Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 611

29. apríl 2019, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2020 - 2023

    Mál 1904128 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga að reglum um gerð fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árið 2020 - 2023.

    Bæjarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar. Reglunum vísað jafnframt til kynningar í nefndum sveitarfélagsins og framkvæmdar hjá sviðsstjórum.

  2. 2. Fjárhagsáætlun 2019 - viðauki 2

    Mál 1904141 Allur ferill málsins

    Framlagður viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2019 vegna kaupa á Egilsbúð 1 og sölu á Miðstræti 1 í Neskaupstað.

    Bæjarráð samþykkir viðaukann og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.

  3. 3. Ársreikningur Rafveitu Reyðarfjarðar 2018

    Mál 1904140 Allur ferill málsins

    Framlagður sjálfstæður ársreikningur Rafveitu Reyðarfjarðar fyrir árið 2018 til áritunar.

    Bæjarráð samþykkir ársreikning og staðfestir hann með áritun sinni.

  4. 4. Fullnaðarafgreiðslur - viðauki 2019 - samþykkt um breytingu á samþykkt um stjórn Fjarðabyggðar og fundarsköp bæjarstjórnar

    Mál 1904063 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að samþykkt um breytingu á samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar vegna uppfærslu á f lið 62. gr. um kosningar og viðauka við samþykktina um fullnaðarafgreiðslur fastanefnda og embættismanna. Jafnframt er lögð fram tillaga um fullnaðarframsal grenndarkynninga, landaskipta og sameininga jarða til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

    Bæjarráð samþykkir drögin með þeirri breytingu að ekki verði um frekara framsal að ræða til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar og vísar þeim til fyrri umræðu bæjarstjórnar.

  5. 5. Prókúrur 2019

    Mál 1904145 Allur ferill málsins

    Með vísan til breytinga á viðauka um fullnaðarframsal til embættismenna eru lagðar fram uppfærðar prókúrur embættismanna er varða fullnaðarafgreiðslur.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að veita hlutaðeigandi prókúru til fullnaðarafgreiðslu að fenginni staðfestingu bæjarstjórnar á fullnaðarframsali.

  6. 6. Leiga á Kirkjumel

    Mál 1904146 Allur ferill málsins

    Jón Björn Hákonarson vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu dagskrárliðar.

    Lagður fram til samþykktar tímabundinn samningur um leigu á Kirkjumel í Norðfjarðarsveit til Hildibrand slf.

    Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  7. 7. Bygging vatnsgeymis á Fáskrúðsfirði

    Mál 1904120 Allur ferill málsins

    Framkvæmdasvið leggur til að byggður verði vatnsgeymir á Fáskrúðsfirði og framkvæmdum við Skólaveg verði frestað. Kostnaðaráætlun fyrir byggingu vatnsgeymisins lögð fram.

    Bæjarráð samþykkir byggingu vatnstanks. Gerðar verði breytingar á framkvæmda- og fjárfestingaráætlun sveitarfélagsins þar sem bygging vatnstanks á Fáskrúðsfirði verði sett í forgang í framkvæmdum sumarsins. Þegar kostnaður liggur fyrir verði metið með frekari framkvæmdir við Skólaveg á árinu 2019. Vísað til fjármálastjóra gerð viðauka vegna breytinganna umfram það fjármagn sem er áætlað er til framkvæmda á árinu 2019. Framkvæmdasviði falið að hefja undirbúning framkvæmdarinnar og útboðsferli. Framkvæmdasvið skoði jafnframt hvort hagkvæmt sé að bjóða samhliða út aðrar framkvæmdir við vatnsveitumannvirki.

    Vísað jafnframt til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

  8. 8. 740 Norðfjarðarviti - byggingarleyfi, pallur

    Mál 1904046 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd beiðni Páls Björgvins um umsjón og umhirðu með útsýnispallinum til umsagnar hafnarstjórnar og bæjarráðs.

    Bæjarráð setur sig ekki upp á móti byggingu útsýnispallsins en hafa þarf til hliðsjónar að ljósbúnaður og fjarskiptatæki haldi gildi sínu á vitanum. Hvað varðar beiðni um umsjón með umhirðu útsýnispallsins og þjónustu í tengslum við starfsemi á pallinum, er bæjarráð sammála afstöðu hafnarstjórnar um að ekki er hægt að taka afstöðu til þessarar beiðni, þar sem útsýnispallurinn er ekki í eigu sveitarfélagsins.

