Bæjarráð, fundur 599
11. febrúar 2019, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
- Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
Dagskrá
-
1. Ný reglugerð um húsnæðisáætlanir sveitarfélaga
Mál 1902006 Allur ferill málsins
Lögð fram ný reglugerð um húsnæðisáætlanir sveitarfélaga og bréf Íbúðalánasjóðs um gerð þeirra. Samkvæmt reglugerðinni þarf Fjarðabyggð að endurnýja og skila inn húsnæðisáætlun fyrir 1. mars 2019. Bæjarráð vísar húsnæðisáætlun til fjármálastjóra til uppfærslu og afgreiðslu.
-
2. Beiðni um styrk til að mæta álögðum fasteignaskatti 2019
Mál 1902021 Allur ferill málsins
Beiðni um styrk til að mæta álögðum fasteignaskatti fyrir árið 2019 vegna Ungmennafélaganna Leiknis og Austra, Golfklúbbs Byggðarholts, Golfklúbbs Norðfjarðar (golfskáli 1 og 2) og Hestamannafélagsins Blæs (Dalahöllin). Bæjarráð samþykkir styrk og felur bæjarstjóra að yfirfara reglur um styrki til að mæta álögðum fasteignaskatti.
-
3. Framtíðarmöguleikar Sköpunarmiðstöðinnar
Mál 1605155 Allur ferill málsins
Lögð fram drög að framlenging á samningi við Sköpunarmiðstöðina á Stöðvarfirði vegna fasteignagjalda. Lagt er til að samningur verði ótímabundinn með uppsagnarákvæði. Bæjarráð samþykkir framlengingu á samningi og felur bæjarstjóra undirritun hans. Vísað til kynningar í menningar- og nýsköpunarnefnd. Jafnframt er bæjarstjóra falið að svara spurningum forsvarsmanna Sköpunarmiðstöðvarinnar frá því í haust.
-
4. Minningarsamsæti um Hrönn SH 149 sem fórst 30/4 1979 í minni Reyðarfjarðar
Mál 1902038 Allur ferill málsins
Beiðni um styrk vegna samsætis til minningar um þá sem fórust með Hrönn SH149 þann 30.apríl 1979. Bæjarráð samþykkir styrk sem nemur húsaleigu og aðstoð við framkvæmd samsætisins.
-
5. Kauptilboð í Hrauntún 2 Breiðdalsvík
Mál 1901085 Allur ferill málsins
Framlagður kaupsamningur um Hrauntún 2 í Breiðdal. Óskað er eftir aðilaskiptum að kaupsamningi, en að öðru leyti er kaupsamningur í samræmi við samþykkt kauptilboð. Bæjarráð samþykkir kaupsamning og aðilaskipti að honum.
-
6. 17. júní 2019
Mál 1902044 Allur ferill málsins
Minnisblað upplýsinga- og kynningafulltrúa um tilhögun hátiðahalda 17. júní 2019 í Fjarðabyggð. Bæjarráð vísar erindi til menningar- og nýsköpunarnefndar með ósk um tillögu að fyrirkomulagi 17.júní.
-
7. Tendrun jólaljósa 2019
Mál 1902045 Allur ferill málsins
Minnisblað upplýsinga- og kynningarfulltrúa vegna fyrirkomulags viðburða við tendrun jólaljósa 2019. Bæjarráð vísar erindi til menningar- og nýsköpunarnefndar með ósk um tillögu að fyrirkomulagi tendrunar jólaljósa 2019.
-
8. Fjarvarmaveita Reyðarfjarðar - Varmaendurvinnslukerfi Fjarðaál
Mál 1902054 Allur ferill málsins
Minnisblað Eflu er varðar mögulega uppbyggingu fjarvarmaveitu fyrir Reyðarfjörð. Bæjarráð tekur vel í erindið en telur að án aðkomu Alcoa Fjarðaáls sé verkefnið ekki framkvæmanlegt. Bæjarráð mun því óska eftir fundi með forstjóra Alcoa Fjarðaáls um framhald verkefnisins.
-
9. 495. mál til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga (stofnanir á málefnasviði félags- og barnamálaráðherra)
Mál 1902061 Allur ferill málsins
Óskað er umsagnar um frumvarp til laga. Undirrituð umsögn berist eigi síðar en 27. febrúar 2019. Vísað til félagsmálastjóra til skoðunar.
-
10. 509.mál - umsagnar tillögu til þingsályktunar um heilbrigðisstefnu til ársins 2030
Mál 1902079 Allur ferill málsins
Tillaga til þingsályktunar um heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Umsögn berist eigi síðar en 28. febrúar 2019. Vísað til félagsmálastjóra til skoðunar.
-
11. Framkvæmdir 2019 - yfirlit frá framkvæmdasviði
Mál 1902078 Allur ferill málsins
Lagt fram vinnuskjal sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs, um framkvæmdir á árinu.
-
12. Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna - 10
Fundargerð framkvæmdaráðs hjúkrunarheimilanna, nr. 10 frá 5.febrúar 2019, lögð fram til umfjöllunar.
- 12.1 Lyfjaherbergi og lyfjamál á Uppsölum
- 12.2 Rekstur Uppsala 2019
- 12.3 Rekstur Hulduhlíðar 2019
- 12.4 Erindi um öldrunarmál
- 12.5 Staða samningamála fyrir þjónustu hjúkrunarheimila