Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 215

25. febrúar 2019, kl. 16:00 til 17:19, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
  • Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
  • Sævar Guðjónsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
  • Marinó Stefánsson, embættismaður

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 603 liður 17

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 215 frá 27.febrúar 2019, lögð fram til umfjöllunar.

Dagskrá

  1. 1. Beiðni um undanþágu frá hafnsöguskyldu Frigg W

    Mál 1902105 Allur ferill málsins

    Erindi frá Thor Sipping dags 12. febrúar 2019 þar sem óskað er eftir undanþágu frá hafnsöguskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir skipstjóra á MV Frigg W. Hafnarstjórn samþykkir að veita undanþáguna.

  2. 2. Hafnarreglugerð - endurskoðun 2019

    Mál 1902165 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn samþykkir breytingar á hafnarreglugerð Fjarðabyggðarhafna fyrir sitt leiti og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  3. 3. Togarabryggja, Norðfjörður endurbygging 2019

    Mál 1902152 Allur ferill málsins

    Þrjú tilboð bárust í verkið Togarabryggja, Norðfjörður endurbygging 2019 útboðið var opnað þriðjudaginn 26. febrúar 2019 kl 14:00 Frá köfunarþjónustu Sigurðar, Hagtak hf og Héraðsverk ehf. unnið er að yfirferð tilboða. Hafnarstjórn samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda að því gefnu að hann uppfylli skilyrði vegna yfirferða tilboða.

  4. 4. Togarabryggja, Norðfjörður endurbygging 2019

    Mál 1902152 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn felur sviðstjóra framkvæmdasviðs að hefja vinnu við hönnun á öðrum áfanga Togarabryggju, Norðfjörður endurbygging 2019. sem er þekja og lagnir.

  5. 5. Smábátahöfn Stöðvarfirði - stækkun

    Mál 1704061 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn felur sviðstjóra framkvæmdasviðs að hefja undirbúning á hönnun timburbryggju við höfnina á Stöðvarfirði og jafnframt að setja efnið í útboð á árinu jafnframt er sviðstjóra falið að fara yfir verkið í heild.

  6. 6. Strandbúnaður 2019

    Mál 1902185 Allur ferill málsins

    Hafnastjórn felur hafnarstjóra að senda fulltrúa á ráðstefnuna Strandbúnaður 2019