  9. 9. Stefnumótun í fiskeldismálum

    Mál 1703120 Allur ferill málsins

    Umræða tekin um stefnumörkun sveitarstjórnar í fiskeldi sem bæjarstjórn staðfesti 22. júní 2017 sem hluta af atvinnustefnu sveitarfélagsins.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að ítreka við umhverfisráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra fyrri samþykktir sveitarstjórnar frá 22. júní 2017 um verndun Gerpissvæðisins og mikilvægi þess að eftirlitsþáttur starfseminnar verði í heimabyggð.

  10. 10. Umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar

    Mál 1805134 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs að nýju umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar vegna smávægilegra breytinga. Breyting fellst í að bannað er að leggja að norðanverðu frá og með Ásgarði 4 að og með Tröllavegi 3.

    Bæjarráð samþykkir að fela sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs í samstarfi við forstöðumann stjórnsýslu uppsetningu endanlegra draga breytinga á samþykktinni fyrir fund bæjarstjórnar. Bæjarráð samþykkir tillögur að breytingum að öðru leyti og vísar umferðarsamþykktinni til fyrri umræðu bæjarstjórnar.

  11. 11. Gjaldfrjálsar samgöngur ungmenna að 18 ára aldri

    Mál 1903031 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir að fjármagna kostnaðarauka sem samþykktur var á fundi 8.apríl sl. vegna gjaldfrjálsra samgangna ungmenna af kostnaðarlið almenningssamgangna á árinu 2019. Bæjarráð afturkallar því ósk um gerð viðauka við fjárhagsáætlun ársins.

  12. 12. Gildistaka laga um opinber innkaup gagnvart sveitarfélögunum 2019

    Mál 1904152 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 17.apríl, þar sem bent er á að ný lög um opinber innkaup nr. 120/2016, taka að fullu gildi gagnvart sveitarfélögunum 31.maí nk.

    Vísað til fjármálastjóra og sviðsstjóra.

  13. 13. Ársfundur Starfsendurhæfingar Austurlands 2019

    Mál 1904150 Allur ferill málsins

    Framlag fundarboð ársfundar Starfsendurhæfingar Austurlands 2019 sem haldinn verður 2. maí nk. kl. 13:30 í húsnæði StarfA Miðvangi 1-3 á Egilsstöðum.

    Bæjarráð samþykkir að fela Eydísi Ásbjörnsdóttur að fara með umboð sveitarfélagsins á fundinum. Bæjarráð samþykkir að Eydís Ásbjörnsdóttir taki sæti aðalmanns í stjórn StarfA og Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir taki sæti varamanns í stjórninni.

  14. 14. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2019

    Mál 1901217 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar sambandsins nr. 870 frá 11.apríl 2019, lögð fram til kynningar.

  15. 15. Háskólasetur Austfjarða

    Mál 1710150 Allur ferill málsins

    Fyrirspurn um stöðu verkefnisins um háskólasetrið frá Ragnari Sigurðssyni.

    Málið rætt.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að leggja fram fundargerðir síðustu funda.

  16. 16. Þjónusta Húsasmiðjunnar

    Mál 1904154 Allur ferill málsins

    Í framhaldi af bókun bæjarstjórnar 1. nóvember 2018 vegna ákvörðunar Húsasmiðjunar um að loka verslun sinni í Fjarðbyggð hvatti bæjarstjórn stofnanir sínar til að snúa viðskiptum sínum til heimaaðila eins og kostur væri.

    Fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins: Hvernig var bókuninni fylgt eftir sér í lagi því að hvetja stofnanir sveitarfélagsins til að beina viðskiptum til fyrirtækja sem hér starfrækja þjónustu í sveitarfélaginu? Var bókunin send á forsvarsmenn stofnana? Hafa stofnanir sveitarfélagsins beint viðskiptum sínum til fyrirtækja með þjónustu í Fjarðabyggð í auknum mæli?

    Bæjarráð og bæjarstjóri hefur fylgt málinu eftir og mun gera áfram. Farið yfir hvernig unnið hefur verið með bókun bæjarstjórnar.

