Hafnarstjórn, fundur 213
20. febrúar 2019, kl. 12:15 til 12:45, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
- Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
- Sævar Guðjónsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
Dagskrá
-
1. Stjórnkerfisnefnd 2018
Mál 1804119 Allur ferill málsins
Tekin til umfjöllunar tillaga stjórnkerfisnefndar Fjarðabyggðar frá 19. febrúar 2019. Til umfjöllunar er sá liður tillögu sem lýtur að breytingum á stjórnskipun hafnarsjóðs. Tillagan er lögð fram sem trúnaðarmál.
Hafnarstjórn samþykkir tillögur stjórnkerfisnefndar sem lúta að hafnarsjóði fyrir sitt leyti.
-
2. Hafnarreglugerð - endurskoðun 2019
Mál 1902165 Allur ferill málsins
Lög fram tillaga að breytingum á hafnarreglugerð fyrir Fjarðabyggðahafnir.
Hafnarstjórn samþykkir að vísa hafnarreglugerð til frekari vinnslu næsta fundar hafnarstjórnar. Jafnframt er bæjarstjóra falin ábyrgð á rekstri hafnarinnar þar til ný hafnarreglugerð hefur tekið gildi.