Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirSafnanefnd

Safnanefnd, fundur 7

26. febrúar 2019, kl. 16:00 til 18:00, í Molanum. Fundargerð ritaði Pétur Sörensson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Kamma Dögg Gísladóttir, varaformaður
  • Ævar Ármannsson, aðalmaður
  • Sævar Guðjónsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Pétur Þór Sörensson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 603 liður 19

    Fundargerð safnanefndar, nr. 7 frá 26.febrúar 2019, lögð fram til umfjöllunar.

  • Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 11 liður 8

    Fundargerð safnanefndar nr. 7 lögð fram til umfjöllunar og kynningar. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir fundargerð safnanefndar nr. 7 með 5 atkvæðum.

  • Bæjarráð, fundur 606 liður 23

    Fundargerð safnanefndar, nr. 7 frá 26.febrúar 2019, lögð fram til umfjöllunar.

Dagskrá

  1. 1. Hús frístunda

    Mál 1901070 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað um útfærslu frístundastarfs í Egilsbúð í Neskaupstað.

    Kynnt fyrirhuguð ferð embættismanna til Sauðárkróks til að kynna sér aðstæður í Húsi frístund þar í bæ.

    Lagt fram til kynningar.

  2. 2. Ritun sögu Fáskrúðsfjarðar 2019

    Mál 1802082 Allur ferill málsins

    Formaður safnanefndar fór yfir stöðu söguritunar Fáskrúðsfjarðar.

    Safnanefnd stefnir á að söguritun um sögu Fáskrúðsfjarðar ljúki á árinu 2019.

    Forstöðumanni falið að fara yfir stöðu málsins.

  3. 3. 740 Afnotasamingur fyrir Egilsbraut 2

    Mál 1808028 Allur ferill málsins

    Afnotasamningur hafnarstjórna og Safnastofnunar um afnot af Safnahúsinu, Egilsbraut 2, Neskaupstað lagður fram til kynningar.

    Safnanefnd felur formanni að leggja til við hafnarstjóra að gerð verði breyting á 6. gr. annarri málsgrein samnings, en samþykkir samninginn að öðru leyti.

  4. 4. Fundargerðir Héraðsskjalasafns Austurlands 2018

    Mál 1805082 Allur ferill málsins

    Fundargerðir Héraðsskjalasafns Austfirðinga frá 29.október og 12.nóvember 2018, lagðar fram til kynningar.

  5. 5. Málefni Miðstrætis 1 Neskaupstað

    Mál 1902161 Allur ferill málsins

    Farið yfir málefni Miðstrætis 1 í Neskaupstað.

    Kynntur fyrirhugaður flutningur og ráðstöfnun muna og gagna sem eru í húsnæðinu.

    Fyrirhugaður flutningur skóvinnustofunnar í Safnahúsið kynntur. Forstöðumanni falið að kanna kostnað við flutning skóvinnustofuna.

    Ræddar hugmyndir um leiðir til að gera náttúrusteina í eigu Náttúrugripasafnsins aðgengilega til sýningar fyrir almenning.

    Forstöðumanni falið að leita samstarfs við Menningarstofu um útfærslu.

  6. 6. Stefnumótun Safnanefndar.

    Mál 1812134 Allur ferill málsins

    Formaður safnanefndar fór yfir stöðu mála og þá vinnu sem fyrirhuguð er.

  7. 7. Málefni Safnaráðs Neskaupstaðar.

    Mál 1812131 Allur ferill málsins

    Formaður safnanefndar fór yfir stöðu mála er varðar Safnaráð Neskaupstaðar.

    Forstöðumanni Safnastofnunar og bæjarritara falið að ganga frá málefnum Safnaráðs Neskaupstaðar og niðurlaggningu þess.