Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2019

Fjárhagsleg áhrif loðnubrests

Mál 1902181 Fyrst á dagskrá 25. febrúar 2019, síðast 20. maí 2019. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð.

Í heiti málsins: Sjávarútvegur og fiskeldi

Í hnotskurn

Málið fjallar um áhrif loðnubrests árið 2019 á tekjur Fjarðabyggðar, en samkvæmt greinargerð fjármálastjóra gætu tekjur sveitarfélagsins skerst um allt að 260 milljónir króna á árinu2. Síðast fól bæjarráð fjármálastjóra að senda Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga upplýsingar um áhrif loðnubrestsins á sveitarfélagið3.

Staðan

Bæjarráð fól fjármálastjóra að senda Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga umbeðin gögn, en samtökin hyggjast nota þau í samantekt á heildaráhrifum loðnubrestsins á sveitarfélögin3.

Gervigreind skrifaði þetta yfirlit upp úr fundargerðum og upptökum. Hver tala vísar í færslu í ferlinum hér fyrir neðan. Þar er heimildin sjálf. Svona er yfirlitið unnið.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2019

    Bæjarráð, fundur 602 liður 8

    Bæjarráð fól fjármálastjóra að fara yfir fjárhagsleg áhrif loðnubrests á tekjur aðalsjóðs og hafnarsjóðs, benti á að ekki væri búið að ljúka samningum um kolmunnaveiðar í færeyskri lögsögu og hvatti stjórnvöld til að fara yfir stöðu þessara mála.

    Endursögn gervigreindar

    Bæjarráð felur fjármálastjóra sveitarfélagsins að fara yfir fjárhagsleg áhrif loðnubrests á tekjur aðalsjóðs og hafnarsjóðs og leggja fyrir bæjarráð.

    Ljóst er að fjárhagsleg áhrif þess að ef loðna finnst ekki í nægjanlegu magni á íslandsmiðum á yfirstandandi vertíð verða mikil á mörg sveitarfélög, þar sem uppsjávarvinnsla er mikilvægur þáttur í sjávarútvegi þeirra. Óvíða er uppsjávarvinnsla meiri en í Fjarðabyggð og ljóst er að loðnubrestur mun hafa mikil áhrif á fjárhag sveitarfélagsins. Þá er einnig mikið áhyggjuefni að ekki er búið að ljúka samningum um kolmunnaveiðar í Færeyskri lögsögu, sem ekki síður hefur mikil áhrif á sjávarútvegsfyrirtækin í Fjarðabyggð. Hvetur bæjarráð stjórnvöld til að fara vel yfir stöðu þessara mála enda mikið hagsmunamál fyrir sveitarfélög, fyrirtæki og ríki, þar sem um er að ræða verulegan hluta útflutningsverðmæta sjávarútvegs á Íslandi.

  2. Bæjarráð, fundur 603 liður 2

    Fjármálastjóri, Snorri Styrkársson, lagði fram greinargerð þar sem fram kom að tekjur sveitarfélagsins gætu skerst um allt að 260 milljónir króna á árinu, og bæjarráð hvatti stjórnendur stofnana til að gæta aðhalds í rekstri.

    Endursögn gervigreindar

    Lögð fram greinargerð fjármálastjóra, Snorra Styrkárssonar, um möguleg fjárhagsleg áhrif loðnubrests í Fjarðabyggð á árinu 2019. Líkur er á að tekjur sveitarfélagsins geti skerst um allt að 260 milljónir á árinu. Bæjarráð mun fylgjast áfram með þróun málsins, áhrif þess á fjárhagsáætlun ársins og hvetur stjórnendur stofnana sveitarfélagsins til að gæta aðhalds í rekstri.

  3. Bæjarráð, fundur 615 liður 4

    Lögð var fram bókun Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga sem óskaði eftir upplýsingum um áhrif loðnubrestsins, og bæjarráð fól fjármálastjóra að svara erindinu og benti á að Langanesbyggð yrði höfð með í samantektinni.

    Endursögn gervigreindar

    Lögð fram bókun sem samþykkt var á 52. stjórnarfundi Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga um heildaráhrif loðnubrests á afkomu sveitarfélaga. Jafnframt óska samtökin eftir að þeim berist upplýsingar frá Sveitarfélaginu Hornafirði, Fjarðabyggð, Vestmannaeyjabæ og Vopnfjarðarhreppi, um áhrif loðnubrests 2019, s.s. á afkomu hvers sveitarfélags og rekstur. Upplýsingarnar verða notaðar í samantekt Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga á heildaráhrifum aflabrestsins á sveitarfélögin. Stjórn Samtaka sjávarútvegsveitarfélaga telur mikilvægt að unnin verði samantekt á heildaráhrifum loðnubrests 2019 og að niðurstöður hennar verði kynntar á fundi stjórnar þar sem bæjarstjórum þeirra sveitarfélaga sem um ræðir verði boðið einnig. Í framhaldinu muni stjórnin síðan álykta um með hvaða hætti ríkisvaldið gæti/ætti að bregðast við komi slíkar aðstæður upp, hvort heldur er varðandi loðnu eða aðra veiðistofna.

    Lesa alla bókunina (28 orð til viðbótar)

    Bæjarráð felur fjármálastjóra að svara erindinu og senda þau gögn sem óskað er eftir. Bæjarráð bendir á að Langanesbyggð verði höfð með í þeirri samantekt sem um ræðir.