Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 617

3. júní 2019, kl. 09:15 til 11:00, Sólbrekku í Mjóafirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Hús frístunda

    Mál 1901070 Allur ferill málsins

    Framhald umræðu frá síðasta fundi bæjarráðs. Farið yfir stöðu verkefnisins Hús Frístundanna. Framkvæmdir við endurbætur í húsnæðinu kynntar ásamt kostnaðaráætlun. Jafnframt farið yfir fyrirkomulag rekstrar í húsinu þegar starfsemi er hafin, fyrirkomulag á mönnunar starfseminnar og fjölda stöðugilda.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra og forseta bæjarstjórnar að vinna frekar með hópnum og leggja fyrir bæjarráð að nýju.

  2. 2. Bygging vatnsgeymis á Fáskrúðsfirði

    Mál 1904120 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs tilboði í byggingu vatnsgeymis á Fáskrúðsfirði. Eitt tilboð barst í verkið frá MVA Egilsstöðum og var það upp á krónur 91.730.097 kostnaðaráætlun er 97.222.222 og er tilboðið því 93% af kostnaðaráætlun.

    Bæjarráð samþykkir að tilboðinu verði tekið og felur bæjarstjóra undirritun verksamnings. Jafnframt er vísað til fjármálastjóra og sviðsstjóra framkvæmdasviðs að leggja fram endurskoðað framkvæmdaáætlun sem tekur tillit til breytinga vegna byggingu tanksins og viðauka við fjárhagsáætlun. Vísað til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

  3. 3. Ljósleiðaralagning Eskifirði og Neskaupstað 2019 - útboð

    Mál 1905165 Allur ferill málsins

    Lagðar fram niðurstöður útboðs til lagningu ljósleiðara um botn Eskifjarðar og Norðfjarðarsveitar. Tveir aðilar buðu í verkið. Lægstbjóðandi er Míla og talið mjög raunhæft og því er lagt til að farið verði í viðræður við Mílu um framkvæmdina.

    Bæjarráð samþykkir að tilboðinu sé tekið og felur bæjarstjóra undirritun verksamnings. Sviðsstjóra framkvæmdasviðs falið að yfirfara kostnað ljósleiðaralagningar á árinu 2019 í samráði við fjármálastjóra og leggja fyrir bæjarráð. Vísað til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

  4. 4. Ofanflóðavarnir Urðarbotn og Sniðgil - Neskaupstað

    Mál 1810024 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf frá Framkvæmdasýslu ríkisins er varðar tillögu að töku tilboðs - Snjóflóðavarnir í Neskaupstað, Urðarbotn og Sniðgil varnargarðar og keilur. Tvö tilboð bárust.

    Lagt er til að tilboði lægstbjóðanda, Héraðsverki ehf. verði tekið en lægstbjóðanda uppfyllir allar kröfur útboðs.

    Bæjarráð tekur undir álit Framkvæmdasýslunnar um að tilboði Héraðsverks ehf. verði tekið. Bæjarstjóra falin undirritun verksamnings fyrir hönd Fjarðabyggðar. Vísað til kynningar í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.

  5. 5. Innkaupareglur Fjarðabyggðar 2019

    Mál 1905126 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að innkaupastefnu ásamt uppfærðum innkaupareglum Fjarðabyggðar. Reglurnar er uppfærsla á eldri innkaupareglum Fjarðabyggðar en eru ekki efnislegar breytingar á innkaupareglum nema til að samræma þær við breytingar og frekari gildistöku laga um opinber innkaup gagnvart sveitarfélögum.

    Bæjarráð vísar innkaupastefnu ásamt innkaupareglum til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  6. 6. Eignir Eskju við Strandgötu

    Mál 1811177 Allur ferill málsins

    Lagður fram kaupsamningur við Eskju hf. um kaup og niðurrif á fasteignunum Strandgata 38, 38A, 40 og 42 á Eskifirði.

