766.mál til umsagnar frumvarp til laga um dýrasjúkdóma o.fl. (innflutningur búfjárafurða)
Mál 1904037 Fyrst á dagskrá 8. apríl 2019, síðast 6. maí 2019. 5 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, Landbúnaðarnefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
- Upptaka af umræðu
-
2019
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 230 liður 15
Lagður fram póstur frá nefndarsviði Alþingis, dagsettur 4. Apríl 2019, þar sem atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um dýrasjúkdóma o.fl.
(innflutningur búfjárafurða), 766. mál.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar erindinu til landbúnaðarnefndar.
-
Bæjarstjórn, fundur 267 liður 5.15
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 230“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
Opinber fundargerð á fjardabyggd.is
Upptaka bæjarstjórnarfundar 267. Tölva fann kaflann og tímasetningin getur skeikað. Myndbandið er sótt frá YouTube þegar þú ýtir á spila, ekki fyrr. Opna á YouTube
Sjálfvirk uppskrift af kaflanum
Tölva skrifaði þetta upp eftir hljóðinu. Villur eru algengar, einkum í nöfnum og tölum, og þetta er ekki orðrétt tilvitnun. Upptakan sjálf er heimildin.
- 0:56:28 óskfráin þegar þar kemur enn en þetta er sem sagt nægilegt og það er stefnt að því að þetta gerist núna í sumar þannig að það er bara stutt stutt í þetta varðandi síðan umsögn um frumvarp til laga um dýrasjúkdóma þetta er nú einflutningur á búfjárafurðum þetta er nú mál sem hefur farið nokkuð hátt hér í fjölmiðlum meðal annars og við vísuðum því eðlilega til landbúnaðarnefndar því að ert er auðvitað
-
Landbúnaðarnefnd, fundur 23 liður 1
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísaði erindi Alþingis, innsent með tölvupósti frá nefndarsviði Alþingis, dagsett 4. Apríl 2019, til landbúnaðarnefndar þar sem óskað er eftir umsögn um frumvarp til laga um dýrasjúkdóma o.fl.(innflutningur búfjárafurða).
Landbúnaðarnefnd Fjarðabyggðar hafnar alfarið innflutningi á hráu kjöti, eggjum og ógerilsneyddum mjólkurvörum. Með samþykkt þessa frumvarps sem liggur fyrir Alþingi Íslendinga væri ekki aðeins verið að bæta við þá efnahagslegu ógn sem íslenskur landbúnaður stendur frammi fyrir heldur væri einnig verið að skapa nýja og mjög umtalsverða ógn bæði við heilbrigði manna og dýra á Íslandi.
Ef fyrirliggjandi frumvarp verður að lögum markar það ákveðin tímamót í umhverfi landbúnaðarins og því verður að leggja áherslu á að gerðar verði sömu kröfur til innlendrar og erlendar framleiðslu með tilliti til aðbúnaðar dýra og notkunar á sýklayfjum.
-
Bæjarráð, fundur 611 liður 22.1
Fundargerðin „Landbúnaðarnefnd - 23“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 232 liður 22.1
Fundargerðin „Landbúnaðarnefnd - 23“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.