Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirLandbúnaðarnefnd

Landbúnaðarnefnd, fundur 23

24. apríl 2019, kl. 13:00 til 15:00, í Molanum. Fundargerð ritaði Anna Berg Samúelsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Sigurður Baldursson, formaður
  • Ármann Elísson, aðalmaður
  • Sigurður Borgar Arnaldsson, aðalmaður
  • Gunnlaugur Ingólfsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Anna Berg Samúelsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

Dagskrá

  1. 1. 766.mál til umsagnar frumvarp til laga um dýrasjúkdóma o.fl. (innflutningur búfjárafurða)

    Mál 1904037 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísaði erindi Alþingis, innsent með tölvupósti frá nefndarsviði Alþingis, dagsett 4. Apríl 2019, til landbúnaðarnefndar þar sem óskað er eftir umsögn um frumvarp til laga um dýrasjúkdóma o.fl.(innflutningur búfjárafurða).

    Landbúnaðarnefnd Fjarðabyggðar hafnar alfarið innflutningi á hráu kjöti, eggjum og ógerilsneyddum mjólkurvörum. Með samþykkt þessa frumvarps sem liggur fyrir Alþingi Íslendinga væri ekki aðeins verið að bæta við þá efnahagslegu ógn sem íslenskur landbúnaður stendur frammi fyrir heldur væri einnig verið að skapa nýja og mjög umtalsverða ógn bæði við heilbrigði manna og dýra á Íslandi.

    Ef fyrirliggjandi frumvarp verður að lögum markar það ákveðin tímamót í umhverfi landbúnaðarins og því verður að leggja áherslu á að gerðar verði sömu kröfur til innlendrar og erlendar framleiðslu með tilliti til aðbúnaðar dýra og notkunar á sýklayfjum.