Bygging vatnsgeymis á Fáskrúðsfirði
Mál 1904120 Fyrst á dagskrá 29. apríl 2019, síðast 24. júní 2019. 8 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Fáskrúðsfjörður
Í hnotskurn
Fjarðabyggð ákvað að byggja vatnsgeymi ofan byggðarinnar á Fáskrúðsfirði og setja verkið í forgang í framkvæmdum sumarsins 20191. Bæjarráð samþykkti að taka tilboði MVA Egilsstöðum í verkið og fól bæjarstjóra að undirrita verksamning5.
Staðan
Samið var við MVA Egilsstöðum um byggingu vatnsgeymisins og endurskoðuð fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir áframhaldandi framkvæmdum við Skólaveg7.
Gervigreind skrifaði þetta yfirlit upp úr fundargerðum og upptökum. Hver tala vísar í færslu í ferlinum hér fyrir neðan. Þar er heimildin sjálf. Svona er yfirlitið unnið.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2019
Bæjarráð, fundur 611 liður 7
Bæjarráð samþykkti að byggja vatnsgeymi og setja hann í forgang í framkvæmdum sumarsins, fól fjármálastjóra að gera viðauka og fól framkvæmdasviði að undirbúa útboð. Mat á frekari framkvæmdum við Skólaveg á árinu 2019 átti að fara fram þegar kostnaður lægi fyrir
Endursögn gervigreindar
Framkvæmdasvið leggur til að byggður verði vatnsgeymir á Fáskrúðsfirði og framkvæmdum við Skólaveg verði frestað. Kostnaðaráætlun fyrir byggingu vatnsgeymisins lögð fram.
Bæjarráð samþykkir byggingu vatnstanks. Gerðar verði breytingar á framkvæmda- og fjárfestingaráætlun sveitarfélagsins þar sem bygging vatnstanks á Fáskrúðsfirði verði sett í forgang í framkvæmdum sumarsins. Þegar kostnaður liggur fyrir verði metið með frekari framkvæmdir við Skólaveg á árinu 2019. Vísað til fjármálastjóra gerð viðauka vegna breytinganna umfram það fjármagn sem er áætlað er til framkvæmda á árinu 2019. Framkvæmdasviði falið að hefja undirbúning framkvæmdarinnar og útboðsferli. Framkvæmdasvið skoði jafnframt hvort hagkvæmt sé að bjóða samhliða út aðrar framkvæmdir við vatnsveitumannvirki.
Vísað jafnframt til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 232 liður 9
Frumkostnaðaráætlun var lögð fram og nefndin fól sviðsstjóra framkvæmdasviðs að vinna málið áfram og leggja það aftur fyrir nefndina
Endursögn gervigreindar
Lögð fram frumkostnaðaráætlun fyrir byggingu vatnsgeymis ofan byggðarinnar á Fáskrúðsfirði. Framkvæmdasvið leggur til að byggður verði vatnsgeymir á Fáskrúðsfirði og framkvæmdum við Skólaveg verði frestað. Bæjarráð hefur samþykkt byggingu vatnstanks og að gerðar verði breytingar á framkvæmda- og fjárfestingaráætlun sveitarfélagsins þar sem bygging vatnstanks á Fáskrúðsfirði verði sett í forgang í framkvæmdum sumarsins. Þegar kostnaður liggur fyrir verði metið með frekari framkvæmdir við Skólaveg á árinu 2019. Vísað til fjármálastjóra gerð viðauka vegna breytinganna umfram það fjármagn sem er áætlað er til framkvæmda á árinu 2019. Framkvæmdasviði falið að hefja undirbúning framkvæmdarinnar og útboðsferli. Framkvæmdasvið skoði jafnframt hvort hagkvæmt sé að bjóða samhliða út aðrar framkvæmdir við vatnsveitumannvirki. Vísað jafnframt til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
Lesa alla bókunina (20 orð til viðbótar)
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að vinna málið í samræma við bókun og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 233 liður 4
Nefndin samþykkti útboð vatnsgeymisins og bókaði að framkvæmdir við Skólaveg yrðu teknar til umfjöllunar þegar niðurstaða útboðs lægi fyrir
Endursögn gervigreindar
Lögð fram að nýju frumkostnaðaráætlun fyrir byggingu vatnsgeymis ofan byggðarinnar á Fáskrúðsfirði. Framkvæmdasvið leggur til að byggður verði vatnsgeymir á Fáskrúðsfirði og framkvæmdum við Skólaveg verði frestað.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir útboð vatnsgeymis. Áframhaldandi framkvæmdir við Skólaveg verða teknar til umfjöllunar þegar niðurstaða útboðs liggur fyrir.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 235 liður 1
Kynnt var að eitt tilboð hefði borist, frá MVA Egilsstöðum, upp á 91.730.097 krónur, sem er 93% af kostnaðaráætlun upp á 97.222.222 krónur, og að bæjarráð hefði samþykkt að taka tilboðinu
Endursögn gervigreindar
Vísað til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd frá bæjarráði.
Eitt tilboð barst í verkið frá MVA Egilsstöðum og var það upp á krónur 91.730.097 kostnaðaráætlun er 97.222.222 og er tilboðið því 93% af kostnaðaráætlun.
Bæjarráð samþykkir að tilboðinu verði tekið og felur bæjarstjóra undirritun verksamnings.
Jafnframt er vísað til fjármálastjóra og sviðsstjóra framkvæmdasviðs að leggja fram endurskoðaða framkvæmdaáætlun sem tekur tillit til breytinga vegna byggingu tanksins og viðauka við fjárhagsáætlun.
-
Bæjarráð, fundur 617 liður 2
Bæjarráð samþykkti að taka tilboði MVA Egilsstöðum, fól bæjarstjóra að undirrita verksamning og fól fjármálastjóra og sviðsstjóra framkvæmdasviðs að leggja fram endurskoðaða framkvæmdaáætlun og viðauka við fjárhagsáætlun
Endursögn gervigreindar
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs tilboði í byggingu vatnsgeymis á Fáskrúðsfirði. Eitt tilboð barst í verkið frá MVA Egilsstöðum og var það upp á krónur 91.730.097 kostnaðaráætlun er 97.222.222 og er tilboðið því 93% af kostnaðaráætlun.
Bæjarráð samþykkir að tilboðinu verði tekið og felur bæjarstjóra undirritun verksamnings. Jafnframt er vísað til fjármálastjóra og sviðsstjóra framkvæmdasviðs að leggja fram endurskoðað framkvæmdaáætlun sem tekur tillit til breytinga vegna byggingu tanksins og viðauka við fjárhagsáætlun. Vísað til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
-
Bæjarráð, fundur 619 liður 14.1
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 235“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 236 liður 5
Nefndinni var kynnt að endurskoðuð fjárhagsáætlun vegna vatnsgeymisins gerði ráð fyrir áframhaldandi framkvæmdum við Skólaveg
Endursögn gervigreindar
Bæjarráð hefur samþykkt að taka tilboði MVA í byggingu vatnsgeymis á Fáskrúðsfirði.
Bæjarráð fól fjármálastjóra og sviðsstjóra framkvæmdasviðs jafnframt að leggja fram til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, endurskoðaða framkvæmdaáætlun sem tekur tillit til breytinga vegna byggingu vatnsgeymisins og gera viðauka við fjárhagsáætlun. Endurskoðun fjárhagsáætlunar gerir ráð fyrir áframhaldandi framkvæmdum við Skólaveg.
-
Bæjarráð, fundur 621 liður 9.5
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 236“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.