Hafnarstjórn, fundur 216
11. mars 2019, kl. 16:30 til 18:10, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
- Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
- Sævar Guðjónsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
- Marinó Stefánsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 605 liður 21
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 216 frá 11.mars 2019, lögð fram til umfjöllunar.
Bæjarstjórn, fundur 265 liður 3
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Einar Már Sigurðarson.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 11.mars sl. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Endurheimtur á votlendi
Mál 1709071 Allur ferill málsins
Samkvæmt niðurstöðum 200. fundar hafnarstjórnar þann 17. júlí s.l. voru drög að samstarfssamningi Fjarðabyggðar og Landgræðslunnar lögð að nýju fyrir hafnarstjórn.
Hafnarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti nýjar tillögur að endurheimt svæða á Hólmum og vísar til afgreiðslu bæjarráðs.
-
2. Hafnarreglugerð - endurskoðun 2019
Mál 1902165 Allur ferill málsins
Vísað til umfjöllunar hafnarstjórnar milli umræðna bæjarstjórnar endurskoðaðri hafnarreglugerð Fjarðabyggðhafna. Taka þarf afstöðu til ábendinga frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytingu um heimildir hafnasögumans um borð í skipum sem ganga á starfsskyldur skipstjóra. Um er að ræða ábendingu vegna 6. gr. hafnarreglugerðarinnar. Hafnarstjórn hefur áður tekið fyrir ábendingu vegna 6. greinar og hafnað henni og er það óbreytt. Hafnarstjóra falið að ganga frá hafnarreglugerð til síðari umræðu í bæjarstjórn í samræmi við umræður á fundi.
-
3. Erindisbréf hafnarstjórnar
Mál 1805118 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarráði til hafnarstjórnar endurskoðuðu erindisbréfi sem hefur verið uppfært með tilliti til skipulagsbreytinga sem bæjarstjórn staðfest1 21. febrúar sl.
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra breytingu á erindisbréfi í samræmi við umræðu á fundinum og vísar því til afgreiðslu bæjarstjórnar.
-
4. Starfs- og fjárhagsáætlun Hafnarsjórnar 2019 ásamt langtímaáætlun
Mál 1806027 Allur ferill málsins
Hafnarstjórn fór yfir fjárhagsáætlun ársins 2019 og greindi stöðuna gagnvart tekjumissi vegna væntanlegs loðnubrests. Hafnarstjóra falið að halda utan um vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2019.
-
5. Beiðni um undanþágu frá hafnsöguskyldu Frigg W
Mál 1902105 Allur ferill málsins
Hafnarstjórn samþykkir beiðni um undanþágu fyrir Evsiko Evhenii skipstjóra á Frigg W frá lóðsskyldu til og frá Mjóeyrarhöfn.
-
6. Skemmtiferðaskipakomur 2019
Mál 1705073 Allur ferill málsins
Hafnarstjórn fór yfir komur skemmtiferðaskipa ársins 2019 til Fjarðabyggðarhafna. Framtíðarsýn varðandi skemmtiferðaskip rædd, Hafnarstjórn samþykkir að fá formann menningar- og nýsköpunarnefndar og atvinnu og þróunarstjóra Fjarðabyggðar á næsta fund hafnarstjórnar til að ræða málið.
-
7. Umhverfisstefna Fjarðabyggðar
Mál 1704067 Allur ferill málsins
Lögð fram að nýju drög að umhverfisstefnu Fjarðabyggðar 2019-2022.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar drögum að umhverfisstefnu Fjarðabyggðar 2019-2022 til umfjöllunar í menningar- og nýsköpunarnefnd, félagsmálanefnd, fræðslunefnd, hafnarstjórn, íþrótta- og tómstundanefnd, landbúnaðarnefnd, ungmennaráð og safnanefnd.
Hafnarstjórn fór yfir drögin að umhverfisstefnu Fjarðabyggðar 2019-2022. Hafnarstjórn gerir ekki athugasemdir við drögin en telur nauðsynlegt að fundað verði með fulltrúum fyrirtækja í Fjarðabyggð áður en stefnan verður sett