    Bæjarráð samþykkir kaupsamning og felur bæjarstjóra að undirrita þar til bær gögn vegna kaupanna. Jafnframt felur bæjarráð eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd að hefja endurskoðun á aðalskipulagi og deiliskipulagi miðbæjar á Eskifirði m.t.t. þessara breytinga.

  7. 7. Skipti á Bleiksárhlíð 56 og Strandgötu 39

    Mál 1905124 Allur ferill málsins

    Lagðir fram kaupsamningar og afsal vegna makaskipt á eignunum Bleiksárhlíð 56 og Strandgata 39 á Eskifirði.

    Bæjarráð samþykkir makaskiptin og felur bæjarstjóra undirritun gagna sem tengjast þeim.

  8. 8. Grænbók um stefnu í málefnum sveitarfélaga birt í samráðsgátt

    Mál 1905008 Allur ferill málsins

    Frá fyrri fundi bæjarráðs en forstöðumanni stjórnsýslu var falið að yfirfara grænbókina. Umsagnarfrestur um grænbók í málefnum sveitarfélaga, hefur verið framlengdur til 11.júní.

    Bæjarráð Fjarðabyggðar samþykkir að huga þurfi vel að ákvörðun lágmarksstærðar sveitarfélaga hvað varðar íbúafjölda. Þá verði sérstaklega hugað að hlutverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og skiptingu framlaga til sveitarfélaga. Bæjarritara falið að veita umsögn vegna þessara atriða.

  9. 9. Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 2019

    Mál 1902127 Allur ferill málsins

    Framlagðar til kynningar tvær fundargerðir stjórnar Náttúrstofu Austurlands frá 3.janúar og 28.mars 2109.

  10. 10. Fræðslunefnd - 70

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar, nr. 70 frá 28.maí 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 10.1 Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð1808078
    2. 10.2 Tómstundir eldri borgara1905092
    3. 10.3 Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 20201904133
  11. 11. Menningar- og nýsköpunarnefnd - 13

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar, nr. 13 frá 27.maí 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 11.1 Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýskopunarnefndar 20201904132
    2. 11.2 Málefni Tónlistarmiðstöðvar Austurlands 20181803046
    3. 11.3 Samningur um Sómastaði í Reyðarfirði1904175
    4. 11.4 Stefnumótun í ferðaþjónustu1811077
    5. 11.5 Safnanefnd - 91904030F
  12. 12. Hafnarstjórn - 222

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 222 frá 27.maí 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 12.1 Norðfjörður Togarabryggja þekja og lagnir 20191905119
    2. 12.2 Norðfjörður löndunarkantur smábáta breyting1905120
    3. 12.3 Starfs- og fjárhagsáætlun Hafnarstjórnar 20201904137
    4. 12.4 Aðalfundarboð - Fiskimarkaður Austurlands hf. 6.júní1905127
    5. 12.5 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20191901001
  13. 13. Íþrótta- og tómstundanefnd - 61

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 61 frá 28.maí 2019, lögð fram til umfjöllunar.

  14. 14. Safnanefnd - 9

    Fundargerðin í heild

    Framlögð fundargerð safnanefndar frá 2. maí sl. til umfjöllunar.

    1. 14.1 Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýskopunarnefndar 20201904132
    2. 14.2 Umhverfisstefna Fjarðabyggðar1704067
    3. 14.3 Málefni Miðstrætis 1 Neskaupstað1902161
    4. 14.4 Ritun sögu Fáskrúðsfjarðar 2018 og 20191802082
    5. 14.5 Gjaldskrá safna 2020 til 2021.1809113
    6. 14.6 Samningur um Sómastaði í Reyðarfirði1904175
    7. 14.7 Þjónustusamningur við félag eldri borgarar í Neskaupstað1904177
    8. 14.8 Þjónustusamningur við eldri borgara á Eskifirði 20191904178
    9. 14.9 Þjónustusamningur við eldri borgara á Reyðarfirði1904179
    10. 14.10 Tillaga að opnunartíma safna 20191905003
    11. 14.11 Skil á búnaði vegna Rex-NS 31905010