Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 603

4. mars 2019, kl. 08:30 til 10:55, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri

Dagskrá

  1. 1. 760 Sorplosun í Breiðdal

    Mál 1808050 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað verkefnisstjóra umhverfismála, dagsett 12. febrúar 2019, vegna fjölda sorp- og flokkunartunna við heimili í Breiðdal.

    Verkefnastjóri umhverfismála leggur til að Breiðdalur fái græna tunnu með sama hætti og er annars staðar í Fjarðabyggð.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, að fela verkefnastjóra umhverfismála að innleiða græna tunnu í Breiðdal. Kostnaður er um 4,5 milljón. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarráðs. Bæjarráð samþykkir að innleiða græna tunnu í Breiðdal og felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs umsjón málsins. Kostnaði skal mætt innan fjárhagsáætlunar 2019.

  2. 2. Fjárhagsleg áhrif loðnubrests

    Mál 1902181 Allur ferill málsins

    Lögð fram greinargerð fjármálastjóra, Snorra Styrkárssonar, um möguleg fjárhagsleg áhrif loðnubrests í Fjarðabyggð á árinu 2019. Líkur er á að tekjur sveitarfélagsins geti skerst um allt að 260 milljónir á árinu. Bæjarráð mun fylgjast áfram með þróun málsins, áhrif þess á fjárhagsáætlun ársins og hvetur stjórnendur stofnana sveitarfélagsins til að gæta aðhalds í rekstri.

  3. 3. Reglur um heilsu- og vinnuvernd

    Mál 1805183 Allur ferill málsins

    Framlagðar endurskoðaðar reglur um heilsu og vinnuvernd með vísan í breytingar sem samþykktar voru á bæjarráðsfundi 25. febrúar 2019.

    Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarstjórnar til staðfestingar.

  4. 4. Aðgerðir í vinnuvernd

    Mál 1805178 Allur ferill málsins

    Framlagðar endurskoðaðar áherslur í vinnuvernd með vísan til samþykktar starfshóps sem afgreiddar voru á fundi bæjarráðs 25. febrúar 2019.

    Bæjarráð samþykkir reglur fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

  5. 5. Jafnlaunastefna

    Mál 1804043 Allur ferill málsins

    Framlögð drög jafnlaunastefnu sveitarfélagsins til umfjöllunar. Drögin eru hluti af jafnlaunakerfi sveitarfélagsins en unnið er að jafnlaunavottun þess. Bæjarráð samþykkir framlögð drög og vísar þeim til samþykktar í bæjarstjórn.

  6. 6. Kjara- og launamál 2019

    Mál 1901188 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað vegna endurskoðunar kjarasamnings Skólastjórafélags Íslands. Búið er að meta áhrif kjarasamnings á launaáætlun. Bæjarráð vísar málinu til fjármálastjóra til gerðar viðauka.

  7. 7. Upplýsingatæknimál - endurskoðun þráðlausra kerfa

    Mál 1807063 Allur ferill málsins

    Útfærsla á uppfærðri áætlun um endurnýjun núverandi þráðlausra kerfa. Upphaflega lagt fyrir 16. júlí 2018 en við endurmat nú er lögð til breytt útfærsla. Bæjarráð samþykkir tillögu í minnisblaði og felur bæjarritara vinnslu málsins. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar ársins.

  8. 8. Erindi frá starfsmönnum Sýslumannins á Austurlandi.

    Mál 1902214 Allur ferill málsins

    Erindi starfsmanna Sýslumannsins á Austurlandi er varðar lækkun á starfshlutfalli starfsmanna sem tilkomin er vegna uppsafnaðs rekstrarhalla embættisins. Bæjarráð tekur undir áhyggjur starfsmanna og minnir á mikilvægi þess að verkefni verði áfram færð til embætta sýslumanna á landsbyggðinni en engin verkefni hafa verið færð til Sýslumannsins á Austurlandi þrátt fyrir loforð þar um. Bæjarstjóra falið að ræða málið við dómsmálaráðherra.

  9. 9. N4 - samningur við sveitarfélögin á Austurlandi

    Mál 1903007 Allur ferill málsins

    Lagt fram erindi SSA er varðar hugmyndir um sameiginlegan samning sveitarfélaganna við N4. Sveitarfélagið gerir ráð fyrir framlagi til N4 í fjárhagsáætlun ársins 2019 líkt og verið hefur. Bæjarráð telur ekki þörf á breytingu á fyrirkomulagi.

  10. 10. Umsókn um styrk frá Karatedeild Þróttar vegnu leigu á húsnæði

    Mál 1801128 Allur ferill málsins

    Fyrir liggja drög að rekstrar-og uppbyggingarsamningi við Karatedeild Þróttar til þriggja ára. Íþrótta- og tómstundanefnd vísar fyrirliggjandi samningi til samþykktar bæjarráðs. Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  11. 11. Umsókn um styrk frá Lyftingafélagi Austurlands vegna reksturs og leigu húsnæðis

    Mál 1801134 Allur ferill málsins

    Fyrir liggja drög að rekstrar-og uppbyggingarsamningi við Lyftingafélag Austurlands til þriggja ára. Íþrótta- og tómstundanefnd hefur samþykkt samning fyrir sitt leyti og vísar honum til bæjarráðs til samþykktar. Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  12. 12. Endurskoðun samnings um útvistun rekstrar Skíðasvæðisins í Oddsskarði 2019

