinu 2019 í samráði við fjármálastjóra og leggja fyrir bæjarráð. Vísað til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

  2. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 236 liður 6

    Bæjarráð hefur samþykkt að taka tilboði í lagningu ljósleiðara um botn Eskifjarðar og Norðfjarðarsveitar. Sviðsstjóra framkvæmdasviðs falið að yfirfara kostnað ljósleiðaralagningar á árinu 2019 í samráði við fjármálastjóra og leggja fyrir bæjarráð og jafnframt til kynningar í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.

  3. Bæjarráð, fundur 621 liður 9.6

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 236“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is