NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 226
25. febrúar 2019, kl. 16:00 til 17:45, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Einar Már Sigurðarson, formaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
- Ívar Dan Arnarson, aðalmaður
- Árni Björn Guðmundarson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Valur Sveinsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 603 liður 15
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 226 frá 25.febrúar 2019, lögð fram til umfjöllunar.
Dagskrá
-
1. Skapandi sumarstörf 2019
Mál 1902011 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar minnisblað forstöðumanns menningarstofu Fjarðabyggðar, dagsett 21. febrúar 2019, vegna verkefnisins Fjölbreyttara sumarstarf í Fjarðabyggð. Skapandi sumarstörf er tækifæri fyrir fimm einstaklinga á aldrinum 16-25 ára sem hafa áhuga
á að nota krafta sína í 8-9 vikur yfir sumarið til listsköpunar í þágu sveitarfélagsins.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd tekur málið fyrir að nýju á næsta fundi.
-
2. 760 Sorplosun á Breiðdalsvík
Mál 1808050 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað verkefnisstjóra umhverfismála, dagsett 12. febrúar 2019, vegna fjölda sorps- og flokkunartunna við heimili á Breiðdalsvík.
Verkefnastjóri umhverfismála leggur til að Breiðdalsvík fái græna tunnu eins og er annars staðar í Fjarðabyggð.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leiti að fela verkefnastjóra umhverfismála að innleiða græna tunnu á Breiðdalsvík. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarráðs.
-
3. Stjórnkerfisnefnd
Mál 1804119 Allur ferill málsins
Kynntar stjórnkerfisbreytingar sem staðfestar voru á fundi bæjarstjórnar 21. febrúar síðastliðinn.
-
4. Umhverfisstefna Fjarðabyggðar
Mál 1704067 Allur ferill málsins
Lögð fram að nýju drög að umhverfisstefnu Fjarðabyggðar 2018-2022.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar drögum að umhverfisstefnu Fjarðabyggðar 2018-2022 til umfjöllunar í menningar- og nýsköpunarnefnd, félagsmálanefnd, fræðslunefnd, hafnarstjórn, íþrótta- og tómstundanefnd, landbúnaðarnefnd, ungmennaráð og safnanefnd.
-
5. Samningur við Villikattafélagið
Mál 1902174 Allur ferill málsins
Lagður fram til kynningar samningur sem gerður hefur við Villikattafélagið um að hlúa að villi- og vergangsköttum í landi Fjarðabyggðar og sporna við fjölgun þeirra.
-
6. Efnistökusvæði í Fjarðabyggð
Mál 1702159 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað umhverfisstjóra, dagsett 7. febrúar 2019, um áætlaða efnisþörf grjóts- og malarefnis næstu fjögur árin vegna fyrirhugaðra verkefna í sveitarfélaginu.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að endurskoða skilgreind efnistökusvæði í sveitarfélaginu ásamt skoðun á opnun nýrra efnistökusvæða samhliða endurskoðun aðalskipulags.
-
7. Refa- og minkaveiði 2019
Mál 1902080 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað umhverfisstjóra, dagsett 19. febrúar 2019, um fyrirkomulag greiðslna fyrir refa -og minkaveiðar í samræmi við breytt fyrirkomulag veiðanna og umfjöllun á síðasta fundi nefndarinnar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögur umhverfisstjóra á fyrirkomulagi veiðanna og greiðslum því tengdu og felur henni að koma þeim til framkvæmda.
-
8. Garðsláttur
Mál 1806144 Allur ferill málsins
Lagðar fram til kynningar reglur félagsmálastjóra og sviðsstjóra framkvæmdasviðs að snjómokstri og garðslætti fyrir öryrkja- og ellilífeyrisþega í Fjarðabyggð.
-
9. Leiðrétting á skráningu á fasteignum og lögheimilum í Fjarðabyggð
Mál 1902142 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar bréf Þjóðskrár Íslands þar sem tilkynnt er að staðföng í húsaskrá verði samræmd fasteignaskrá.
-
10. Landbúnaðarnefnd - 21
Samþykkt
- 10.1 Búfjárhald og lausaganga stórgripa1811014