    Mál 1902144 Allur ferill málsins

    Íþrótta- og tómstundanefnd hefur rætt endurskoðun samnings um útvistun reksturs Skíðasvæðisins í Oddsskarði, en samkvæmt samningskaupalýsingu þarf að taka ákvörðun í vor um hvort framlengja skuli samning við rekstraraðila. Íþrótta- og tómstundanefnd leggur til við bæjarráð að skipaður verði starfshópur um endurskoðun samnings vegna útvistun reksturs Skíðasvæðisins í Oddsskarði. Bæjarráð samþykkir skipan starfshóps og að hann skipi Karl Óttar Pétursson bæjarstjóri sem jafnframt verði formaður hópsins, Pálína Margeirsdóttir formaður íþrótta- og tómstundanefndar, Sigríður Margrét Guðjónsdóttir varaformaður íþrótta- og tómstundanefndar, Dýrunn Pála Skaftadóttir bæjarfulltrúi, Valgeir Ægir Ingólfsson atvinnu- og þróunarstjóri, Bjarki Ármann Oddsson íþrótta- og tómstundastjóri og Snorri Styrkársson fjármálastjóri. Bæjarstjóri kalli hópinn saman og haldi utan um vinnu hans.

  13. 13. Hafnarreglugerð - endurskoðun 2019

    Mál 1902165 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn hefur samþykkt breytingar á hafnarreglugerð Fjarðabyggðarhafna fyrir sitt leyti.

    Bæjarráð vísar hafnarreglugerð til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

  14. 14. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2019

    Mál 1901217 Allur ferill málsins

    Fundargerð sambandsins, nr. 868 frá 22.febrúar 2019, lögð fram til kynningar. Bæjarráð ítrekar fyrri afstöðu sína í tengslum við 7.fundarlið í fundargerð - frumvarp til laga um breytingu á llögum um kosnignar til sveitarstjórna - kosningaaldur. Bæjarráð telur rétt að saman fari kosningaaldur og kjörgengi auk þess sem kosningaaldur verði sá sami í öllum kosningum. Bæjarráð Fjarðabyggð getur því ekki tekið undir efni frumvarpsins.

  15. 15. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 226

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 226 frá 25.febrúar 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 15.1 Skapandi sumarstörf 20191902011
    2. 15.2 760 Sorplosun á Breiðdalsvík1808050
    3. 15.3 Stjórnkerfisnefnd1804119
    4. 15.4 Umhverfisstefna Fjarðabyggðar1704067
    5. 15.5 Samningur við Villikattafélagið1902174
    6. 15.6 Efnistökusvæði í Fjarðabyggð1702159
    7. 15.7 Refa- og minkaveiði 20191902080
    8. 15.8 Garðsláttur1806144
    9. 15.9 Leiðrétting á skráningu á fasteignum og lögheimilum í Fjarðabyggð1902142
    10. 15.10 Landbúnaðarnefnd - 211902013F
  16. 16. Landbúnaðarnefnd - 21

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð landbúnaðarnefndar, nr. 21 frá 14.febrúar 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 16.1 Búfjárhald og lausaganga stórgripa1811014
  17. 17. Hafnarstjórn - 215

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 215 frá 27.febrúar 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 17.1 Beiðni um undanþágu frá hafnsöguskyldu Frigg W1902105
    2. 17.2 Hafnarreglugerð - endurskoðun 20191902165
    3. 17.3 Togarabryggja, Norðfjörður endurbygging 20191902152
    4. 17.4 Togarabryggja, Norðfjörður endurbygging 20191902152
    5. 17.5 Smábátahöfn Stöðvarfirði - stækkun1704061
    6. 17.6 Strandbúnaður 20191902185
  18. 18. Íþrótta- og tómstundanefnd - 57

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 57 frá 26.febrúar 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 18.1 Upphitun Norðfjarðarvallar
    2. 18.2 Ástand húsnæða í félagsmiðstöðvum í Fjarðabyggðar
    3. 18.3 Sundlaugin á Fáskrúðsfirði
    4. 18.4 Umsókn um styrk frá Karatedeild Þróttar vegnu leigu á húsnæði
    5. 18.5 Umsókn um styrk frá Lyftingafélagi Austurlands vegna reksturs og leigu húsnæðis
    6. 18.6 Endurskoðun samnings um útvistun rekstrar Skíðasvæðisins í Oddsskarði 2019
    7. 18.7 Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð
  19. 19. Safnanefnd - 7

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð safnanefndar, nr. 7 frá 26.febrúar 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 19.1 Hús frístunda1901070
    2. 19.2 Ritun sögu Fáskrúðsfjarðar 20191802082
    3. 19.3 740 Afnotasamingur fyrir Egilsbraut 21808028
    4. 19.4 Fundargerðir Héraðsskjalasafns Austurlands 20181805082
    5. 19.5 Málefni Miðstrætis 1 Neskaupstað1902161
    6. 19.6 Stefnumótun Safnanefndar.1812134
    7. 19.7 Málefni Safnaráðs Neskaupstaðar.1812131
  20. 20. Félagsmálanefnd - 120

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 120 frá 26.febrúar 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 20.1 306.mál til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni aldraðra (Framkvæmdarsjóður aldraðra)1902001
    2. 20.2 274.mál til umsagnar tillögu til þingsályktunar um mótun stefnu sem eflir fólk af erlendum uppruna til þátttöku í íslensku samfélagi1902002
    3. 20.3 Fyrirspurn um notendaráð fatlaðs fólks1902107
    4. 20.4 Garðsláttur1806144
    5. 20.5 Vinna við stefnumótun í málefnum barna1902175
    6. 20.6 255. mál til umsagnar frumvarp til laga um rétt barna sem aðstandendur, 255. mál.1902177
    7. 20.7 Málefni fatlaðra barna í Fjarðabyggð1901142
    8. 20.8 Umsókn um að gerast stuðningsforeldri1902126
  21. 21. Barnaverndarfundargerðir 2019

    Mál 1902124 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar, nr. 96 frá 27.febrúar 2019, lögð fram til umfjöllunar.