Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 225

11. febrúar 2019, kl. 16:00 til 17:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Einar Már Sigurðarson, formaður
  • Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Ívar Dan Arnarson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Valur Sveinsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 600 liður 11

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 225 frá 11.febrúar 2019, lögð fram til umfjöllunar.

Dagskrá

  1. 1. Umhverfisstefna Fjarðabyggðar

    Mál 1704067 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar drög að umhverfisstefnu Fjarðabyggðar 2018-2022 í samræmi við bókun 206. fundar nefndarinnar þann 13. júní 2018.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd mun fjalla um málið að nýju á næsta fundi.

  2. 2. Efnistökusvæði í Fjarðabyggð

    Mál 1702159 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar samantekt um efnistökusvæði í Fjarðabyggð ásamt þeim svæðum þar sem framkvæmdaleyfi vegna efnistöku eru í gildi.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur Skipulags- og byggingarfulltrúa og umhverfisstjóra að vinna málið áfram og leggja fyrir nefndina að nýju.

  3. 3. Refa- og minkaveiði 2019

    Mál 1902080 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað umhverfisstjóra um fyrirkomulag refa -og minkaveiða fyrir tímabílið 2017 til 2018, dagsett 10. desember 2018. Lagt er til að horfið verði frá því fyrirkomulagi að ráða veiðimenn til eins árs en þess í stað verði ráðið til nokkurra ára í senn.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að fyrirkomulagi vegna ráðninga verði breytt í samræmi við tillögur umhverfisstjóra. Jafnframt verði gjaldskrá endurskoðuð og lögð fyrir nefndina ásamt samningsdrögum við veiðimenn.

  4. 4. 740 Egilsbraut- umsókn um uppsetningu á skilti

    Mál 1902042 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Víglundar Jóns Gunnarssonar, dagsett 6. febrúar 2019, um leyfi til að setja leiðbeinandi skilti fyrir Verslunina Pan. Á gatnamótum Egilsbrautar og hafnarafleggjara. Staðsett á graseyju við Egilsbraut.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd getur ekki samþykkt uppsetningu skilta utan lóðarmarka.

  5. 5. 750 Hlíðargata - Fyrirspurn um lóð undir smáhýsi

    Mál 1902052 Allur ferill málsins

    Lögð fram ódagsett fyrirspurn Héðins I. Gunnarssonar Michelsen, þar sem óskað er eftir áliti nefndarinnar á því hvort leyfi fáist til að byggja 52 fm einingahús neðan vegar yst á Hlíðargötu á Fáskrúðsfirði. Ekkert deiliskipulag er til staðar á svæðinu eða afmarkaðar lóðir.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur að bygging af þessari gerð og stærð geti rúmast á umræddu svæði.

  6. 6. Alþjóðleg snjóflóðaráðstefna á Siglurfirði 3.-5. apríl

    Mál 1901187 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar kynning á snjóflóðaráðstefnu sem verður á Siglufirði 3-5 apríl næstkomandi. Fulltrúar bæjarráðs munu sækja ráðstefnuna ásamt sviðsstjóra framkvæmdasviðs. Vísað til kynningar í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd frá bæjarráði.