Hafnarstjórn, fundur 217
25. mars 2019, kl. 16:00 til 17:25, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
- Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
- Sævar Guðjónsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
- Marinó Stefánsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 607 liður 7
Fundargerð hafnarstjórnar, frá 25.mars 2019, lögð fram til umfjöllunar.
Dagskrá
-
1. Skýrsla um ástand Norðfjarðarár
Mál 1903090 Allur ferill málsins
Lögð fram skýrsla Hafrannsóknarstofnunar um stöðu Norðfjarðarár, dagsett í mars 2019. Bæjarráð vísar skýrslu til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar til afgreiðslu.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að kanna áhuga á sameiginlegum opnum fundi nefndarinnar, hafnarstjórnar og Veiðifélags Norðfjarðarár vegna stöðu Norðfjarðarár.
Hafnarstjórn tekur undir með eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd að boða skuli til opins fundar um málefni Norðfjarðarár.
-
2. Veiðar á göngusilungi
Mál 1903149 Allur ferill málsins
Hafnarstjórn þakkar fyrir erindið og mun taka efni þess fyrir á opnum fundi um málefni Norðfjarðarár.
-
3. Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar
Mál 1805211 Allur ferill málsins
Menningar- og nýsköpunarnefnd vísar drögum að menningarstefnu til fastanefnda til kynningar og umfjöllunar.
Hafnarstjórn gerir ekki athugasemdir við fram lögð drög að menningarstefnu Fjarðabyggðar.
-
4. Skemmtiferðaskipakomur 2019
Mál 1705073 Allur ferill málsins
Formaður menningar- og nýsköpunarnefndar fór yfir þá vinnu sem hefur verið í gangi í vinnuhópi um stefnumótun í ferðaþjónustu. umræða tekin um málefnið og verður henni haldið áfram.
-
5. Beiðni um undanþágu frá hafnsöguskyldu Frigg W
Mál 1902105 Allur ferill málsins
Beiðni um undanþágur frá lóðsskyldu við Mjóeyrarhöfn lagðar fram til samþykktar. Bæjarráð staðfestir undaþágur.