Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 619

11. júní 2019, kl. 09:00 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun 2019 - viðauki 3

    Mál 1906037 Allur ferill málsins

    Framlagður viðauki í samræmi við samþykktir bæjarráðs um fasteignaviðskipti og uppkaup eigna við Eskju hf. og byggingu nýs vatnstanks á Fáskrúðsfirði, ásamt öðrum leiðréttingum á fjárfestingaráætlun Fjarðabyggðar 2019 m.a. vegna byggingu vatnstanks á Fáskrúðsfirði. Bæjarráð vísar viðauka 3 við fjárhagsáætlun 2019 til endanlegrar staðfestingar bæjarstjórnar.

  2. 2. Reglur um fjárhagsaðstoð 2019

    Mál 1905091 Allur ferill málsins

    Vísað frá félagsmálanefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að breytingum á reglum um fjárhagsaðstoð. Framlagðar eru uppfærðar reglur um fjárhagsaðstoð til samþykktar í bæjarráði.

    Bæjarráð vísar reglum til staðfestingar í bæjarstjórn.

  3. 3. 750 Gilsholt 6-16 - Umsókn um lóð

    Mál 1905172 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn Hrafnshóls ehf, dagsett 31. maí 2019, þar sem sótt er um lóðirnar við Gilsholt 6-16 á Fáskrúðsfirði undir 480 fm og 1200 rm raðhús.

    Nefndin vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu og ákvörðunar varðandi afslátt á gatnagerðargjöldum.

    Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni. Umsókn falli undir heimild 12. gr. gjaldskrár Fjarðabyggðar um gatnagerðargjöld.

  4. 4. 730 Búðarmeður 6 a-e - Umsókn um lóð

    Mál 1905173 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn Hrafnshóls ehf, dagsett 31. maí 2019, þar sem sótt er um lóðirnar við Búðamel 6 a til 6 e á Reyðarfirði undir 425 fm og 1063 rm raðhús. Nefndin vísar umsókninni til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.

    Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.

  5. 5. Nefndaskipan Framsóknarflokks 2018-2022

    Mál 1904039 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur Huldu Sigrúnar Guðmundsdóttur þar sem hún segir sig frá störfum sem kjörinn fulltrúi vegna flutnings úr sveitarfélaginu.

    Bæjarráð þakkar Huldu fyrir vel unnin störf og óskar henni velfarnaðar.

  6. 6. Viðtalstímar bæjarfulltrúa 2019

    Mál 1905094 Allur ferill málsins

    Lagðir fram á fundinum minnispunktar frá viðtalstímum bæjarfulltrúa.

    Vísað til bæjarstjóra til frekari vinnslu með sviðsstjórum sveitarfélagsins.

  7. 7. Erindisbréf eigna-,skipulags- og umhverfisnefndar

    Mál 1805115 Allur ferill málsins

    Framlagt endurskoðað erindisbréf eigna-, skipulags og umhverfisnefndar sem hefur verið uppfært með tilliti til skipulagsbreytinga sem bæjarstjórn staðfest1 21. febrúar sl. ásamt leiðréttingu starfsheita frá fyrri breytingum.

    Vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

  8. 8. Vinarbæjartengsl við Póland

    Mál 1905146 Allur ferill málsins

    Bréf frá bæjarstjóra Uztrzyki Dolne en í bréfinu er verið að kanna vilja til vinabæjarsamstarfs við bæinn.

    Bæjarráð þakkar ánægjulegt erindi en hefur ekki tök á að stofna til vinabæjarsamskipta á þessum tímapunkti umfram þau sem þegar eru.

  9. 9. Áheitagangan - Enn gerum við gagn

    Mál 1905123 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi JASPIS, Félags eldri borgara á Stöðvarfirði. Óskað er eftir framlagi til áheitagöngu, "Enn gerum við gagn". en áheiti renna til styrktar Krabbameinsfélags Austfjarða.

    Bæjarráð samþykkir að veita 100.000 kr. styrk til áheitagöngunnar. Tekið af liðnum óráðstafað 21690. Bæjarstjóri er verndari átaksins.

  10. 10. Snemmtæk íhlutun í leikskólum

    Mál 1810118 Allur ferill málsins

    Vísað frá fræðslunefnd. Í maí var undirritaður samstarfssamningur um snemmtæka íhlutun og læsi í leikskóla. Verkefnið er í samræmi við læsisstefnu Fjarðabyggðar.

    Verkefnið fór af stað með námskeiði sem haldið var 15. maí. Föstudaginn 23.ágúst verður haldið námskeið fyrir alla starfsmenn leikskólanna, en það kallar á breytingar á skóladagatölum skólanna.

