Safnanefnd, fundur 9
2. maí 2019, kl. 14:00 til 16:00, í Molanum. Fundargerð ritaði Pétur Sörensson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Sævar Guðjónsson, aðalmaður
- Sigríður Hrönn Gunnarsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Pétur Þór Sörensson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 13 liður 5
Fundargerð Safnanefndar, nr. 9 frá 2.maí 2019, lögð fram til samþykktar. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir fundargerð með 3 atkvæðum.
Bæjarráð, fundur 617 liður 14
Framlögð fundargerð safnanefndar frá 2. maí sl. til umfjöllunar.
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýskopunarnefndar 2020
Mál 1904132 Allur ferill málsins
Undirbúningur fjárhagsáætlunargerðar 2020. Farið yfir starfsáætlun 2019 og undirbúin drög starfsáætlunar 2020. Kaflar starfsáætlunar, breytingar á forsendum og umhverfi og verkefnum teknir til umræðu.
-
2. Umhverfisstefna Fjarðabyggðar
Mál 1704067 Allur ferill málsins
Lögð fram að nýju drög að umhverfisstefnu Fjarðabyggðar 2018-2022.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar drögum að umhverfisstefnu Fjarðabyggðar 2018-2022 til umfjöllunar í menningar- og nýsköpunarnefnd, félagsmálanefnd, fræðslunefnd, hafnarstjórn, íþrótta- og tómstundanefnd, landbúnaðarnefnd, ungmennaráð og safnanefnd.
Safnanefnd gerir ekki athugasemd við drögin.
-
3. Málefni Miðstrætis 1 Neskaupstað
Mál 1902161 Allur ferill málsins
Safnanefnd leggur til að munir og innréttingar Skóvinnustofunnar verði fluttir í Safnahúsið Neskaupstað, Egilsbraut 2, á aðra hæð í rými sem staðsett er í norðaustur hluta hússins. Gert er ráð fyrir að reist verði eftirlíking Skóvinnustofunnar á sama stað á komandi vetri.
-
4. Ritun sögu Fáskrúðsfjarðar 2018 og 2019
Mál 1802082 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað er varðar fjárhagsáætlun ársins 2019 og kostnaðar við ritun Sögu Fáskrúðsfjarðar.
Forstöðumanni stjórnsýslusviðs falið umsjón styrkmála meðal annars við Loðnuvinnsluna og Kaupfélag Fáskrúðsfjarðar og uppgjör við sagnaritara miðað við stöðu verksins.
-
5. Gjaldskrá safna 2020 til 2021.
Mál 1809113 Allur ferill málsins
Tillaga að gjaldskrá safna fyrir árið 2021.
Safnanefnd samþykkir tillögurnar. Vísað til ferðaþjónustuhóps að hann skoði frekari tækifæri í markaðssetningu.
-
6. Samningur um Sómastaði í Reyðarfirði
Mál 1904175 Allur ferill málsins
Lögð fram drög að samningi um umsjón (samstarf) með húsnæði Sómastaða í Reyðarfirði. Safnanefnd hafnar erindi varðandi umsjón Sómastaða í Reyðarfirði.
-
7. Þjónustusamningur við félag eldri borgarar í Neskaupstað
Mál 1904177 Allur ferill málsins
Lögð fram drög að þjónustusamningi 2019 við félag eldri borgara Neskaupstað.
Safnanefnd samþykkir drögin og veitir forstöðumanni Safnastofnunar Fjarðabyggðar heimild til semja um þóknun við félag eldri borgara í Neskaupstað fyrir árið 2019.
-
8. Þjónustusamningur við eldri borgara á Eskifirði 2019
Mál 1904178 Allur ferill málsins
Lögð fram drög að þjónustusamningi 2019 við félag eldri borgara Eskifirði.
Safnanefnd samþykkir drögin. Forstöðumanni Safnastofnunar Fjarðabyggðar falið að semja við félag eldri borgara á Eskifirði fyrir árið 2019.
-
9. Þjónustusamningur við eldri borgara á Reyðarfirði
Mál 1904179 Allur ferill málsins
Lögð fram drög að þjónustusamningi 2019 við félag eldri borgara Reyðarfirði.
Safnanefnd samþykkir drögin og veitir forstöðumanni Safnastofnunar Fjarðabyggðar heimild til semja um þóknun við félag eldri borgara á Reyðarfirði fyrir árið 2019.
-
10. Tillaga að opnunartíma safna 2019
Mál 1905003 Allur ferill málsins
Tillaga að opnunartíma safna 2019.
Safnanefnd samþykkir tillögurnar, en mun endurskoða fyrirkomulag á opnunartíma og umhaldi á hausti komanda.
-
11. Skil á búnaði vegna Rex-NS 3
Mál 1905010 Allur ferill málsins
Ósk Haraldar Árnasonar um að fá afhentan öxul, skrúfu og stefnisrör úr mótorbátnum Rex NS 3, Fáskrúðsfirði.
Forstöðumanni Safnastofnunar falið að kanna málið við bréfritara.