  17. 17. Evrópumeistaramót í keltneskum fangbrögðum

    Mál 1904160 Allur ferill málsins

    Bæjarráð óskar Kristínu Emblu Guðjónsdóttur og Ásmundi Hálfdáni Ásmundssyni til hamingju með glæsilegan árangur á Evrópumeistarmótinu þar sem þau lönduðu meistaratitlum.

  18. 18. Hafnarstjórn - 218

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 218 frá 15.apríl 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 18.1 Efnistaka í Norðfjarðarflóa1612118
    2. 18.2 Sjávarútvegsskólinn á Austurlandi 20191904088
    3. 18.3 Stálþil - Viðhald og viðgerðir1904089
    4. 18.4 740 Norðfjarðarviti - byggingarleyfi, pallur1904046
    5. 18.5 Styrkumsókn - Franskir dagar 20191903192
    6. 18.6 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20191901001
    7. 18.7 Ársreikningur Hafnasambands Íslands 20181903177
  19. 19. Hafnarstjórn - 219

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 219 frá 23.apríl 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 19.1 Skýrsla um ástand Norðfjarðarár1903090
  20. 20. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 231

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 231 frá 23.apríl 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 20.1 Reglur um garðslátt fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega1806144
    2. 20.2 Reglur um snjómokstur fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega1904081
    3. 20.3 784.mál til umsagnar frumvarp til laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald (stjórnvaldssektir og eftirlit með gististarfsemi)1904091
    4. 20.4 792 mál til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum (tilvísun í stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku)1904096
    5. 20.5 791.mál til þingsályktunar um breytingu á þingsályktun nr. 26/148, um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku1904095
    6. 20.6 782 mál til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á raforkulög8um og lögum um Orkustofnun (EES-reglur, viðurlagaákvæði)1904094
    7. 20.7 778.mál til umsagnar frumvarp til laga um Þjóðgarðastofnun og þjóðgarða1904093
    8. 20.8 775.mál til umsagnar frumvarp til laga um mat á umhverfisáhrifum (EES-reglur, stjórnvaldssektir o.fl.)1904092
    9. 20.9 735 Strandgata 65 - Byggingarleyfi, endurbygging1904112
    10. 20.10 740 Hafnarbraut 52 - byggingarleyfi1902194
    11. 20.11 740 Norðfjarðarviti - byggingarleyfi, pallur1904046
    12. 20.12 760 Gilsá - byggingarleyfi - gróðurhús1904098
    13. 20.13 750 Hafnargata 29 - Byggingarleyfi, breyting1904059
    14. 20.14 735 Hlíðarendavegur 7 - byggingarleyfi1904067
    15. 20.15 750 Hlíðabrekka 7 - umsókn um lóð1904057
    16. 20.16 735 Mjóeyri - umsókn um framkvæmdaleyfi - tenging við göngustíg1904109
    17. 20.17 740 Svarthamrar, Hof og Seldalur - Framkvæmdaleyfi, endurheimt á votlendi1903168
    18. 20.18 Endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-20271810136
    19. 20.19 735 Kirkjutunga - vendarsvæði í byggð1904108
    20. 20.20 Umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar1805134
    21. 20.21 730 Hjallanes 10-14 - Umsögn um starfsleyfi, jarðgerð1904022
    22. 20.22 Fjarvarmaveita Reyðarfjarðar - Varmaendurvinnslukerfi Fjarðaál1902054
    23. 20.23 Ljósleiðaravæðing 2019 - umsóknir1811036
    24. 20.24 Skýrsla um ástand Norðfjarðarár1903090
  21. 21. Barnaverndarfundargerðir 2019

    Mál 1902124 Allur ferill málsins

    Fundargerðir barnaverndarnefndar, nr. 99 og 100 frá 16.apríl og 26.apríl 2019, lagðar fram til umfjöllunar.

  22. 22. Landbúnaðarnefnd - 23

    Fundargerðin í heild

    Framlögð fundargerð landbúnaðarnefndar frá 24. apríl sl til umfjöllunar.

    1. 22.1 766.mál til umsagnar frumvarp til laga um dýrasjúkdóma o.fl. (innflutningur búfjárafurða)1904037