    Fræðslunefnd hefur samþykkt breytingu á skóladagatölum skólanna, þannig að hálfur skipulagsdagur bætist við í öllum leikskólum Fjarðabyggðar. Skipulagsdagar á skólaárinu verða þá fimm og hálfur dagur í stað fimm.

    Bæjarráð samþykkir breytingu á skóladagatali leikskólanna.

  11. 11. Undirskriftarlisti vegna framkvæmda við stækkun húsnæðis leikskólans Dalborgar

    Mál 1906040 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Foreldrafélags Leikskólans Dalborgar á Eskifirði frá 11.mars sl. auk undirskriftarlista íbúa á Eskfirði, er varðar viðbyggingu við leikskólann.

    Bæjarráð hefur móttekið erindi og þakkar það. Erindi er vísað til kynningar í fræðslunefnd og eigna- skipulags- og umhverfisnefnd. Erindi jafnframt vísað til fjárhagsáætlunargerðar ársins 2020.

  12. 12. Dalatangi - jarðamál

    Mál 1906047 Allur ferill málsins

    Fjallað um jarðamál Dalatangajarðarinnar.

    Bæjarstjóra falið að rita Ríkiseignum bréf og óska eftir viðræðum um málið.

  13. 13. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2019

    Mál 1901217 Allur ferill málsins

    Fundargerð 871. stjórnarfundar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 29.maí 2019, lögð fram til kynningar.

  14. 14. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 235

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 235 frá 4.júní 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 14.1 Bygging vatnsgeymis á Fáskrúðsfirði1904120
    2. 14.2 Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar í A hluta 20201904130
    3. 14.3 Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar fyrir B hluta stofnanir1904131
    4. 14.4 Gjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar dreifing 20191810078
    5. 14.5 Gjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar sala 20191810079
    6. 14.6 Umgengnis- og umhverfismál1905138
    7. 14.7 Trjákurl til húshitunar1905004
    8. 14.8 Búfjárhald og búfjársamþykkt1811014
    9. 14.9 Umhverfisstefna Fjarðabyggðar1704067
    10. 14.10 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 20191904005
    11. 14.11 Afturköllun á hundaleyfi1904054
    12. 14.12 Afréttarmál - Héraðsfé1608075
    13. 14.13 Æðavarp í landi Kollaleiru1905042
    14. 14.14 Reglur um skilti í Fjarðabyggð1905150
    15. 14.15 Umsókn um niðursetningu á skilti á Norðfirði1905153
    16. 14.16 Framleiðsla Laxa fiskeldis á 3.800 tonnum af laxi í sjókvíum í Fáskrúðsfirði - beiðni um umsögn1905155
    17. 14.17 750 Hafnargata 33-35 - byggingarleyfi1905114
    18. 14.18 740 Nesbakki 5-7 - byggingarleyfi1905144
    19. 14.19 730 Brekkugerði 18 - Umsókn um byggingarleyfi, íbúðarhús1905166
    20. 14.20 735 Dalbraut 4 - Byggingarleyfi, viðbygging1905174
    21. 14.21 740 Borgarnaust 7 - Byggingarleyfi, viðbygging1905176
    22. 14.22 750 Gilsholt 6-16 - Umsókn um lóð1905172
    23. 14.23 730 Búðarmeður 6 a-e - Umsókn um lóð1905173
    24. 14.24 755 Deiliskipulag Heyklif1904069
    25. 14.25 750 Víkurgerði - Skógrækt1905140
    26. 14.26 740 Urðarbotnar - Framkvæmdaleyfi, ofanflóðavarnir1905118
  15. 15. Íþrótta- og tómstundanefnd - 62

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 62 frá 4.júní 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 15.1 Heimsókn í íþrótta- og tómstundamannvirki í Neskaupstað
    2. 15.2 Tómstundir eldri borgara
    3. 15.3 Velferð barna - Unicef á íslandi
    4. 15.4 Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstundanefndar 2020
    5. 15.5 Könnun á tómstundariðkun barna í Fjarðabyggð
  16. 16. Fræðslunefnd - 71

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar, nr. 71 frá 5.júní 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 16.1 Velferð barna - Unicef á íslandi1905105
    2. 16.2 Hvað höfum við gert?1905163
    3. 16.3 Snemmtæk íhlutun í leikskólum1810118
    4. 16.4 Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 20201904133
    5. 16.5 Breyting á skóladagatölum skólaárið 2019-20201906029
  17. 17. Barnaverndarfundargerðir 2019

    Mál 1902124 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar, nr. 102 frá 3.júní 2019, lögð fram til umfjöllunar.