Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2019

8. fundur safnanefndar, þriðjudaginn 12. mars, kl.15:00. Vettvangsheimsókn á Stöðvarfjörð og í Breiðdal.

Mál 1903037 Fyrst á dagskrá 12. mars 2019, síðast 25. mars 2019. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Menningar- og nýsköpunarnefnd, Safnanefnd.

Í heiti málsins: Breiðdalsvík og BreiðdalurStöðvarfjörðurMenning og söfn

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2019

    Safnanefnd, fundur 8 liður 1

    Vettvangsheimsókn Safnanefndar á áðurtalda staði, farið yfir stöðu safnamála á Stöðvarfirði og í Breiðdal.

    Bókasafnið á Stöðvarfirði heimsótt þar sem forstöðumaður tók á móti nefndarmönnum og fór yfir stöðu bókasafnsins og sýndi nefndarmönnum aðstöðu safnsins.

    Safn Antons Þórs Helgasonar heimsótt og skoðað undir leiðsögn eigandans.

    Fornleifauppgröfturinn á Stöð í Stöðvarfirði. Formaður safnanefndar fór yfir stöðu mála og kynnti nefndarmönnum staðhætti.

    Lesa alla bókunina (84 orð til viðbótar)

    Bókasafnið í Breiðdal heimsótt. Forstöðumaður Safnastofnunar og formaður safnanefndar fóru yfir stöðu mála bókasafnsins. Fyrirhugaðar breytingar á húsakynnum safnsins kynntar nefndarmönnum og þeim sýndar teikningar.

    Breidalssetur. Hákon Hansson tók á móti nefndarmönnum og kynnti sögu setursins og framtíðaráform þess. Aðstaða og sýning setursins skoðuð undir leiðsögn Hákonar.

    Borkjarnasafn Íslands. Borkjarnasafn Íslands sem er í eigu Náttúrufræðistofnunar Íslands heimsótt, en safnið er í samstarfi við Breiðdalssetur. Í safninu eru geymdir borkjarnar frá öllu landinu og var nefndarmönnum sýnd aðstaðan.

    Fleira ekki gert. Fundi slitið kl:19:30.

  2. Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 11 liður 9.1

    Fundargerðin „Safnanefnd - 8“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Bæjarráð, fundur 606 liður 24.1

    Fundargerðin „Safnanefnd - 8“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is