Hafnarstjórn, fundur 214
21. febrúar 2019, kl. 14:00 til 15:20, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
- Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
- Sævar Guðjónsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
Dagskrá
-
1. Togarabryggja, Norðfjörður endurbygging 2019
Mál 1902152 Allur ferill málsins
Framlögð gögn vegna útboðs á verkinu "Togarabryggja, Norðfjörður endurbygging 2019."
Hafnarstjórn samþykkir með 4 atkvæðum gögn útboðs og að verkið verði sett í útboðsferli ásamt því að bæjarstjóra verði falið að fylgja útboðinu eftir. Fulltrúi sjálfstæðisflokksins greiðir atkvæði á móti.
Bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í hafnarstjórn Fjarðabyggðar.
Fulltrúi Sjálfstæðisfloksins í hafnarstjórn Fjarðabyggðar harmar þau vinnubrögð sem hafa verið viðhöfð við framkvæmd útboðs á endurbyggingu togarabryggjunnar í Neskaupstað.
Útboðið hefur þegar verið auglýst án þess að samþykki liggi fyrir í hafnarstjórn og bæjarstjórn. Þá hafði hafnarstjórn ekki fengið að sjá úboðsgögnin fyrr en í gær, miðvikudaginn 20. febrúar, rúmri viku eftir auglýsingu útboðs og afhendingu útboðsgagna. Þessi vinnubrögð eru ámælisverð og ekki í anda lýðræðislegra vinnubragða. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins telur samt gögn útboðsins fullnægjandi og gerir ekki athugasemdir við þau.
Í ljósi þessa greiðir fulltrúi Sjálfstæðisflokksins atkvæði gegn afgreiðslu málsins.