Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 212

11. febrúar 2019, kl. 16:30 til 17:20, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Hákon Ásgrímsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
  • Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
  • Sævar Guðjónsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Hákon Ásgrímsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 600 liður 12

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 212 frá 11.febrúar 2019, lögð fram til umfjöllunar.

Dagskrá

  1. 1. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2019

    Mál 1901001 Allur ferill málsins

    Fundargerð Hafnasambands Íslands númer 409 lögð fram til kynningar.

  2. 2. Seatrade Miami 2020

    Mál 1902067 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn samþykkir að taka þátt með sameiginlegum fulltrúa frá Cruise Iceland í Seatrade Cruise sýningu árið 2020.

  3. 3. Gjaldþrotaskipti Sjóstangar ehf

    Mál 1901140 Allur ferill málsins

    Framhald umræðu um erindi skiptastjóra Sjóstangar ehf varðandi eikarbátinn Sögu SU606 sem sendur Fjarðabyggð til boða að fá til eignar vegna skuldar þrotabúsins við Breiðdalsvíkurhöfn. Hafnarstjórn afþakkar boðið og vísar málinu til bæjarráðs til staðfestingar.

  4. 4. Lenging á stálþili við Egersund á Eskifirði

    Mál 1504173 Allur ferill málsins

    Þann 31. janúar voru opnuð tilboð í verkefni Egersund kantur-þekja. Fjögur tilboð bárust í verkið. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að ganga frá samningum við lægstbjóðanda Ogsynir / ofurtólið ehf.

  5. 5. Viðburðir tengdir komu skemmtiferðaskipa 2019

    Mál 1902068 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn samþykkir að styrkja menningarviðburði í tengslum við komu skemmtiferðaskipa og leggur áherslu áð að farþegum skipa standi til boða að kynnast listafólki í heimabyggð.