Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 615

20. maí 2019, kl. 08:30 til 10:15, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri

Dagskrá

  1. 1. Erindi frá starfsmönnum Sýslumannins á Austurlandi

    Mál 1902214 Allur ferill málsins

    Lögð fram samantekt sýslumannsins á Norðurlandi eystra um áhrif skrertra fjárveitinga á embætti sýslumanna eftir sameiningu árið 2015. Bæjarráð ítrekar fyrri bókun sína og harmar þá stöðu sem komin er upp við embætti sýslumannsins á Austurlandi. Ekki verður við unað að þjónusta á jafn dreifbýlu svæði og Austurland er verði skert. Bæjarstjóra falið að óska eftir fundi með dómsmálaráðherra.

  2. 2. Umsókn um lán frá Ofanflóðasjóði 2019

    Mál 1905074 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að umsókn um lán úr Ofanflóðasjóði vegna framkvæmda á árinu 2018. Lántakan er í samræmi við fjárhagsáætlun ársins. Bæjarráð samþykkir lántöku og felur fjármálastjóra afgreiðslu málsins.

  3. 3. Kostnaður vegna fjölskylduráðgjafar

    Mál 1905083 Allur ferill málsins

    Lagt fram sem trúnaðarmál minnisblað félagsmálastjóra um kostnað við barnaverndarmál á árinu 2018 og 2019. Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara nánar yfir málið með félagsmálastjóra.

  4. 4. Fjárhagsleg áhrif loðnubrests

    Mál 1902181 Allur ferill málsins

    Lögð fram bókun sem samþykkt var á 52. stjórnarfundi Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga um heildaráhrif loðnubrests á afkomu sveitarfélaga. Jafnframt óska samtökin eftir að þeim berist upplýsingar frá Sveitarfélaginu Hornafirði, Fjarðabyggð, Vestmannaeyjabæ og Vopnfjarðarhreppi, um áhrif loðnubrests 2019, s.s. á afkomu hvers sveitarfélags og rekstur. Upplýsingarnar verða notaðar í samantekt Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga á heildaráhrifum aflabrestsins á sveitarfélögin. Stjórn Samtaka sjávarútvegsveitarfélaga telur mikilvægt að unnin verði samantekt á heildaráhrifum loðnubrests 2019 og að niðurstöður hennar verði kynntar á fundi stjórnar þar sem bæjarstjórum þeirra sveitarfélaga sem um ræðir verði boðið einnig. Í framhaldinu muni stjórnin síðan álykta um með hvaða hætti ríkisvaldið gæti/ætti að bregðast við komi slíkar aðstæður upp, hvort heldur er varðandi loðnu eða aðra veiðistofna.

    Bæjarráð felur fjármálastjóra að svara erindinu og senda þau gögn sem óskað er eftir. Bæjarráð bendir á að Langanesbyggð verði höfð með í þeirri samantekt sem um ræðir.

  5. 5. Viðtalstímar bæjarfulltrúa 2019

    Mál 1905094 Allur ferill málsins

    Bæjarráð er sammála um að auglýsa viðtalstíma bæjarfulltrúa sem hér segir:

    Norðfjörður mánudagur 27.maí kl. 17:00 - 19:00 í Egilsbúð.

    Eskifjörður mánudagur 27.maí kl. 20:00 - 22:00 í Eskifjarðarskóla.

    Reyðarfjörður þriðjudagur 28.maí kl. 12:00 - 14:00 á bæjarskrifstofunni.

    Fáskrúðsfjörður þriðjudagur 28.maí kl. 17:00 - 19:00 í Skólamiðstöðinni.

    Stöðvarfjörður mánudagur 3.júní kl. 17:00 - 19:00 í grunnskólanum.

    Breiðdalur mánudagur 3.júní kl. 20:00 - 22:00 í grunnskólanum.

    Bæjarráðsfundur verður haldinn í Mjóafirði að morgni mánudagsins 3.júní og viðtalstími í framhaldi af þeim fundi.

  6. 6. Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð

    Mál 1808078 Allur ferill málsins

    Drög að endurskoðaðri fræðslu- og frístundastefnu lögð fram til kynningar í bæjarráði. Starfshópur um endurskoðun stefnunnar hefur haldið fimm fundi og um 500 íbúar hafa tekið þátt í hugmyndavinnu í tengslum við endurskoðun stefnunnar. Unnið er að því að móta áherslur til næstu þriggja ára, 2020 - 2022, auk þess sem kostnaðaráætlun verður lögð fram á næstunni.

  7. 7. Íþrótta- og tómstundanefnd - 60

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 60 frá 14.maí 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 7.1 Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstundanefndar
    2. 7.2 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2020 - 2023
    3. 7.3 Stefnumótun í íþróttamálum 2019-2030
    4. 7.4 Sumarnámskeið 2019
    5. 7.5 Ungt fólk og lýðræði 2019
    6. 7.6 Heilsuefling 65 ára og eldri í Fjarðabyggð
    7. 7.7 Niðurstöður Rannsóknar og greiningar á notkun vímuefna í 8-10 bekk
    8. 7.8 Hlaupa- og hjólabrettagarður á Reyðarfirði
    9. 7.9 Stubbaskólinn styrkbeiðni
    10. 7.10 Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð
  8. 8. Hafnarstjórn - 221

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 221 frá 13.maí 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 8.1 Starfs- og fjárhagsáætlun Hafnarstjórnar 20201904137
    2. 8.2 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2020 - 20231904128
    3. 8.3 FAM ferð Cruise Iceland í Fjarðabyggð1905047
    4. 8.4 Reglur um styrki hafnarsjóðs1905048
    5. 8.5 Vefurinn 200 mílur hluti af mbl.is1905049
    6. 8.6 Skýrsla um ástand Norðfjarðarár1903090
    7. 8.7 740 Viðgerð á stálþili við fiskiðjuver Neskaupstað1808016
    8. 8.8 Beiðni um undanþágu frá hafnsögu fyrir Perseus feb 20191902148
    9. 8.9 Beiðni um undanþágu frá hafnsöguskyldu Frigg W1902105
  9. 9. Barnaverndarfundargerðir 2019

    Mál 1902124 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar, nr. 101 frá 13.maí 2019, lögð fram til umfjöllunar.