Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 600

18. febrúar 2019, kl. 08:30 til 09:53, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri

Dagskrá

  1. 1. Rekstur málaflokka 2018 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1805053 Allur ferill málsins

    Lagt fram yfirlit um rekstur málaflokka, launakostnað og framkvæmdir á árinu 2018 auk deildayfirlit fyrir málaflokka 02 - 27 á árinu 2018.

  2. 2. Staða samningamála fyrir þjónustu hjúkrunarheimila

    Mál 1812103 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar ályktun félagsfundar Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu og bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga um stöðu viðræðna við Sjúkratryggingar Íslands og Heilbrigðisráðuneytið um þjónustu og gjaldskrá hjúkrunarheimila. Málið hefur þegar verið kynnt í framkvæmdaráði hjúkrunarheimila og félagsmálanefnd. Bæjarráð lýsir yfir áhyggjum af stöðu viðræðna við ríkisvaldið um rekstur hjúkrunarheimilanna og framtíð þeirra.

  3. 3. Aðstaða til leigu í Íþróttamiðstöð Eskifjarðar

    Mál 1902060 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur beiðni frá Margréti Bjarnadóttur um að fá leigt skrifstofurými í Íþróttamiðstöð Eskififjarðar fyrir nuddstofu. Bæjarráð er sammála um að leigja aðstöðu og felur íþrótta- og tómstundafulltrúa að ganga frá samningi.

  4. 4. Snjómokstur og garðsláttur fyrir eldri borgara og öryrkja

    Mál 1806144 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað sviðsstjóra framkvæmdasviðs er varðar fyrirkomulag snjómoksturs og garðsláttar fyrir eldri borgara og öryrkja. Bæjarráð vísar málinu til félagsmálastjóra og sviðsstjóra framkvæmdasviðs, með ósk um að útbúnar verði nánari reglur og gjaldskrá. Málinu er jafnframt vísað til félagsmálanefndar.

  5. 5. Auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga

    Mál 1902093 Allur ferill málsins

    Óskað er eftir tilnefningum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga fyrir kl. 12:00 mánudaginn 4.mars nk. Lagt fram til kynningar.

  6. 6. Fyrirspurn um notendaráð fatlaðs fólks

    Mál 1902107 Allur ferill málsins

    Fyrirspurn Öryrkjabandalags Íslands er varðar notendaráð fatlaðs fólks. Óskað er svara innan tveggja vikna. Vísað til félagsmálastjóra til afgreiðslu og til umfjöllunar í félagsmálanefnd.

  7. 7. Gjaldþrotaskipti Sjóstangar ehf

    Mál 1901140 Allur ferill málsins

    Vísað til bæjarráðs frá hafnarstjórn. Erindi hefur borist frá skiptastjóra Sjóstangar ehf. varðandi sokkna eikarbátinn Sögu SU606 sem stendur Fjarðabyggð til boða til eignar, vegna skuldar þrotabúsins við Breiðdalsvíkurhöfn. Hafnarstjórn hefur afþakkað boðið og vísar málinu til bæjarráðs til staðfestingar. Bæjarráð staðfestir ákvörðun hafnarstjórnar.

  8. 8. Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2018/2019

    Mál 1810049 Allur ferill málsins

    Tillögur ráðuneytis um auglýsingu vegna byggðakvóta Fjarðabyggðar fiskveiðiárið 2018 - 2019. Stuðst er við úthlutun fyrri ára og munu sömu sérrreglur gilda og frá fyrra fiskveiðiári.

    Bæjarráð samþykkir tillögu ráðuneytis og felur atvinnu- og þróunarstjóra að senda tillögu um sérreglur til atvinnu- og nýsköpunarráðuneytis.

  9. 9. Beiðni um vitnamál

    Mál 1811057 Allur ferill málsins

    Lagt fram sem trúnaðarmál.

  10. 10. Ferðumst saman - Drög að stefnu í almenningssamgöngum

    Mál 1902113 Allur ferill málsins

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til samráðs. Umsagnarfrestur er til og með 7.mars. Atvinnu- og þróunarstjóra falið að yfirfara málið og gefa umsögn ef þörf er á.

  11. 11. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 225

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 225 frá 11.febrúar 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 11.1 Umhverfisstefna Fjarðabyggðar1704067
    2. 11.2 Efnistökusvæði í Fjarðabyggð1702159
    3. 11.3 Refa- og minkaveiði 20191902080
    4. 11.4 740 Egilsbraut- umsókn um uppsetningu á skilti1902042
    5. 11.5 750 Hlíðargata - Fyrirspurn um lóð undir smáhýsi1902052
    6. 11.6 Alþjóðleg snjóflóðaráðstefna á Siglurfirði 3.-5. apríl1901187
  12. 12. Hafnarstjórn - 212

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 212 frá 11.febrúar 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 12.1 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20191901001
    2. 12.2 Seatrade Miami 20201902067
    3. 12.3 Gjaldþrotaskipti Sjóstangar ehf1901140
    4. 12.4 Lenging á stálþili við Egersund á Eskifirði1504173
    5. 12.5 Viðburðir tengdir komu skemmtiferðaskipa 20191902068
  13. 13. Fræðslunefnd - 66

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar, nr. 66 frá 13.febrúar 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 13.1 Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð1808078
  14. 14. Barnaverndarfundargerðir 2019

    Mál 1902124 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 95 frá 15.febrúar 2019, lögð fram til umfjöllunar.