Safnanefnd, fundur 8
12. mars 2019, kl. 15:00 til 19:30, í Molanum. Fundargerð ritaði Pétur Sörensson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
- Sævar Guðjónsson, aðalmaður
- Sigríður Hrönn Gunnarsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Pétur Þór Sörensson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 11 liður 9
Fundargerð safnanefndar nr. 8 lögð fram til umfjöllunar og kynningar. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir fundargerð safnanefndar nr. 8 með 5 atkvæðum.
Bæjarráð, fundur 606 liður 24
Fundargerð safnanefndar, nr. 8 frá 12.mars 2019, lögð fram til umfjöllunar.
Dagskrá
-
1. 8. fundur safnanefndar, þriðjudaginn 12. mars, kl.15:00. Vettvangsheimsókn á Stöðvarfjörð og í Breiðdal.
Mál 1903037 Allur ferill málsins
Vettvangsheimsókn Safnanefndar á áðurtalda staði, farið yfir stöðu safnamála á Stöðvarfirði og í Breiðdal.
Bókasafnið á Stöðvarfirði heimsótt þar sem forstöðumaður tók á móti nefndarmönnum og fór yfir stöðu bókasafnsins og sýndi nefndarmönnum aðstöðu safnsins.
Safn Antons Þórs Helgasonar heimsótt og skoðað undir leiðsögn eigandans.
Fornleifauppgröfturinn á Stöð í Stöðvarfirði. Formaður safnanefndar fór yfir stöðu mála og kynnti nefndarmönnum staðhætti.
Bókasafnið í Breiðdal heimsótt. Forstöðumaður Safnastofnunar og formaður safnanefndar fóru yfir stöðu mála bókasafnsins. Fyrirhugaðar breytingar á húsakynnum safnsins kynntar nefndarmönnum og þeim sýndar teikningar.
Breidalssetur. Hákon Hansson tók á móti nefndarmönnum og kynnti sögu setursins og framtíðaráform þess. Aðstaða og sýning setursins skoðuð undir leiðsögn Hákonar.
Borkjarnasafn Íslands. Borkjarnasafn Íslands sem er í eigu Náttúrufræðistofnunar Íslands heimsótt, en safnið er í samstarfi við Breiðdalssetur. Í safninu eru geymdir borkjarnar frá öllu landinu og var nefndarmönnum sýnd aðstaðan.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl:19:30.