Hafnarstjórn, fundur 218
15. apríl 2019, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Karl Óttar Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
- Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
- Sævar Guðjónsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
- Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 611 liður 18
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 218 frá 15.apríl 2019, lögð fram til umfjöllunar.
Dagskrá
-
1. Efnistaka í Norðfjarðarflóa
Mál 1612118 Allur ferill málsins
Lögð fram drög að tillögu að matsáætlun um efnistöku úr sjó í Hellisfirði. Hafnarstjórn óskar eftir að umhverfisstjóri taki saman minnisblað um feril umsókna hjá Orkustofnun vegna efnistöku í sjó. Hafnarstjórn samþykkir drög að tillögu að matsáætlun um efnistöku úr sjó í Hellisfirði og felur umhverfisstjóra að hefja kynningarferli.
-
2. Sjávarútvegsskólinn á Austurlandi 2019
Mál 1904088 Allur ferill málsins
Bréf Sjávarútvegsskólans er varðar samstarf og kostnaðarþátttöku sumarið 2019. Hafnarstjórn mun koma að rekstri Sjávarútvegsskóla Austurlands með sama hætti og undanfarin ár.
-
3. Stálþil - Viðhald og viðgerðir
Mál 1904089 Allur ferill málsins
Erindi Sjótækni er varðar þurrkvíar og notkun þeirra við skoðun, viðhald og viðgerðir á stálþilum. Erindi lagt fram til kynningar og vísað til hafnarstjóra til frekari skoðunar.
-
4. 740 Norðfjarðarviti - byggingarleyfi, pallur
Mál 1904046 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Páls Björgvins Guðmundssonar, dagsett 5. apríl 2019, þar sem óskað er eftir heimild til að byggja 202 fm. steinsteyptan útsýnispall við Norðfjarðarvita. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar beiðni um að hafa umsjón og umhirðu með útsýnispallinum til umsagnar hafnarstjórnar og bæjarráðs. Hafnarstjórn hefur áður tekið til erindið til umfjöllunar og setur sig ekki upp á móti byggingu útsýnispallsins. Hafa þarf til hliðsjónar að ljósbúnaður og fjarskiptatæki haldi gildi sínu á vitanum. Hvað varðar beiðni um umsjón með umhirðu útsýnispallsins og þjónustu í tengslum við starfsemi á pallinum, getur hafnarstjórn ekki tekið afstöðu til þess þar sem útsýnispallurinn er ekki í eigu sveitarfélagsins.
-
5. Styrkumsókn - Franskir dagar 2019
Mál 1903192 Allur ferill málsins
Umsókn Daníels Geirs Moritz f.h. Franskra Daga, um styrk vegna framkvæmdar Franskra daga 2019. Hafnarstjórn er sammála um að veita styrk að fjárhæð kr. 300.000.- eins og gert er ráð fyrir á fjárhagsáætlun ársins.
-
6. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2019
Mál 1901001 Allur ferill málsins
Fundargerðir Hafnasambands Íslands nr. 410 og nr. 411 lagðar fram til kynningar.
-
7. Ársreikningur Hafnasambands Íslands 2018
Mál 1903177 Allur ferill málsins
Ársreikningur Hafnasambands Íslands fyrri árið 2018, lagður fram til kynnningar. Samkvæmt 5. mgr. 5. gr. laga Hafnasambands Íslands skal stjórn samþykkja ársreikninga eftir að þeir hafa verið kynntir aðildarhöfnum.